Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Erlendir ríkisborgarar á Íslandi rúmlega 54 þúsund talsins: Alls 14% íbúa landsins

Erlendir ríkisborgarar á Íslandi rúmlega 54 þúsund talsins: Alls 14% íbúa landsins

Erlendum rík­is­borg­urum á Íslandi hefur fjölgað um rúm­lega 33 þús­und frá lokum árinu 2011, en flestir þeirra setj­ast að á höf­uð­borg­ar­svæð­inu; af þeim velja flestir Reykja­vík sem heim­ili sitt, en þetta kemur fram á Kjarn­anum.

Það er athygl­is­vert að Covid 19 dró ekki úr fjölgun erlendra íbúa, en hins vegar er atvinnu­leysi mun meiri á meðal þeirra en ann­arra Íslend­inga.

Alls bjuggu 54.140 erlendir rík­is­borg­arar á Íslandi í lok sept­em­ber; eru nú 14,4 pró­sent allra sem búa á Íslandi.

Áhuga­vert er að sjá að alls búa 44 pró­sent erlendra rík­is­borg­ara í Reykja­vík­, en allir íbúar hennar eru 36 pró­sent lands­manna.

Erlendir rík­is­borg­arar eru nú 17 pró­sent allra íbúa höf­uð­borg­ar­inn­ar.

En staðan er önnur í nokkrum nágranna­sveita­fé­lögum Reykja­vík­ur­; í Hafn­ar­firði eru erlendu íbú­arnir 11,9 pró­sent af heild­ar­fjölda íbúa og í Kópa­vogi 10,8 pró­sent.

Ef litið er til Sel­tjarn­ar­ness þá búa þar 450 erlendir rík­is­borg­arar og eru þeir 9,5 pró­sent allra íbúa og í Mos­fellsbæ eru þeir 1.110 og 8,6 pró­sent íbúa.

Annað er uppi á ten­ingnum í Garðabæ; þar eru erlendu rík­is­borg­ar­arnir 930 tals­ins, eða fimm pró­sent þeirra 18.280 íbúa sem bjuggu í sveit­ar­fé­lag­inu í sept­em­ber.

Frá því í fyrra hefur erlendum rík­is­borg­urum sem búa í Reykja­vík fjölgað um 1.940 tals­ins; á sama tíma hefur þeim erlendu rík­is­borg­urum sem búa á Sel­tjarn­ar­nesi og í Garðabæ fjölgað um 120.

Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2021 hefur erlendum rík­is­borg­urum sem búa í Reykja­vík fjölgað um næstum sama fjölda og býr sam­an­lagt í áður­nefndum tveimur nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­inn­ar.

Alls hefur erlendu rík­is­borg­urum sem búa á öllu höf­uð­borg­ar­svæð­inu fjölgað um 2.310 frá byrjun síð­asta árs. Næstum öll sú fjölgun hefur orðið í Reykja­vík, þar sem 84 pró­sent þeirra hafa sest að.

Athygl­is­vert er að mesta hlut­falls­lega aukn­ingin á land­inu síð­ustu tíu árin hefur verið á Suð­ur­nesj­um; í Reykja­nesbæ voru erlendir íbúar 8,6 pró­sent af heild­inni í lok árs 2011. Í sept­em­ber voru þeir fjórð­ungur íbúa í sveit­ar­fé­lag­inu. Sama þróun hefur átt sér stað í Suð­ur­nesja­bæ, sem sam­anstendur af Sand­gerði og Garði. Þar er hlut­fall erlendra rík­is­borg­ara nú 20 pró­sent af heild­inn­i.

Þetta má lesa út úr nýbirtum tölum Hag­stofu Íslands.

Sex af hverjum tíu nýjum Íslend­ingum eru útlend­ingar Erlendir rík­is­borg­arar sem búa á Íslandi voru 20.930 í lok árs 2011.

Síðan þá hefur þeim fjölgað um 33.210, eða 159 pró­sent, í áður­nefnda 54.140. Það er rúm­lega íbúa­fjöldi Hafn­ar­fjarð­ar, en 29.710 bjuggu í því þriðja stærsta sveit­ar­fé­lagi lands­ins í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins.

Mik­ill fjöldi þeirra starfar í annað hvort ferða­þjón­ustu­tengdum greinum eða við mann­virkja­gerð.

Lands­­­mönnum fjölg­aði um 55.270 sama tíma­bili og eru nú 374.830. Það þýðir að 60 pró­sent fjölg­unar lands­manna á síð­ast­liðnum ára­tug hefur verið vegna aðflutn­ings fólks hingað til lands sem er af erlendu bergi brot­ið.

Mest var fjölg­unin á árunum 2017 og 2018, þegar ferða­þjón­ustu­geir­inn var í mestum vexti, en á þeim tveimur árum fjölg­aði erlendum rík­is­borg­urum sem búa hér um 13.930 alls.

Á sama tíma fjölg­aði lands­mönnum öllum um 18.600.

Því voru inn­flytj­endur ábyrgir fyrir 75 pró­sent af mann­fjölda­aukn­ingu á þessum tveimur árum og það sem af er árinu 2021 er aukn­ingin í takt við meðal síð­ustu tíu ára; en erlendir rík­is­borg­arar eru um 60 pró­sent af þeirri aukn­ingu sem orðið hefur á íbúa­fjölda á fyrstu níu mán­uðum árs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi