Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jón Baldvin Hannibalsson sýknaður: „Á sama tíma er ég með óbragð í munninum“

Jón Baldvin Hannibalsson sýknaður: „Á sama tíma er ég með óbragð í munninum“
Jón Baldvin Hanni­bals­son

„Þetta er auð­vitað léttir. Á sama tíma er ég með óbragð í munn­inum yfir því að þetta skuli yfir­leitt hafa þótt vera til­efni til form­legrar kæru. Það er svo fárán­legt. En alla­vega; rétt­læt­inu var full­nægt að lokum. Þetta er búið að taka þrjú og hálft ár,“ segir Jón Baldvin Hanni­als­son í við­tali við Mannlíf en Frétta­blaðið greindi frá því að hann hafi í morgun verið sýkn­aður í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur af ákæru fyrir kyn­ferðs­lega áreitni. Málinu hafði áður verið vísað frá hér­aðs­dómi en Lands­réttur úrskurð­aði svo í mars að Hér­aðs­dómur Reykja­víkur ætti að taka málið upp aftur.

Ákæran sner­ist um að ráð­herr­ann og sendi­herr­ann fyrr­ver­andi hafi strokið rass Carmenar Jóhanns­dóttur á heim­ili hans á Spáni árið 2018. „Sam­skipti mín við Carmen eru engin, ég þekki hana ekki nokkurn skap­aðan hlut,“ segir Jón Baldvin við blaða­mann Mannlífs.“ Hefur hann aldrei hitt hana? „Hitt hana? Það má vera að ég hafi ein­hvern tím­ann séð hana til­sýndar. En ég minn­ist þess ekki að hafa átt við hana nein orða­skipti um eitt eða neitt. Carmen hefur sjálf lýst því yfir að hún sé í for­svari fyrir hóp­inn í kringum Aldísi, dóttur mína. Hún hefur við­ur­kennt það sjálf. Hún lýsti því yfir í við­tali við lög­mann minn og afhjúpaði þar með þau ósann­indi sín að hún hefði engin sam­skipti við Aldísi. Nú er alveg upp­lýst að hún er í for­svari fyrir þann hóp.“

Það má vera að ég hafi ein­hvern tím­ann séð hana til­sýndar.

Þetta þarfnast skýringa

Jón Baldvin segir að málið hafi vofað yfir sér og fjöl­skyldu sinni í allan þennan tíma; þrjú og hálft ár. „Ég hafði það sterk­lega á til­finn­ing­unni eftir að málið kom upp að þetta hafi verið sam­an­tekin ráð frá upp­hafi og svið­sett sem fjand­sam­leg inn­rás inn á okkar heim­ili. Það vildu fáir trúa því og ég skil það vel. Þetta er svo ótrú­legt. Þetta er svo ótrú­legur óheið­ar­leiki og óheil­indi að það er eig­in­lega eðli­legt að fólki trúi því ekki. Þetta er ósenni­leg sam­sær­is­kenn­ing en hún er nú stað­fest. Og hún er rétt. Þetta eru ofsóknir.

Það er ákæru­vald­inu til hábor­innar skammar og það er hneisa fyrir rétt­ar­farið á Íslandi að ákæru­valdið í þessu til­viki skuli brjóta eigin lög sem kveða á um það að þeir kæra ekki að lok­inni rann­sókn nema að yfir­gnæf­andi líkur séu á sak­fell­inu fyrir refsi­verða hátt­semi. Allir mála­vextir í þessu máli frá upp­hafi vega eftir að yfir­heyrslur lágu fyrir voru um það að þarna hafði ekk­ert sak­næmt gerst. Og það gat ekki hafa gerst. Ef dómur dóm­ar­ans er les­inn þá byggir hann aðal­lega á því að fram­burður kær­anda, Carmenar, og aðal­vitnis ákæru­valds­ins, Laufeyar Óskar Arn­órs­dóttur, móður hennar, ber bara ekki saman í grund­vall­ar­at­riðum. Hann er ótrú­verð­ugur. Þetta lá fyrir frá upp­hafi og það var ekk­ert til­efni til ákæru.

Þetta þarfn­ast skýr­inga. Hvernig stendur á því að ákæru­valdið bregður út frá grund­vall­ar­reglu sinni sem er lög­fest í þessu til­viki? Er það virki­lega svo að við eigum að trúa því að sú til­viljun vænt­an­lega að allir þeir sem að mál­inu koma eru konur ráði för? Hand­hafar ákæru­valds­ins eru vara­sak­sókn­ar­inn, Anna Barbara Andra­dóttir, vara­sak­sókn­ari, Dröfn Kjærne­sted, og  þriðji sak­sókn­ar­inn, Kolbrún Bene­dikts­dóttir. Svo er það full­trúi lög­reglu, Kristín Ein­ars­dóttir. Eigum við virki­lega að trúa því að þær láti undan þrýst­ingi almenn­ings­á­lits til að víkja frá grund­vall­ar­reglum vegna þeirra stað­reyndar að þetta eru allt saman konur? Var það virki­lega þeirra ætlan að setja þetta upp sem ein­hvers konar próf­mál í aðför­inni að karla­veld­inu? Þótti þetta við hæfi þar sem ég átti þá að leika hlut­verk hins mikla valda­manns sem var að mis­nota vald sitt gegn minni­máttar?

Er það virki­lega svo að við eigum að trúa því að sú til­viljun vænt­an­lega að allir þeir sem að mál­inu koma eru konur ráði för?

Þetta er kenn­ingin þó hún sé að vísu alröng. Ég er eng­inn valda­maður og hef ekki verið það; það er meira en ald­ar­fjórð­ungur frá því ég yfir­gaf póli­tík en ég er engu að síður fyrrum ráð­herra og sendi­herra. Eigum við virki­lega að trúa því að rétt­lætið eigi að vera kyn­bundið með þessum hætti en ekki taka mið af sann­leiks­gildi og sönn­un­ar­byrði? Það er ótrú­legt en við höfum enga skýr­ingu. Hvernig stendur á því að þetta gerð­ist? Voru þetta póli­tískar ofsóknir?  Við afhjúp­uðum frá upp­hafi þennan falska mál­flutn­ing sem stóðst ekki. Mér finnst það vera virð­ing­ar­vert að dóm­ar­inn í þessu máli lét stað­reyndir ráða og hann kvað upp sinn dóm með vísan til þess að fram­burður ákæru­valds­ins var allur í skötu­líki; hann byggði ekki á stað­reyndum heldur ásök­unum sem voru úr lausu lofti gripnar.

Ég ætla bara að vona að ákæru­valdið – þeir sem stjórna rétt­ar­fari á Íslandi – sjái sig um hönd og láti sér það að kenn­ingu verða að reyna að halda uppi rétt­ar­ríki á Íslandi sem byggir á trausti almenn­ings og óháðum dóm­stólum og að ákæru­valdið verði ekki mis­notað í póli­tískrum til­gangi í tómri vileysu.“

Með því viðbjóðslegasta

Jón Baldvin var í póli­tík í ára­tugi og voru þá gerðar að honum margar atlögur tengdar starf­inu en hann segir að ásak­anir um kyn­ferð­is­lega áreitni sé með því við­bjóðs­leg­asta.

„Einu sinni var reynt að bera það á mig að ég hafi látið fjár­mála­ráðu­neytið kosta fimm­tugs­af­mæl­is­veislu Bryn­dísar Schram, kon­unnar minnar. Það tók 12 ár að kveða það niður í Hæsta­rétti með því að sanna að þetta væri hreinn til­bún­ingur og óhróður. Þetta er póli­tík.

En þessi mál varð­andi kyn­ferð­is­lega áreitni er það við­bjóðs­leg­asta vegna þess að þarna er verið að reyna að eyði­leggja orðstír, orð­spor og mann­orð; ekki bara mitt heldur allrar minnar fjöl­skyldu og þar með talið Bryn­dísar. Ég hef þykkan skráp og þoli ýmis­legt einmitt vegna minnar póli­tísku reynslu en þetta er búið að vera hel­víti fyrir kon­una mína. Þær mæðgur,  Carmen og Laufey, bjuggu það til að þær hefðu orðið fyrir ein­hverju áfalli út af ein­hverju sem ekki gerð­ist. Sú mann­eskja sem hefur þolað verst áfall af völdum þessa óhróð­urs er auð­vitað konan mín. Og það mun ég seint fyr­ir­gefa.

Ég hef þykkan skráp og þoli ýmis­legt einmitt vegna minnar póli­tísku reynslu en þetta er búið að vera hel­víti fyrir kon­una mína.

Þegar ég fór út úr póli­tík hataði ég engan mann og fyr­ir­gaf allt í ljósi þess að ég veit það ósköp vel af reynslu að póli­tík er stríð. Ég erfi ekk­ert slíkt við nokkurn mann. En ég segi það fullum fetum að ég fyr­ir­lít það fólk sem hefur reynt að færa sér í nyt fjöl­skyldu­harm­leik okkar, sem eru veik­indi elstu dóttur okkar, og gera sér það að féþúfu. Ég lít á það sem níð­ings­verk og mun aldrei fyr­ir­gefa. Þeir taki það til sín sem eiga það. Þetta hefur nátt­úr­lega spillt ævi­kvöld­inu. Þetta hefur eitrað lífið síð­ustu árin sem áttu að vera hið frið­sæla ævi­kvöld.“

Hvað hefur Jón Baldvin lært af þessu máli? „Að lengi skal mann­inn reyna. Að það eru ekki allir við­hlæj­endur vinir. Og það reynir á þegar sótt er að manni og reynt að svipta mann mann­orð­inu. Svo sé ég hverjir snúa við manni baki og hverjir standa með manni. Ég hef kynnst því hverjir eru vinir í raun og ég hef lært hvað heig­uls­skap­ur­inn er óskap­lega ríkur í fari fólks. Þótt fólk viti að um er að ræða ofsókn, sem byggir ekki á stað­reyndum, þá var ótti manna við það að verða bendl­aður við þetta ráð­andi. Heig­uls­háttur og ótti. Það er dap­ur­legt. Því að heig­uls­háttur er með allra vestu ódyggðum. Heig­uls­hátt­ur­inn endar eins og reynslan sýnir í sam­fé­lagi ótt­ans.“

Hafa vinir snúið baki við hjón­unum? „Vissu­lega en þeir sem eftir standa eru vinir í raun.“

Ég hef kynnst því hverjir eru vinir í raun og ég hef lært hvað heig­uls­skap­ur­inn er óskap­lega ríkur í fari fólks.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi