Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eitt flottasta brugghús landsins – Hovdenak Distillery

Eitt flottasta brugghús landsins – Hovdenak Distillery

Hákon Freyr Freysson og Brynja Hjalta­lín eru fólkið á bak við eitt flottasta brugg­hús lands­ins, Hovdenak Distill­ery.


Fyr­ir­tækið var stofnað 11. októ­ber árið 2018.
Tæpu ári síðar, í apríl 2019, fengu þau hús­næði í Hafn­ar­firði og þar er verk­smiðjan nú.
Húsnæðið þurftu þau að taka í gegn, en það vafð­ist ekki fyrir Hákoni, sem er sann­kall­aður þús­und­þjala­smiður.

Þá segir Brynja frá því að Hákon hiki ein­fald­lega ekki þegar hann fær góðar hug­myndir. Hvað þá þegar þarf að laga eða hrinda ein­hverju í fram­kvæmd.

„Hann fær oft hug­mynd og svo sé ég hann bara nokkrum klukku­stundum síðar,“ segir Brynja og glottir.
Þá er Hákon oftar en ekki búin að fram­kvæma það sem hann ætl­aði að taka sér fyrir hendur og alltaf er vandað til verka.
Allar vélar, tæki og brugg­húsið í heild sinni er hannað og sett upp af eig­end­unum.
Hovdenak Distill­ery er með full­komn­ari brugg­húsum lands­ins og margir góðir vinir þeirra komu að verk­efn­inu.
Þá hefur Hákon fengið beiðnir um að smíða og hanna brugg­hús erlendis.


Fram­kvæmda­gleði Hákonar hefur heldur betur borgað sig því Hovdenak Distill­ery fær hver verð­launin á fætur öðrum, og það á stuttum tíma.

Eftir nokk­urra ára til­raunir kom fyrsta og hin full­komna vara í ljós, Stuðla­berg gin.

Prufuflaska af Stuðla­bergi var send til meist­ar­ans Henriks Hammer í Danmörku til smökk­unar, þar sem hún var fljót­lega sam­þykkt, og byrj­aði þá bolt­inn að rúlla.
Hákon Freyr hafði fram­tíð­ar­sýn og sá tæki­færi til að nýta þekk­ingu sína og reynslu í vín­fram­leiðslu og rekstri.
Því varð til sá draumur, að hanna eigin vöru og fram­leiða, að veru­leika og gott betur en það.

Í ágúst 2020 hlaut Stuðla­berg gin gull­verð­laun í World Gin Awards, sem er ein stærsta keppni sinnar teg­undar í heim­inum í dag. Stuðla­berg fékk einnig gull­verð­laun í Sviss og hlaut 94 stig af 100 mögu­legum í International Drinks Specialists. Þar með er Stuðla­berg gin mest verð­laun­aða gin sem fram­leitt er á Íslandi í dag.

Þá vann Loki vodka til gull­verð­launa í Sviss fyrr á árinu í keppn­inni International Drinks Specialists. Loki fékk frá­bæra umsögn og 95 stig af 100 mögu­legum.

Rökkvi er kaffi­líkjör­inn þeirra, sem unn­inn er úr hágæða kaffi­baunum frá Te og kaffi. Eins og þeim einum er lagið unnu þau til enn einna verð­laun­anna og hreppti Rökkvi gull­verð­laun í heims­meist­ara­keppni líkjöra fyrr á árinu.

Síðast en ekki síst fékk Hvít­serkur romm 94 stig af 100 mögu­legum frá International Drinks Specialists. Jafn­gilda 94 stig gull­verð­launum.
Dóm­nefnd­ina skipa sér­fræð­ingar víðs vegar að úr heim­inum.

Vörur Hovdenak Distill­ery hafa ekki bara vakið athygli vegna gæða og verð­launa.
Ljóst er að ekki síður hefur verið vandað til verka þegar kemur að hönnun, útliti og ramm­ís­lenskum heitum var­anna.


Vörurnar má nú finna víðs vegar um allan heim.
Rökkva kaffi­líkjör og Loka má til dæmis finna um borð í franska lúx­us­skemmti­ferða­skip­inu Ponant.
Þá hafa þau hjón fengið heim­sókn frá Frökk­unum oftar en einu sinni og hefur orðið til gott sam­starf þeirra á milli.

Vörurnar má einnig nota í bakstur.

Rökkvi var gríð­ar­lega vin­sæll fyrir síð­ustu jól, sér­stak­lega í bakstur. Þá þótti þeim gríð­ar­lega vænt um að fá fólk í heim­sókn í Hafn­ar­fjörð­inn.
„Þá komu sumir með sörur til okkar að leyfa okkur að smakka,“ segir Hákon og bætir við að Rökkvi hafi verið not­aður í allar mögu­legar upp­skriftir.

Þau Hákon og Brynja hafa frá ýmsu skemmti­legu að segja. Allt frá því hvernig hug­myndin að Hovdenak Distill­ery varð til og brugg­un­inni að fróð­leik ýmiss konar um þetta allt saman.
Þessi hlýju og skemmti­legu hjón hafa í nógu að snú­ast en einnig hafa þau tekið á móti litlum hópum til sín í bruggverk­smiðj­una. Þar fær fólk að smakka á fram­leiðsl­unni og, að sjálf­sögðu, heyra sögur.
Aðstaðan er hin glæsi­leg­asta og sjón er svo sann­ar­lega sögu rík­ari.

Hovdenak Distill­ery er nú í sam­starfi með þeim Erni Erlings­syni og Grétari Matth­í­assyni sem eru að hefja nýja mat­reiðslu­þætti á vef Mannlífs í dag. Bera þætt­irnir nafnið Þarf alltaf að vera vín ?
Þá hefur þeim tek­ist ein­stak­lega vel að breyta týpísku mat­reiðslu­þáttum sem allir þekkja í afslappað og nútíma­legt skemmti­efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni