Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

480 starfsmenn Landspítalans enn óbólusettir: „Vafasamt að láta þá ráfa um spítalann “

480 starfsmenn Landspítalans enn óbólusettir: „Vafasamt að láta þá ráfa um spítalann “
Már Krist­jáns­son Mynd/skjá­skot: RÚV

Alls eru 480 starfs­menn Land­spít­l­ans óbólu­settir. Fyrir því eru ýmsar ástæður en innan við 20 vilja ekki þiggja bólu­setn­ingu.

Í sam­tali við Morg­un­út­varpið á Rás 2 í morgun sagði Már Krist­jáns­son, for­maður far­sótta­nefndar Land­spít­al­ans, að spít­al­inn sé í þokka­legu standi en þó dynji margt á. Einnig segir hann tölur sem hann birti sjálfur í pistli í gær ekki alveg réttar. Segir hann að ekki sé rétt að 600 starfs­menn spít­al­ans séu óbólu­settir, heldur um 480 mannst. Þar af séu það innan við 20 sem vilji ekki þiggja bólu­setn­ingu.

„Spít­al­inn er í alveg þokka­legu standi en það dynur margt á. Aðeins í sam­bandi við þessar tölur, 600 manns, þá langar mig að leið­rétta það,“ sagði Már Krist­jáns­son, for­maður far­sótta­nefndar Land­spít­al­ans og yfir­læknir smit­sjúk­dóma­deildar spít­al­ans.

Segist Már hafa farið betur yfir töl­urnar. „Það kemur á dag­inn að þetta eru ekki alveg fylli­lega réttar tölur. Þetta voru 480 manns ef ég man rétt. Það eru ástæður fyrir því að fólk hefur ekki verið bólu­sett. Margir hafa verið barns­haf­andi og hafa ekki þegið bólu­setn­ingu þess vegna og í raun­inni sam­kvæmt ráð­legg­ingu. Síðan eru sumir með þess háttar veik­indi að það er ekki heppi­legt að bólu­setja. Þannig að það eru í raun­inni ekki nema innan við 20 manns sem hafa ekki viljað fá bólu­setn­ingu.“

Í pistl­inum sem Már sendi starfs­mönnum spít­al­ans talar hann um ástandið á spít­al­anum og þá sér­stak­lega hvað varðar Covid-far­ald­ur­inn. Segir hann að ljóst sé að land­inn sé far­inn að slaka á for­vörnum og þessi slaki sé far­inn að smita út frá sér inn í stjórn­málin þar sem krafan um aflétt­ingar sótt­varna sé hávær. Þá segir hann far­ald­ur­inn ekki leyfa slíkt. „Sem dæmi var 21 óvænt grein­ing sjúk­linga/starfs­manna eða útsetn­ing frá heim­sókn­ar­gestum um helg­ina sem setti marga í sótt­kví eða ein­angrun!“

Aukreitis kemur Már með dæmi um hætt­urnar á vinnu­staðnum. „Þá er ykkur vafa­laust kunn­ugt um hópsmit á 12G sem hefur þegar haft þær afleið­ingar að deild A7 hefur nú verið breytt í far­sótt­ar­ein­ingu og við­bragðs­stig Land­spít­ala er í end­ur­skoðun. Við erum því ennþá í hring­iðunni og verðum að vanda okkur vel í vinnu, nú sem fyrr.“

Már skrif­aði pistil á vef Land­spít­al­ans í gær þar sem segir: „Ennþá eru yfir 600 starfs­menn óbólu­settir, af ýmsum ástæðum.“

Kári Stef­áns­son er mjög hissa á þessum tölum sam­kvæmt frétt Vísis en þess ber að þegar Kári tjáði sig um málið hélt hann að 600 manns væri óbólu­settir á spít­al­anum en ekki 480 en lík­leg­ast er hann lítið ánægð­ari með þann fjölda.

„Ég vona að þetta sé rangt, því ég fæ ekki séð að það sé nokkur rétt­læt­ing á því að 10 pró­sent starfs­manna sé óbólu­settur í dag,“ segir Kári. Hann hefði trúað þessum tölum fyrir hálfu ári en ekki í dag.

Kári Stef­áns­son Mynd / Hallur Karlsson

„Ég held að þetta hljóti að leiða til þess að spít­al­inn verði að breyta að ein­hverju leyti hvernig þessir 600 starfs­menn sinna sínum störfum. Það hlítur að vera vafa­samt að láta þá ráfa um spít­al­ann sem er fullur af fólki sem er veikt fyrir.“

Segir Kári það sjálf­sagt að gera meiri kröfur til heil­brigð­is­starfs­fólks um bólu­setn­ingar en aðra í sam­fé­lag­inu.

„Vegna þess að það er að umgang­ast fólk sem er veikt fyrir. Við sáum hvað gerð­ist á Landa­koti fyrr í þess­ari far­sótt. Ég held að þetta sé grafal­var­legt mál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi