Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sólveig segist aldrei hafa fengið vinnufrið: „Verkefni mitt var einfaldlega ekki tekið alvarlega.“

Sólveig segist aldrei hafa fengið vinnufrið: „Verkefni mitt var einfaldlega ekki tekið alvarlega.“
Sólveig Anna Jóns­dóttir.

„Á skrif­stofum Eflingar var það aldrei við­ur­kennt að ég væri, sökum þess að ég var kjörin af félags­fólki Eflingar, með umboð til að vekja sof­andi ris­ann sem félagið var og breyta því í bar­áttuma­sk­ín­una sem það þurfti að verða.

Þurfti að verða vegna þeirra óboð­legu efna­hags­legu, félags­legu og vinnu­staða-legu aðstæðna sem verka og lág­launa­fólki er boðið upp á, án þess að við heyrðum nokkru sinni í þeim sem þó þáðu góð laun frá okkur og höfðu allt til alls, lokuð inní ein­hvers­konar skrif­stofu­virki, aftengd efna­hags­legum veru­leika þeirra sem greiddu félags­gjöldin.“

Svo segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, frá­far­andi for­maður Eflingar, í nýrri til­kynn­ingu sem hún rit­aði á Facebook-síðu sína í dag.

Sólveig Anna hefur ekki viljað tala við fjöl­miðla, þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir. Hún hafn­aði til að mynda boði í Kast­ljós­þátt gær­kvölds­ins.

Í hennar stað var það Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Eflingar, sem mætti í þátt­inn og ræddi þá stöðu sem upp er komin hjá Eflingu og brott­hvarf Sól­veigar Önnu úr for­manns­stólnum.

Vildi Viðar þar meðal ann­ars meina að starfs­fólk Eflingar héldi félag­inu í gísl­ingu og að frá­sagnir þeirra af eitr­uðu and­rúms­lofti á vinnu­staðnum ættu ekki við rök að styðj­ast.

„Það var aldrei við­ur­kennt að ég hefði umboð frá félags­fólki eftir kosn­ingar sem ég og félagar mínir unnum með algjörum yfir­burðum (þrátt fyrir að skrif­stofa félags­ins gerði allt til að koma í veg fyrir það, m.a. með því að starfs­fólk skrif­stof­unnar sagði við þau sem komin voru til að kjósa að ég væri „klikkuð kerl­ing“ og „snar­biluð“) til að umbreyta þeirri hörmu­legu þjón­ustu sem félags­fólki var boðið uppá (t.d. aldrei nokkur til­raun gerð til að koma til móts við allt aðflutta verka­fólkið, sem þó eru helm­ingur félags­fólks) og koma henni í mann­sæm­andi horf.“

Sólveig Anna segir að sökum þess að það hafi ekki feng­ist við­ur­kennt að staða verka- og lág­launa­fólks væri afar slæm og „ólíð­andi“, hafi ekki verið skiln­ingur á því að hún þyrfti að fá „ein­hvers­konar vinnu­frið.“

„Verkefni mitt var ein­fald­lega ekki tekið alvar­lega. Mig langar að nefna hér eitt agn­ar­lítið dæmi um það furðu­lega og á end­anum óbæri­lega við­mót sem ég þurfti að búa við: Einn af þeim „glæpum“ sem ég framdi á skrif­stof­unni var sá að þegar brjálað var að gera hjá mér og ekki nógu margir klukku­tímar í sól­ar­hringnum til að sinna öllu, borð­aði ég hádeg­is­mat inn á skrif­stofu minni svo að sá tími nýtt­ist einnig til vinnu.

Þegar ég frétti af því að þetta væri illa séð og tekið sem enn ein sönnun á því hve ömur­leg ég væri brást ég strax við og reyndi að fremja þennan glæp aldrei aftur. Þetta er aðeins eitt dæmi um það skiln­ings­leysi og virð­ing­ar­leysi sem ég mætti.“

Sólveig Anna vill meina að þegar hún hafi ávarpað starfs­fólk á skrif­stofu Eflingar síð­asta föstu­dags­morgun og beðið þau um að lið­sinna henni hafi hún í raun verið að biðja um ein­hvers­konar vinnu­frið.

„Vinnu­frið­inn sem aldrei hefur feng­ist við­ur­kennt að ég þyrfti og ætti rétt á.

Frið til að geta haldið áfram bar­áttu og starfi mínu með ómissandi lág­launa­konum í umönn­un­ar­störfum.

Frið til að berj­ast fyrir því að stytt­ing vinnu­vik­unnar væri ekki notuð til að fokka enn meira með verka­fólk hjá hinu opin­bera (síð­ustu fregnir herma að nú eigi að fara í að „end­ur­skoða“ stytt­ingu með það fyrir augum að hafa hana af fólk­inu sökum þess að hún er svo kostn­að­ar­söm).

Frið til að halda áfram að berj­ast fyrir því að launa­þjófn­aður verði upp­rættur.

Frið til að standa með og berj­ast við hlið trún­að­ar­manns Efl­ing­ar­fé­laga á Reykja­vík­ur­flug­velli í hennar stóru og mik­il­vægu bar­áttu fyrir því að grund­vall­ar­rétt­indi vinnu­aflsins séu virt.

Frið til að und­ir­búa það sem í vændum er, kjara­samn­ings­við­ræður á almenna vinnu­mark­aðnum, en auð­valds­öflin eru þegar farin að segja hátt og skýrt hvar og hvenær sem er að engar hækk­anir skuli koma til vinnu­aflsins, sökum þess að það sé þegar svo stríð­alið. Og svo mætti áfram telja.“

„Til að geta und­ir­búið og leitt stétta­bar­áttu verka og lág­launa­fólks í Eflingu, til að geta gert það sem ég var kjörin til að gera, þurfti ég vinnu­frið á vinnu­stað mínum. Ég bað starfs­fólk í fullri ein­lægni um að veita mér hann.

Þeirri beiðni var afdrátt­ar­laust hafnað; her­ferðin inná vinnu­staðnum, byggð á ofstæki og andúð í minn garð, skyldi halda áfram, með engan endi í sjón­máli. Því fór sem fór,“ segir Sólveig Anna að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi