Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Nína Tryggvadóttir – var talin kommúnisti og færð í einangrunarbúðir

Nína Tryggvadóttir – var talin kommúnisti og færð í einangrunarbúðir
Nína Tryggva­dóttir – listmári

Nína Tryggva­dóttir (1913 til 1968) var fyrst og fremst þekkt sem list­mál­ari en hún samdi og mynd­skreytti einnig bækur fyrir börn. Hún fædd­ist 16. mars, 1913, á Seyð­is­firði og naut á sínum yngri árum til­sagnar Ásgríms Jóns­sonar í teikn­ingum. Meðfram námi við Kvenna­skól­ann í Reykja­vík stund­aði hún jafn­framt list­nám í skóla Finns Jóns­sonar og Jóhanns Briem. Nína Tryggva­dóttir þykir ein af merk­ustu lista­mönnum sem Ísland hefur alið og segir Una Dóra, dóttir hennar í við­tali við Morg­un­blaðið að verk móður hennar hafi ætíð vakið athygli hvar sem þau voru sýnd.

„Hún var mjög þekkt á Íslandi, algjör þjóð­ar­ger­semi. Hún sýndi á Íslandi á hverju ári, allt þar til hún lést,“ segir dóttir hennar Una Dóra sem býr í New York.

Nína var með einkasýningar í New York

Á árunum 1943-46 dvaldi Nína í New York með styrk frá íslenska rík­inu.

„Hún var með fyrstu einka­sýn­ingu sína í New York árið 1945 á sama tíma og frægi lista­mað­ur­inn Pollock sýndi sín lista­verk. Tveimur árum síðar var hún aftur með einka­sýn­ingu í sama list­gall­erí. Það þótti mjög merki­legt, því það var sjald­gæft að kven­lista­menn fengju að vera með einka­sýn­ingar á þessum árum. Hún seldi mjög vel á sýn­ing­unum sínum.“

eftir stríð var lítil gróska í lista­líf­inu á Íslandi

Í New York stund­aði Nína nám hjá þýskum lista­manni að nafni Hans Hofmann, sem flúið hafði stríðið. Á meðan á námi hennar stóð hélt hún áfram að sýna við lista­gall­erí og sömu­leiðis að vinna að leik­mynd við Macmillan leik­húsið við Columbia háskól­ann í New York, en það þótti mik­ill heiður.

Á árunum eftir stríð var lítil gróska í lista­líf­inu á Íslandi. Árið 1947 ákvað Nína að taka þátt í rót­tækri sýn­ingu er nefnd­ist Sept­em­ber­sýn­ingin. Hópur ungra lista­manna hélt utan um þessa sýn­ingu og Nína vann við að mynd­skreyta bækur.

Árið 1948 var henni boðið að sýna aftur í lista­gall­eríi í New York og tók hún því feg­ins hendi. Nokkrum mán­uðum síðar gift­ist hún Alfred L. Copley, þýskum lækni sem flúið hafði til Banda­ríkj­anna árið 1935 og reyndi fyrir sér sem mynd­list­ar­maður í New York.

„Rauða ógnina“

Nína sneri aftur til Íslands árið 1949 til þess að sækja eigur sínar en var þá meinað að ferð­ast aftur til Banda­ríkj­anna. Um þetta leyti var mikið fát í Banda­ríkj­unum í kringum „rauðu ógn­ina“ svoköll­uðu, sem banda­ríski öld­unga­deild­ar­þing­mað­ur­inn Joseph McCarthy blés upp. Hræðslan staf­aði af ógn við upp­gang komm­ún­ism­ans og var hún því kölluð „rauða ógnin.“

Nína var ásökuð um að vera komm­ún­isti og átti það eftir að draga dilk á eftir sér.

Lög­reglan fór með hana í fang­elsi á Ellis Island. Þarna dvaldi hún í nokkrar vikur og var svo send aftur heim til Íslands.

„Einhver hafði klagað hana en það er ekki vitað fyrir víst hver það var. Við höfum reynt að graf­ast fyrir um það en okkur var sagt að þetta hefði verið útaf því að hana vant­aði vega­bréfs­á­ritun.

