Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Steinunn Ólína svarar fyrir skrif sín: „Flestum er nú ljóst að útskúfunarsinnar vilja enga siðbót“

Steinunn Ólína svarar fyrir skrif sín: „Flestum er nú ljóst að útskúfunarsinnar vilja enga siðbót“
Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir leik­kona skrif­aði langan pistil á Facebook í gær þar sem hún svarar fyrir pistil sem hún birti síð­ast­lið­inn föstu­dag og vakti nokkuð hörð við­brögð. Pistill­inn fjall­aði um mein­tan byrl­un­ar­far­aldur á land­inu. Þar velti hún því fyrir sig hvort mögu­lega sé í sumum til­fellum um að ræða afleið­ingar þess að blanda saman geð­lyfjum og áfengi.

Í pistli gær­kvölds­ins gerir Steinunn Ólina betur grein fyrir því hvað hún átti við og segir það af og frá að hún hafi verið að leggja saman byrl­anir og sjálfs­byrl­anir.

„Aðrir þykj­ast vita að ég sé van­trúuð á að byrl­anir eigi sér stað, það er líka rang­túlkun. Enn aðrir að ég sé að gera lítið úr þolendum kyn­ferð­is­of­beldis og geri þá ábyrga fyrir ofbeldi sem þeir sæta, slíkt er af og frá,“ segir hún og segir enn­fremur að sumir telji orð hennar mark­leysu og henni beri að útskúfa.

„En mér eins og flestum er nú ljóst að útskúf­un­ar­sinnar vilja enga sið­bót. Útskúf­un­ar­sinnar vilja völd. Útskúf­un­ar­kúlt­úr­inn er á engan hátt mann- eða sið­bæt­andi. Hann er ein­fald­lega valda­ránstil­raun sem hefur það mark­mið eitt að stjórna því hvernig fólk hugsar og tjáir sig. Þau rétt­indi læt ég ekki svo glatt af hendi.“

Þá segir Steinunn Ólína að eitt­hvað í íslensku sam­fé­lagi ýti undir þá „nýút­breiddu hræðslu og háværu umræðu að hér geysi byrl­un­ar­far­aldur.“ Segir hún að það geti hugs­an­lega verið rétt.

„Vandinn við hræðsl­una er sá að það upp­rætir ekk­ert ótta nema að skora hann á hólm og grand­skoða hvað veldur honum. Það bætir ekki líðan þess sem hræddur er þótt margir til­heyri sama hræðslu­banda­lagi. Hræðslan bara vex og van­mátt­ur­inn eykst. Þetta er því miður ein­hvers­konar lög­mál.“

Telur Steinunn að sé raunin sú að hér geysi byrl­un­ar­far­aldur beri auð­vitað að bregð­ast við honum.

„Þær lausnir eru til en auð­vitað á ábyrgð þeirra, sem vilja verj­ast byrl­unum, að sækja sér og nota slíkar lausnir. Sá sem á glas­inu heldur getur þá sjálfur mælt hvort drykk­ur­inn er ómeng­aður. Er hugs­an­legt að váin umrædda sé að ein­hverju leyti orðum aukin? Kann að vera að fjöl­miðlar einkum alþjóð­legir sam­fé­lags­miðlar blási að glóð­unum og skapi ringul­reið frekar en að greina vand­ann og upp­lýsa. Það er mark­aðs­öflum heims­ins nefni­lega að skapi að við mann­eskjur skipum okkur í stríð­andi fylk­ingar. Frelsið er dýr­mætt og stendur höllum fæti. Er mann­kynið sjálft að læsa sig inni?“

Steinunn Ólína veltir fyrir sér ábyrgð kvenna. „Erum við konur kannski sjálfar, í nafni þess að við séum að vernda hver aðra og börnin okkar, að leggja okkar að mörkum til að mála upp mynd af sam­fé­lagi þar sem konur geta ekki um frjálst höfuð strokið?“

Hún hafnar því að heim­ur­inn sé eins slæmur og margir halda fram.

„Ég hafna því að heim­ur­inn sé skað­ræðis skíta­p­leis og vil ekki ala á slíkum hug­myndum hjá mínum börnum, sem eru eins og allir jarð­ar­búar útsett fyrir áróðri sem erfitt er að sann­reyna. Ég hafna því líka að fylgja ekki leik­reglum sam­fé­lags­ins þótt ófull­komnar séu. Samkvæmt nýjum kenn­ingum útskúf­un­ar­sinna virð­ist það réttur manns­ins að öryggi hans sé tryggt fyrir áföllum af öllum toga? Og jafn­framt að upp­lif­un­ar­rétt­ur­inn sé nú öllu æðri. Sjálfs­á­byrgð kvenna má tæp­ast ræða. Og konur eiga að vera und­an­þegnar því að taka nokkra ábyrgð á lífi sínu og limum. Ekki má lengur benda á ef við­kom­andi lætur skyn­semi lönd og leið. Það heitir nú skerð­ing á frelsi þeirra til athafna og öryggis. Þetta er dálítið snúið fyrir mig að sam­þykkja.“

Næst kemur Steinunn Ólína inn á skrif sín um geð og kvíða­lyfja­notkun sam­hliða áfeng­is­drykkju og útskýrir þau orð betur.

„Ég leyfði mér að geta mér þess til að aukin geð-og kvíða­lyfja­notkun sam­fara áfeng­is­neyslu gæti verið ein ástæða þess að upp koma nú fleiri til­vik þar sem fólk skilur ekki hvers vegna það missir skyndi­lega tökin þegar það er úti að skemmta sér og heldur þá kannski að sér hafi verið byrlað. Og ég ótt­ast að margir séu hreint ekki með­vit­aðir um sam­verkan þess­ara lyfja með áfengi nema að hafa reynt það. Jafn­framt ótt­ast ég að fleiri en ég hunsi leið­bein­ingar lækna og þá kannski sér­ílagi fólk sem hefur eins og ég átt við fíkni­vanda að stríða.“

Næst talar hún um sjálfs­hat­rið og skömm þess sem skorist hefur undan sjálfs­á­byrgð.

„Sjálfs­hat­rið er erf­ið­ast viður­eignar í líf­inu og skömmin er önnur óvin­kona flestra. Þá er ég ekki að tala um vand­læt­ingu þeirra sem vilja ákveða hvað er við­eig­andi og hvað óvið­eig­andi í fari eða gjörðum fólks, það er bara yfir­borð og ætti ekki að rista djúpt. Ég er ekki heldur að tala um þá skömm sem margir lýsa við það að hafa verið beittir kyn­ferð­is­legu ofbeldi og telja sig rang­lega hafa borið á því ein­hverja ábyrgð. Ég þekki þá skömm, hún er allt ann­ars eðlis.Ég er að tala um það þegar maður skamm­ast sín sjálfur vegna þess að maður veit sig hafa skor­ast undan sjálfs­á­byrgð­inni. Þá skömm sem um ræðir tekur eng­inn frá þér og þú getur ekki skilað henni neitt, þú situr uppi með hana, þá þarf að eiga mildi til fyrir sjálfan sig svo þú megir að ein­hverju leyti verða heill á ný.Þessi til­finn­ing kall­ast líka eft­ir­sjá og getur verið sár og ónota­leg og slær eig­in­lega út allt það sem aðrir geta gert þér. Að sjá eftir ein­hverju er erfitt en líka mann­legt og heil­brigt. Viður­eign­ina við eft­ir­sjána á maður því miður bara við sjálfan sig og þann þján­inga­veg þarf maður að ganga einn. Þetta er því miður líka ein­hvers­konar lög­mál.“

Í færslu sinni segir Steinunn Ólína aukreitis að fólk sé hrætt við að tjá sig um útskúf­un­ar­kúlt­ur­inn en bendir einnig á að það sé ekk­ert að ótt­ast en til alls að vinna.

„Það er engum hollt að sam­þykkja með þögn­inni að ráð­ist sé að öðrum með offorsi. Þegar þinn sið­ferði­legi komp­áss segir þér að eitt­hvað sé rangt þá áttu að bregð­ast við því og skoða nánar. Láttu aldrei banna þér að efast og hugsa sjálfur, því ef þú gerir það þá bælir þú þinn eigin anda og brýtur niður þitt sið­ferð­is­lega þrek. Það er mann­legt að finna til með öðru fólki; þeim sem eru klaufar, þeim sem mis­stíga sig og jafn­vel getur maður fundið til með þeim sem fremja glæpi. Það er eðli okkar og lög­málið um kær­leik­ann sem við kunnum engar vís­inda­legar skýr­ingar á.“

Segist hún auk­in­heldur hafa þá trú á mann­skepn­unni, að fáir ljúgi af ásetn­ingi til að gera öðrum illt en það ger­ist engu að síður.

„Ég held að í kyn­ferð­is­brota­málum sé það afar fátítt en við sjáum fjöl­mörg dæmi um slíkt í hinu mann­lega félagi, að fólk oln­bogar sig áfram á ann­ara kostnað vegna þess að það er skelf­ingu lostið. Ég sam­þykki ekki að það sé eðli­legur fórn­ar­kostn­aður bylt­inga að ein­hverjir liggi í valnum vegna áfell­is­dóma sem ekki er hirt um að kanna hvort stand­ast. Ég sam­þykki ekki að núna sé kom­inn tími til að karl­menn þjá­ist svo­lítið vegna alda­langrar þján­ingar kvenna. Ég vil ekki að neinn þjá­ist að ósekju. Ég sam­þykki ekki að frelsi ein­stak­lings­ins jafn­gildi leyfi til að traðka annað fólk niður í svaðið. Það eru til allrar ham­ingju lang­flestir sam­mála mér.“

Steinunn telur að sú reiði og heift sem hún hefur fundið fyrir eftir síð­ustu skrif sín, sé rann­sókn­ar­efni.

„Skoðanir mínar þykja aft­ur­haldsamar, meið­andi og gam­al­dags, ég er mið­aldra kona sem skilur ekki neitt og hef enga reynslu sem mark er á tak­andi. Ég er vænd um við­halda nauðg­un­ar­kúltúr og vera ger­enda­sleikja.

Reiðin, heiftin og dóm­harkan sem kemur fram í skrifum margra er rann­sókn­ar­verð og lýsir djúpri van­líðan og sárs­auka. Ég finn til með því fólki. Ég hef dálitla reynslu af því hversu sjálfs­meið­andi það er að bregð­ast við af heift. Heiftin og offorsið færir manni því miður enga sátt, enga frið­þæg­ingu og kemur engu áleiðis, þvert á móti, ávinn­ing­ur­inn er eng­inn og maður lít­ils­virðir mest það sem maður ætti að ann­ast best. Sjálfan sig. Þetta er því miður líka lög­mál.“

Að lokum segir hún að þörf sé á sam­tali manna í millum.

„Kannski getur nátt­úran orðið okkar kirkja og sam­ein­ing­ar­afl því henni verðum við að lúta hvað sem öðru líður. Auð­mýktin sem því fylgir gæti reynst okkur happa­drjúg. Það hefur aldrei verið mik­il­væg­ara en nú að mann­kynið standi saman. Við verðum að geta talað saman, sett okkur í ann­ara spor og unnið að úrbótum okkur öllum til handa. Hér er mikið í húfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi