Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Blaðamaður á strippstað: „Í fantasíuveröld strippsins verður maður barn á ný“

Blaðamaður á strippstað: „Í fantasíuveröld strippsins verður maður barn á ný“

„Það er engin nýj­ung að fólk vilji greiða pen­inga fyrir að svala kyn­hvöt sinni, örva hana og bragð­bæta. En inn­reið ódul­inna við­skipta á íslenska kyn­lífs­mark­aðnum hefur vakið heift­ar­leg við­brögð og mikla umræðu sem ekki er aðeins háð í fjöl­miðlum, heldur nán­ast á hverju heim­ili. Eitt virð­ist þó alla jafna gleym­ast – að án kaup­enda væri eng­inn mark­aður. Hvaðan koma þessar hvatir og hvernig á að umgang­ast þær?“

Í júlí­mán­uði árið 2001, fyrir rétt rúmum tutt­ugu árum, birt­ist grein í Mannlífi. Greinin var skrifuð af Krist­jáni B. Jónassyni og fjall­aði um klám- og kyn­lífs­iðnað á Íslandi, sem og nekt­ar­dans. Orðin hér að ofan eru inn­gangur grein­ar­innar.

Hún hófst svo á eft­ir­far­andi hátt:

„Það er afar rólegt svona á mið­viku­dags­kvöldi og fáir í gryfj­unni við pall­inn. Túrist­arnir eru dug­leg­astir og rúlla doll­ara­seðl­unum upp í vöndul og veifa þeim framan við nefið á dökk­hærðri stelpu sem kynnt var á svið sem „Elvíra“. Það er tölu­vert meira við hana en píuna á undan, „Gínu“, sem gerði lítið meira en að dilla sér og hélt kannski fullá­kveðin fyrir það heilag­asta þegar hún brá sér úr brók­inni, það var ein­hvern veg­inn hvorki sið­látt né æsandi.

En Elvíra hefur eitt­hvað við sig, eitt­hvað í átt­ina að ákafa sem smitar þessa örfáu sem hafa tekið sér stöðu á gægju­bás­unum með okur­dýran bjór­inn og þennan sauðs­lega, ef ekki bein­línis sorg­lega svip sem virð­ist alltaf koma á karl­menn þegar þeir verða æstir innan um sér ókunna karl­menn.

Öllum er eilítið illt í mag­anum og það versnar þegar Elvíra skellir flötum lófa á rass­inn á sér svo smellur í. Meira að segja sól­brúnu leð­ur­jakka­menn­irnir sem svelgja í sig bjór, hlæja að ein­hverjum brönd­urum og tala í sím­ana sína á milli atriða hætta að skima eirð­ar­laust út í sal­inn smá­stund. Eitthvað í ætt við áhuga virð­ist vera að vakna. En svo fer Elvíra líka niður af pall­inum og þá er það búið; tími kom­inn til að lesa SMS-skila­boðin sín.“

Blaða­maður heldur áfram að lýsa aðstæðum inni á nekt­ar­dans­staðnum. Hann sýnir okkur jakka­fata­menn sem sitja saman með hóp af „syfju­legum nátt­fatap­ar­tí­stelpum“ dans­andi ofan í þeim.

Í grein­inni er talað um að það sé ákveð­inn lýð­ræð­is­legur bragur á við­skiptum sem þessum. Að þarna sé ekki farið í mann­grein­ar­á­lit. Hver sem þú ert, karl eða kona, getir þú komið inn á þennan stað og „notið þess að horfa á kvenskrokka og fengið áhuga, daður og ein­hvers konar blíðu­vott fyrir pen­inga“.

„Það skiptir engu máli hvað þessar nátt­fatap­ar­tí­stelpur gera við pen­ing­inn sem þær hirða upp af dans­gólf­inu. Það skiptir heldur engu máli hvort þær eru lista­menn eða hórur. Það sem skiptir máli er að hvort sem þær dansa fyrir einn eða marga, hvort sem þær bara dansa eða ganga alla leið eru þær á „mark­aði“,“ segir í grein­inni.

Forsíða grein­ar­innar í Mannlífi í júlí, 2001.

„Allt hold er hold“

Út frá þessum orðum fer blaða­maður að skoða þessi „við­skipti“ alfarið út frá mark­aðs­fræði­legu sjón­ar­horni. Framboði, eft­ir­spurn og svo fram­vegis.

Í því sam­hengi líkir hann saman hjóna­bandi og kyn­lífs­iðn­aði á eft­ir­far­andi hátt:

„Kynhvöt fólks er með­fædd hvöt sem allir hafa. Til að svala þess­ari hvöt „seljum“ við okkur á hjóna­bands- eða para­mark­að­inum, komumst að snöggsoðnu sam­komu­lagi við hinn aðil­ann (eða hina aðil­ana) um snöggsoðin kynni eða hættum þessu tákn­ræna vaf­stri og látum pen­ing­ana tala.

Séð frá þessum sjón­ar­hóli er engin sið­ferð­is­leg sér­staða fólgin í því að kaupa sér kyn­ferð­is­lega svölun. Munurinn á hjóna­bandi og fimm mín­útna „blóvdjobbi“ í myrkri einka­dans­klef­ans felst aðeins í greiðslu­miðl­inum og umfangi við­skipt­anna. Allt hold er hold, hverju nafni sem það nefn­ist.“

Máli sínu til stuðn­ings vísar blaða­mað­ur­inn í loka­rit­gerð hag­fræð­ings­ins Sól­mundar Ara Björns­sonar frá hag­fræði­deild Háskóla Íslands, sem þá var nýleg og bar heitið „Rannsókn á kyn­lífs- og hjóna­bands­mörk­uðum“.

Blaða­maður segir að hæg­lega megi skoða andóf íslenskra femínista gegn nekt­ar­stöðum sem „til­raun til að koma höggi á sam­keppn­is­að­ila“. Hann segir sömu­leiðis að öllum á þessum mark­aði beri saman um að pör séu álit­legur við­skipta­hópur og að þau séu í auknum mæli farin að róa frekar á mið kyn­lífs­mark­aða nekt­ar­stað­anna, heldur en að bæta fjöri í leiki sína með því að taka fólk á löpp á hefð­bundnum skemmti­stöðum. „Vændis- og nekt­ar­mark­að­ur­inn er betur skil­greindur, þarfir ljós­ari og fram­boð mark­viss­ara,“ segir í grein­inni.

Nekt­ar­dans­stað­ur­inn Strawberries. Mynd/skjá­skot RÚV

McDonald’s og vændi

Þegar greinin var skrifuð var enn þá bannað að stunda kyn­lífs­vinnu sér til við­ur­væris. Um það segir blaða­maður að það hljóti að vera hægt að berj­ast fyrir lög­leið­ingu vændis sem heið­virðrar starfs­greinar og líkir því við bar­átt­una fyrir því að fá frjálsar útvarps­stöðvar, bjór og McDonald’s hingað til lands.

McDonald’s já, sú var tíðin.

Í fram­hald­inu er áhuga­vert að lesa að blaða­maður fer að tala um lög­leið­ingu vændis út frá svip­uðum rök­semd­ar­færslum og gjarnan eru not­aðar til að tala um heima­til­búið klám og svo­kall­aðar „Only Fans“-síður í dag.

„Hvort sem horft er á vændi út frá mark­aðs­sjón­ar­miðum eða út frá sið­ferð­is­legum sjón­ar­miðum (þar sem dregið er í efa að vændi sé leið til að öðl­ast ánægju­legt og far­sælt líf) er núver­andi lög­gjöf óvið­un­andi. Á báðum víg­stöðvum verður í fram­tíð­inni barist fyrir að fá henni breytt (sú vinna er reyndar þegar hafin), þótt hvat­irnar fyrir áhug­anum eigi sér ólíkar rætur.“

Vel að merkja segir fólk sem vinnur í kyn­lífs­iðn­aði í gegnum Only Fans í dag, að hluti af því sem gengur upp í því reikn­ings­dæmi sé að það stjórni ferð­inni sjálft. Þessir ein­stak­lingar fram­leiða, leik­stýra og rukka fyrir eigið efni. Vissu­lega er ákveðið gjald sem rennur til mið­ils­ins, en þar er eng­inn sem stjórnar því efni sem við­kom­andi aðilar láta frá sér.

Líkir nektardansstöðum við Disneyland og kaupendum við börn

Nú kemur að væg­ast sagt athygl­is­verðum skrifum blaða­manns, hvar hann líkir nekt­ar­dans­stöðum við Dis­neyland þar sem komið er inn í „fantasíu­ver­öld stripps­ins“. Hann segir að sá sem gangi inn í þessa fantasíu­ver­öld verði barn á ný – „barn með kyn­hvöt“.

Hann segir að fyrir utan þessa ver­öld gildi það sama og fyrir utan Dis­neyland – þú þurfir að hlýða pabba og mömmu, þvo þér um hend­urnar, fara í skól­ann og læra heima. Fyrir innan blasi allt annar veru­leiki við:

„Fyrir innan þarf maður ekk­ert að gera nema borga til að láta sér líða vel með Mikka mús og Andrési. Nema hvað, þegar maður verður full­orð­inn heitir Mikki „Maika“ og Andrés „Andrea“ – báðar frá Eist­landi.“

Það þarf senni­lega ekki að hafa mörg orð um það hvað er athuga­vert við þessa for­dóma­fullu orð­ræðu – von­andi ekki, nú 20 árum síðar. Hún ætti að dæma sig sjálf.

Það er samt ef til vill athygl­is­vert að blaða­maður hafi talað með þessum hætti upp úr alda­mótum – 20 ár eru kannski ekk­ert svo voða­lega langur tími. Eða hvað?

Út frá þessu fer blaða­mað­ur­inn svo að velta fyrir sér sið­ferði.

„Er þetta gott mál eða slæmt? Er hægt að stunda vændi af því að maður hefur „valið það“ eða er vændi alltaf nauð?“

„Nekt­ar­dans­staðir – þar sem draumar ræt­ast“? Mynd/skjá­skot RÚV

„ISO-staðlar hórerísins“

Síðar í grein­inni segir:

„Kyn­lífs­mark­að­ur­inn býr til, heldur við og breiðir út fantasíur sem enda sem ISO-staðlar hórer­ís­ins. Fantasíur eru alls ekki einka­mál, þvert á móti, þær eru sam­fé­lags­leg afurð, menn­ing­ar­legt fyr­ir­bæri sem myndar uppi­stöð­una í vöru­lista hvatanna þegar fjár­sterkir aðilar fara á stúf­ana með gull­kortin og seðla­búntin til að sjá dill­urnar í sér raun­ger­ast fyrir töfra­á­hrif pen­ing­anna.

[…] það gleym­ist líka allt of oft að þegar nauð, kúgun og þvingun kemur til sög­unnar hættir kyn­líf að vera kyn­líf, en verður ofbeldi,“ segir blaða­maður og talar þar með svip­uðum hætti og flestir gera í dag. Hins vegar skipt­ist fólk enn í fylk­ingar þegar kemur að því að meta hvort kyn­lífs­vinna sé alltaf nauð­ung eða mis­notkun að ein­hverju leyti – eða hvort þetta sé góð og gild starfs­grein þar sem sé full­kom­lega mögu­legt að vera við stjórn og líða vel.

Kynlíf svölun á grundvallarþörf

Blaða­maður endar grein­ina á því að velta kyn­lífs­mark­aðnum fyrir sér, bæði út frá sið­ferð­is­legu sjón­ar­miði og svo því sjón­ar­miði að kyn­líf sé grunn­þörf. Hann vill meina að á þessum tíma­punkti sé kyn­lífs­mark­að­ur­inn stað­reynd og ekki dugi að reyna að banna hann. Þessi iðn­aður muni alltaf finna sér leið.

„Þegar talað er um að „berj­ast verði gegn kyn­lífs­mark­aðnum“ er það í raun frá­leit tugga. Kyn­lífs­mark­að­ur­inn er ein­fald­lega stað­reynd, hann er grund­völlur umræðu dags­ins. Við höfum grund­vall­ar­þörf, kyn­þörf­ina, en birt­ing­ar­myndir hennar í mark­aðs­sam­fé­lag­inu eru vörur – við verðum að fást við þann raun­veru­leika. Margt bendir hins vegar til þess að mark­aðnum sé ekki treystandi til að hlúa að þess­ari grund­vall­ar­þörf því að „varan“ er oftar en ekki fólk og eins og áður sagði – þar sem hag­fræð­inni sleppir tekur sið­ferðið við: Það er ekki hægt að rétt­læta í stóru og smáu iðnað sem dregur jafn marga niður í skít­inn.

Eins og er virð­ast við­brögð fólks við mark­aðsvæð­ing­unni ein­kenn­ast af ráð­leysi. Lík­leg­ast er þó fyrsta skrefið til að átta sig á hlut­unum að við­ur­kenna stöðu mark­að­ar­ins í stað þess að sporna gegn því sem þegar er orðið.

Síðan má byrja að ræða um hvort kyn­lífi sé best borgið á mark­aði eða hvort það hafi gildi í sjálfu sér – handan vör­unnar. Grunn­hugsun lýð­ræð­is­ins er að mann­leg verð­mæti séu óháð kaupum og sölu – þau séu ekki föl. Það mætti hefja kyn­lífið upp á þann stall en þá þyrfti líka að losa um hömlur bæl­ing­ar­innar og tepru­skap­ar­ins sem er ekki síðri drag­bítur á allan skiln­ing á kyn­líf­inu. Því kyn­líf er ekki vara og enn síður lúx­usvara. Það er svölun á grund­vall­ar­þörf,“ segir blaða­maður að lokum.

Við upp­rifjun þess­arar greinar má glögg­lega sjá að ákveðnir vinklar umræð­unnar hafa breyst tölu­vert á þessum 20 árum sem liðin eru síðan hún kom út. Enn meira hefur orð­ræðan í kringum mál­efnið breyst, en margt sem fram kemur í grein­inni yrði seint látið fljúga í fjöl­miðlum í dag.

Það er hins vegar líka athygl­is­vert hvaða hlutar umræð­unnar virð­ast ekki hafa breyst mikið og hvaða atriði er enn karpað um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi