Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hún vildi þóknast elskhuga sínum: Drekkti dóttur sinni í vatnsfötu

Hún vildi þóknast elskhuga sínum: Drekkti dóttur sinni í vatnsfötu
Denise Labbe Ást­mað­ur­inn hélt henni í helj­ar­g­reipum.

Denise Labbe fædd­ist í París í Frakk­landi árið 1926. Lítið er vitað um hennar hagi á veg­ferð hennar til full­orð­ins ára, en þó ljóst að hún varð mun­að­ar­laus þrettán ára að aldri. Þaðan í frá þurfti hún að sjá sjálfri sér far­borða og ku hafa lagt hart að sér til að öðl­ast þokka­lega til­veru.
Rétt fyrir þrí­tugt, árið 1954, hitti Denise karl­mann að nafni Jacques Algarron í Rennes. Jacques þessi var þremur árum yngri en Denise og stúd­er­aði heim­speki. Hann las af áfergju verk Friedrichs Nietzsche og mögu­lega hafði slegið eitt­hvað saman hjá honum, því hann áleit sig vera gott dæmi um ofur­menni hins þekkta rit­höf­undar.

Áður en Denise hitti Jacques hafði hún átt í sam­bandi við aðra karl­menn og með einum þeirra eign­að­ist hún dóttur, Catherine, sem var tveggja ára þegar þarna var komið sögu. Denise, sem hafði skapað sér ánægju- og ham­ingju­ríkt líf, hreifst af þessum heim­spekinema og sú hrifn­ing átti eftir að hafa sorg­legar afleið­ingar.

Ofurmenni – ofurpar

Sem fyrr segir virt­ist Jacques hafa sann­færst um að hann væri ofur­menni Nietzsches. Fór Denise ekki var­hluta af þeirri rang­hug­mynd því Jacques bætti um betur og ákvað þau væru ofurpar.

Denise Labbe og Jacques Algarron Samband þeirra var stutt en afdrifa­ríkt.

Hvað sem því leið var Jacques einnig þeirrar skoð­unar að Denise þyrfti að sanna sig gagn­vart honum, einnig að hún væri öllum öðrum konum æðri. Síðast en ekki síst þurfti hún að sýna að hún sjálf væri verð ástar hans og sam­bands þeirra.
Nú, Denise stóð frammi fyrir ærnu og fram­andi verki, en ástin á til að svipta fólk glór­unni eins og dæmin sanna.

Neydd til kynmaka við ókunnuga

Ekki aðeins þurfti Denise að sanna tryggð sína og tak­marka­lausa ást til Jacques, því hann mun hafa neytt hana til kyn­maka við ókunn­uga menn og í kjöl­farið þess þurfti hún að biðja hann afsök­unar.

Ofur­menni Jacques áleit sig birt­ing­ar­mynd ofur­mennis Nietzsches.

Brenglun Jacques átti eftir að taka á sig enn þá alvar­legri mynd. Þannig var mál með vexti að hann hafði lesið frá­sögn um móður sem hafði ákveðið að fyr­ir­fara barni sínu því hún var í sam­bandi með manni, en barnið var ávöxtur ann­ars sam­bands.
Jacques klif­aði á þess­ari frá­sögn við hvert tæki­færi sem gafst og hug­myndin skaut rótum í huga Denise. Jacques lagði sín lóð á vog­ar­skál­arnar með því að hrein­lega að krefj­ast þess af Denise að hún myrti dóttur sína.

Fyrsta tilraun

Denise ákvað að gera sem Jacques bauð. Fyrsta til­raun hennar til að myrða Catherine tókst ekki sem skyldi. Sögum ber ekki saman um hvort Denise var trufluð við verkn­að­inn eða hvort móð­ur­eðlið hefði orðið yfir­þyrm­andi.
Í það minnsta varð ekki úr því að hún fleygði Catherine út um glugga heim­ilis þeirra, dag­inn þann. Denise var þá í öngum sínum vegna ótta um að hún myndi glata Jacques ef hún hlýddi ekki fyr­ir­mælum hans og kæmi dóttur sinni fyrir katt­ar­nef.
Því varð þessi til­raun Denise aðeins sú fyrsta af þremur.

Björgun á síðustu stundu

Þrýst­ing­ur­inn á Denise jókst, senni­lega hvort tveggja af hálfu Jacques og hræðslu hennar um að hann yfir­gæfi hana. Í það minnsta gerði hún aðra til­raun og mátti litlu muna að sú til­raun tæk­ist.
Denise fleygði dóttur sinni í síki, en fékk bak­þanka strax í kjöl­farið því í raun elskaði hún dóttur sína tak­marka­lítið. Denise hljóp eftir hjálp og á þess­ari ögur­stundu tókst ókunn­ugum veg­far­anda að draga Catherine upp á sík­is­bakk­ann.
Denise var á milli steins og sleggju og innra með henni tók­ust á þörfin fyrir að þókn­ast Jacques og ást hennar til dóttur sinnar. Eitthvað varð undan að láta.

Allt er þegar þrennt er

Þriðja til­raun Denise til að þókn­ast ást­manni sínum varð einnig sú síð­asta. Þann 8. nóv­em­ber drekkti Denise dóttur sinni í vatns­fötu og síðan sendi hún Jacques sím­skeyti til að upp­lýsa hann um að verkið væri unnið; hvort hún væri þá ekki verð ástar hans?

Vatns­fatan Teikning af dóm­ar­anum í mál­inu með vatns­föt­una sem Denise not­aði.

Hver við­brögð Jacques við sím­skeyt­inu voru er ekki vitað, en Denise var hand­tekin þennan sama dag og sagði lög­regl­unni alla sól­ar­sög­una. Réttað var yfir Denise í Blois í maí árið 1955.

Í fylgd lög­reglu Denise var hand­tekin sama dag og hún framdi morðið.

Það var mat dóm­stóls­ins að aðstæður þessa harm­leiks væru mild­andi hvað Denise áhrærði, en hún fékk lífs­tíð­ar­dóm árið 1956.
Jacques fékk 20 ára dóm, sem skyldi afplán­aður í þrælk­un­ar­vinnu, fyrir að hafa rekið Denise til verks­ins.

Smelltu hér til að lesa brak­andi feskt helg­ar­blaðið eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi