Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Niðurstaðan í máli Jóns Baldvins: „Dómurinn er vel rökstuddur og lögfræðilega réttur“

Niðurstaðan í máli Jóns Baldvins: „Dómurinn er vel rökstuddur og lögfræðilega réttur“
Jón Baldvin Hanni­bals­son|

Jón Baldvin Hanni­bals­son, fyrr­ver­andi ráð­herra og sendi­herra, var í morgun sýkn­aður í því sem hann sjálfur hefur kallað „Rassa­stroku­málið“. Var hann sak­aður um að hafa káfað á rassi Carmenar Jóhanns­dóttur sem stödd var á heim­ili Jóns og Bryn­dísar konu hans, á Spáni sum­arið 2018, ásamt móður sinni og tveimur öðrum gestum.

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, lög­fræð­ingur Jóns Baldvins í mál­inu, sagð­ist í sam­tali við Mannlíf vera ánægður með dóm­inn. „Dómurinn er vel rök­studdur og réttur.“ Aðspurður um lík­urnar á áfrýjun ákæru­valds­ins í mál­inu segir Vil­hjálmur það ekki vera hans að svara. „Ég tel að dóm­ur­inn sé vel rök­studdur og lög­fræði­lega réttur og sé enga ástæðu fyrir því að þess­ari nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms verði áfrýjað. En ákæru­valdið á loka­orð um það.“

Hér fyrir neðan má lesa nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms:

„Niðurstaða Ákærði neitar sök.

Lögð var fram kæra á hendur ákærða f.h. Carmenar í mars 2019 eða rúmum átta mán­uðum eftir atburð­inn sem í ákæru greinir og kvað Carmen ástæð­una þá að hún hefði ekki verið viss hvort hún ætti að leita til lög­reglu á Spáni eða á Íslandi. 

Vitnið Laufey Ósk Arn­órs­dóttir hafði uppi ásak­anir á hendur ákærða við borð­haldið, eins og rakið var, en brota­þol­inn Carmen gerði það fyrst við skýrslu­töku hjá lög­regl­unni 19. mars 2019, eða níu mán­uðum eftir atburð­inn sem í ákæru greinir. Vitnið Carmen lýsti atburðum svo að hún hefði verið að hella í vín­glös sem öll voru á einum stað á borð­inu og staðið við hægri hlið ákærða er hann strauk á henni rass­inn en hún hefði klæðst kjól. Hún hefði sest eftir þetta og síðar farið niður, eins og rakið var. 

Vitnið Laufey Osk, móðir Carmenar, lýsti atburðum svo að þegar allir voru sestir til borðs hefði Carmen staðið upp, sótt vín­flösku, og er hún stóð hægra megin við ákærða að skenkja í glösin hefði hann teygt hönd­ina upp eftir lær­inu á Carmen, og stað­festi hún að atburðir hefðu verið eins og hún greindi frá hjá lög­reglu 10. april 2019, eins og áður var rakið, og á sama tíma og Carmen hefði teygt sig yfir borðið til að hella í glasið hjá vitn­inu. Spurð hvort Carmen hefði verið að hella í glas vitn­is­ins kvaðst hún ekki vera viss hvort verið var að hella í glasið hennar eða í glas Hugrúnar Auðar. Nánar spurð um lýs­ingu á því hvernig ákærði strauk Carmen kvaðst vitnið ekki geta það, hún myndi það ekki, en hún kvað ákærða hafa strokið rass­inn upp og niður og hana minnti að Carmen hefði verið í buxum. Síðar í vitn­is­burð­inum fyrir dómi sagði vitnið Laufey Ósk að Carmen hefði ekki verið að hella í glas vitn­is­ins er atburð­ur­inn átti sér stað en hún kynni að hafa verið nýbúin að gera það. Nánar spurð um þetta kvaðst vitnið halda sig við vitn­is­burð sinn hjá lög­reglu, hún myndi þetta ekki svo glöggt í dag. 

Vitnið Laufey Ósk lýsti atburðum nokkuð á annan veg hjá lög­reglu, eins og rakið var, og fyrir dóm­inum kvaðst hún halda sig við vitn­is­burð­inn hjá lög­reglu. 

Vitnið Bryndís Schram, eig­in­kona ákærða, kvað atburð­inn sem í ákæru greinir ekki hafa átt sér stað. 

Vitnið Hugrún Auður Jóns­dóttir kvaðst reikna með því að hafa séð það hefði ákærði við­haft hátt­sem­ina sem honum er gefin að sök en hún hefði snúið sér að Carmen er hún kom með mat­inn á borðið og ekk­ert hefði byrgt henni sýn. Af vitn­is­burði hennar fyrir dómi og hjá lög­reglu má ráða að hún hafi ekki séð ákærða við­hafa hátt­sem­ina sem um ræðir. 

Ákærði og fjögur vitni eru til frá­sagnar um það sem gerð­ist undir borð­hald­inu. Ákærði hefur frá upp­hafi neitað sök og fær fram­burður hans stoð í vitn­is­burði Bryn­dísar og Hugrúnar Auðar, eins og rakið hefur verið. Ráða má af vitn­is­burði Lauf­eyjar Óskar fyrir dómi að hún muni atburði ekki vel og kvaðst hún standa við vitn­is­burð­inn sem hún gaf hjá lög­reglu en þar er atburðum lýst á nokkuð annan hátt en vitnið Carmen gerir. Vitn­is­burður þess­ara tveggja vitna er um sumt ósam­rým­an­legur, t.d. um það hvernig þær lýsa hátt­semi ákærða o.fl. Vísast til vitn­is­burðar þeirra til skýr­ingar á þessu áliti dóms­ins. 

Við mat á sönn­un­ar­gildi vitn­is­burðar Bryn­dísar, eig­in­konu ákærða, og Lauf­eyjar Óskar, móður brota­þola, er litið til tengsla þess­ara vitna við ákærða ann­ars vegar og brota­þola hins vegar, sbr. 126. gr. laga nr. 88/2008, um með­ferð saka­mála. 

Vitn­is­burður Lauf­eyjar Óskar er óstöð­ugur auk þess sem hún man atburði ekki glöggt í dag, eins og hún bar, og er vitn­is­burður hennar um sumt ósam­rým­an­legur vitn­is­burði Carmenar, eins og rakið var. Vitn­is­burður Carmenar fær því hvorki þá stoð sem þarf af öðrum vitn­is­burði né af öðrum gögnum máls­ins til að unnt sé að leggja hann til grund­vallar nið­ur­stöð­unni, gegn neitun ákærða, en neitun hans fær stoð í vitn­is­burði Bryn­dísar og Hugrúnar Auðar. 

Samkvæmt öllu fram­an­rit­uðu er ósannað, gegn neitun ákærða, að hann hafi framið hátt­sem­ina sem í ákæru greinir og ber að sýkna hann. 

Visa ber miska­bóta­kröfu Carmenar Jóhanns­dóttur frá dómi, sbr. 2. mgr. 176. gr. laga nr. 88/2008. 

Allur sak­ar­kostn­aður greið­ist úr rík­is­sjóði, þ.m.t. 683.240 króna rétt­ar­gæslu­þóknun

Ólafar Heiðu Guð­munds­dóttur lög­manns, skip­aðs rétt­ar­gæslu­manns Carmenar, og 1.884.800 króna málsvarn­ar­laun Vil­hjálms Hans Vil­hjálms­sonar lög­manns. Tekið hefur verið til­lit til virð­is­auka­skatts við ákvörðun þókn­unar lög­manna. 

Dröfn Kærne­sted sak­sókn­ari flutti málið fyrir ákæru­valdið. Guðjón St. Mart­eins­son hér­aðs­dóm­ari kveður upp dóm­inn. 

Dómsorð Ákærði, Jón Baldvin Hanni­bals­son, er sýkn­aður af kröfum ákæru­valds­ins. Miska­bóta­kröfu Carmenar Jóhanns­dóttur er vísað frá dómi. 

Allur sak­ar­kostn­aður greið­ist úr rík­is­sjóði, þ.m.t. 683.240 króna rétta­gæslu­þóknun Ólafar Heiðu Guð­munds­dóttur lög­manns og 1.884.800 króna málsvarn­ar­laun Vil­hjálms Hans Vil­hjálms­sonar lög­manns. Tekið hefur verið til­lit til virð­is­auka­skatts við ákvörðun þókn­unar lög­manna. 

Guðjón St. Mart­eins­son 

Rétt end­ur­rit stað­festir: Hér­aðs­dómur Reykja­víkur, 8. nóv­em­ber 2021“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi