Glúmur Baldvinsson er í einlægu viðtali við Fréttablaðið og tjáir sig meðal annars um tvær systur sínar:

„Æska mín var lituð hamingju og samstöðu innan fjölskyldunnar. Ekki bara æskan heldur allt lífið fram að fertugsaldri. Þá lék allt í lyndi.“
Og hann er spurður um sorgina:
„Mín mesta sorg er missir systra minna. Snæfríðar sem lést óvænt í blóma lífsins. Og svo missir Aldísar sem hvarf inn í sorta veikinda sem hún afneitar og getur því ekki komið til baka og orðið sú skemmtilega systir sem var sólargeisli æsku minnar.“
Glúmur bætir við að „þær eru báðar horfnar mér. Árásir á föður minn og móður hafa náttúrlega valdið mér kvíða og þunglyndi, en ég hef reynt að bera höfuðið hátt,“ segir Glúmur.





















Athugasemdir