Það gat hins vegar ekki stað­ist, því hún var gift manni sem hafði nú þegar fengið banda­rískan rík­is­borg­ara­rétt.

Lög­reglan fór með hana í fang­elsi á Ellis Island. Þarna dvaldi hún í nokkrar vikur og var svo send aftur heim til Íslands.

Þetta var hræði­leg reynsla. Þegar pabbi fór að taka á móti henni á flug­vell­inum komu þeir bara og tóku hana og fóru með hana í fang­elsið. Pabbi reyndi allt sem hann gat. Hann hafði sam­band við þing­menn og ráð­herra en allt kom fyrir ekki. Þau misstu alveg af sjötta ára­tugnum í New York. Þau hefðu átt að vera þar. Á árunum 1949 til 1952 var pabbi í New York en mamma á Íslandi. Eina góða sem kom út úr þessu var að ég fékk að fæð­ast á Íslandi,“ segir Una Dóra, en hún fædd­ist í Reykja­vík árið 1951.

Nína vildi ekki láta stöðva sig og hélt á nýjan leik aftur til Banda­ríkj­anna en var þá sett í ein­angr­un­ar­búðir og því næst vísað úr landi.

Í kjöl­farið neydd­ust Nína og Albert til þess að vera í fjar­búð á þessum tíma. Albert kom til Íslands á sumrin, en svo ákváðu þau að flytja til Parísar og síðar til London.

„Þessar aðstæður hafa ekki verið auð­veldar fyrir ungt nýgift fólk,“ segir Una.

Hún fór alltof ung

Nína lést langt fyrir aldur fram, aðeins 55 ára gömul. Þá var Una Dóra dóttir hennar aðeins sautján ára gömul.

Una dóra lýsir móður sinni sem; „bæði fynd­inni og skemmti­legri. Mamma var skiln­ings­rík þegar ég var ung­lingur. Ég var með smá ung­linga­veiki síð­asta árið sem hún lifði, því miður. Ég hafði auð­vitað ekki hug­mynd um að hún myndi deyja. Hún var með krabba­mein í eggja­stokk­unum.

„Hún fór alltof ung. Hún átti eftir að gera svo margt. Hún hafði samt upp­götvað margt í líf­inu, hluti sem við upp­götvum oft síðar í líf­inu.“

Una sagði að; „Ísland hefði alltaf verið hjarta hennar og að hún hafi aldrei ákveðið að skipti um rík­is­fang. Hún hélt nafn­inu sínu líka alla tíð, Tryggva­dóttir. Hún var sjálf­stæð og við töl­uðum alltaf saman á íslensku, það var málið sem við áttum saman og gátum talað í leyni.“

Nína mynd­skreytti fjölda bóka og orti ljóð og skrif­aði barna­bækur sem hún mynd­skreytti jafnan sjálf. Þá hefur verið haft eftir Unu Dóru að hún eigi nokkur hand­rit af óút­gefnum barna­sögum eftir Nínu og auk þess týnd­ust um það bil tíu bækur hjá útgef­anda hér á landi.“

Samn­ingur um safn list­mál­ar­ans Nínu Tryggva­dóttur var  und­ir­rit­aður í sumar á milli Reykja­vík­ur­borgar og dóttur lista­kon­unnar, Unu Dóru Copley. Borg­ar­ráð veitti borg­ar­stjóra heim­ild til þess að ganga frá samn­ingnum fyrir hönd borg­ar­innar.

Safn Nínu Tryggva­dóttur verður fyrsta mynd­list­ar­safn Reykja­vík­ur­borgar kennt við og til­einkað íslenskri lista­konu.

Heimild

Ásdís Ásgeirs­dóttir. 2018. „Arfleifð Nínu heim.“ Morg­un­blaðið, 8. des­em­ber.

Reykja­vík­ur­borg. 2021. 25. júní. Slóðin er: https://reykjavik.is/frettir/listasafn-ninu-tryggvadottur

Wikipedia

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi