Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þórdís gagnrýnir varðstjóra: „Mannréttindi fólks falla ekki úr gildi þótt það sé fullt á djamminu.“

Þórdís gagnrýnir varðstjóra: „Mannréttindi fólks falla ekki úr gildi þótt það sé fullt á djamminu.“
Þórdís Elva Þor­valds­dóttir

„Mér þykir ljóst að Aníta Rut Harð­ar­dóttir lög­reglu­varð­stjóri hafi brotið með ský­lausum hætti gegn siða­reglum lög­regl­unnar þegar hún lét ummælin „Full á djamm­inu.is“ falla um brota­þola í ofbeld­is­máli,“ segir Þórdís Elva Þor­valds­dóttir, rit­höf­undur og bar­áttu­kona gegn ofbeldi.

Í sam­tali við Mannlíf gagn­rýnir Þórdís Elva harð­lega ummæli sem Aníta Rut, varð­stjóri hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, lét falla á Facebook-síðu sinni.

Aníta Rut deildi frétt Mannlífs um Þórhildi Gyðu Arn­ars­dóttur með orð­unum: „Full á djamm­inu.is“. Facebook-síða varð­stjór­ans er opin almenn­ingi.

Þór­hildur Gyða hefur mikið verið í sviðs­ljós­inu und­an­farið eftir að upp komst um þöggun KSÍ í máli lands­liðs­manns­ins Kolbeins Sig­þórs­sonar, en Þór­hildur kærði hann fyrir ofbeld­is­brot árið 2017. Málið var á sínum tíma útkljáð með sáttum, þar sem Kolbeinn gekkst við broti sínu, greiddi henni miska­bætur og lagði sömu­leiðis upp­hæð inn á reikn­ing Stíga­móta.

Fréttin sem Aníta Rut deildi fjall­aði um reiði Þór­hildar Gyðu vegna yfir­lýs­ingar Arons Einars Gunn­ars­sonar, fyrrum lands­liðs­fyr­ir­liða, sem sagð­ist þar ekki hafa beitt neina mann­eskju ofbeldi. Aron Einar hefur verið kærður fyrir nauðgun og er undir rann­sókn lög­reglu, ásamt Eggerti Gunnþóri Jónssyni, leik­manni FH. Meint brot á að hafa átt sér stað árið 2010.

Þetta eru ekki einu ummæli Anítu sem þykja lýsa fjand­sam­legum við­horfum hennar til ákveð­ins fólks. Hún var einnig umtöluð á sínum tíma fyrir að bera við lög­reglu­störf tákn og fána á ein­kenn­is­bún­ingi sínum, sem að margra mati þóttu sýna fram á kyn­þátta­for­dóma. Henni var gert að fjar­lægja táknin af bún­ingi sínum í kjöl­farið.

Aníta Rut Harð­ar­dóttir

Skýr brot á siðareglum

„Í 15. grein siða­reglna lög­regl­unnar segir orð­rétt: Starfs­menn lög­reglu skulu gæta þess að aðhaf­ast ekk­ert í starfi sínu eða utan þess, sem er almennt til þess fallið að draga óhlut­drægni þeirra í efa við fram­kvæmd starfa lög­reglu,“ segir Þórdís Elva, um færslu Anítu Rutar um Þórhildi Gyðu.

Þórdís segir ummæli Anítu Rutar auk þess hafa verið slúður um meint neyslu­mynstur við­kom­andi ein­stak­lings á áfengi.

„Það brýtur gegn 12. grein siða­reglna lög­regl­unnar, þar sem segir: „Starfs­menn lög­regl­unnar skulu gæta hófs og sann­girni í ummælum sínum um sam­starfs­menn sína jafnt og um aðra menn svo sem með því að taka ekki þátt í slúðri eða dreifa rógi um þá eða aðra.““

Þórdís segir ummæli lög­reglu­varð­stjór­ans gera meira en að brjóta gegn siða­reglum með aug­ljósum hætti, sem sé þó grafal­var­legt út af fyrir sig.

„Þá má líka benda á að ummæli hennar afhjúpa djúp­stæða skekkju. Áfeng­is­neysla brota­þola í ofbeld­is­málum er ekki það sem máli skiptir. Drukkið fólk nýtur sama réttar til að vera ekki beitt ofbeldi og edrú fólk.“

Heggur sá er hlífa skyldi

„En þunga­miðjan í því sem ég vil koma á fram­færi, fyrir utan að það sé óásætt­an­legt að lög­reglu­varð­stjóri tjái sig svona um þolendur ofbeld­is­brota, er að mann­rétt­indi fólks falla ekki úr gildi þótt það sé fullt á djamm­inu.

Það er óásætt­an­legt að þolendur skuli vera háðir fólki, með for­dóma­full og skökk við­horf, um úrlausn sinna mála. Lög­reglan hefur bein­línis það hlut­verk að vernda okkur og þjóna, ekki hæð­ast að þeim fáu brota­þolum sem hafa hug­rekki til að til­kynna ofbeldi til lög­reglu og dreifa rætnu slúðri um þá.

Þar með heggur sá er hlífa skyldi. Svo undr­ast fólk hvers vegna fleiri þolendur kæra ekki ofbeld­is­brot?“

Þórdís Elva tók málið upp á Instagram-reikn­ingi sínum um helg­ina og merkti þar lög­regl­una. Henni barst svar frá lög­regl­unni sem hljóð­aði svo:

„Sæl.

Það er alveg ljóst, frá okkar bæj­ar­dyrum séð sem skrifum hér – að starfs­menn lög­reglu standa gegn ofbeldi og með þolendum ofbeld­is­brota. Það að stíga fram og segj­ast hafa orðið fyrir broti krefst hug­rekkis og lög­reglan á að gera allt sem hún getur til að standa með brota­þolum. Við sem svörum fyrir lög­regl­una þykir það virki­lega leitt að þurfa að standa fyrir svörum þegar starfs­menn emb­ætt­is­ins tjá per­sónu­legar skoð­anir sínar á opin­berum vett­vangi með þeim hætti sem nú hefur verið gert. Mál umrædds starfs­manns eru í skoðun hjá yfir­manni hans og við höfum ekki leyfi til að tjá okkur frekar um það.“

Svar lög­reglu til Þórdísar Elvu

Aðspurð segir Þórdís Elva:

„Hvað svar lög­regl­unnar snertir er ég ánægð með að þeim þyki „virki­lega leitt“ að Aníta Rut hafi tjáð sig með þeim hætti sem hún gerði – en það er fjarri því að vera nóg.

Ef starfs­maður lög­regl­unnar brýtur gróf­lega gegn siða­reglum emb­ætt­is­ins getur varla talist nóg að sam­starfs­fólki hans þyki það „leitt“?

Við­horfskann­anir sýna að þegar kyn­bundin ofbeld­is­mál eru ann­ars vegar ber almenn­ingur tak­markað traust til lög­reglu og rétt­ar­kerf­is­ins, og fram­ganga á borð við Anítu Rutar er síst til þess fallin að byggja upp traustið sem þarf til að færa ástandið til betri vegar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi