Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eva Björg: „Það að drepa einhvern er ýktasta formið sem mannleg hegðun býður upp“

Eva Björg: „Það að drepa einhvern er ýktasta formið sem mannleg hegðun býður upp“
Mynd. Skjáskot/Skald.is

„Ég kláraði fyrstu heilu sög­una sem ung­lingur þegar ég tók þátt í smá­sagna­keppni í skól­anum. Reyndar fór ég þá beint í glæp, en í sög­unni myrti stelpa bestu vin­konu sína,“ segir hún og svo virð­ist sem snemma hafi þráð­ur­inn verið val­inn. Þetta segir Eva Björg Ægis­dóttir, flug­freyja sem nýverið gaf út sína fjórðu glæpa­sögu á jafn mörgum árum í við­tali á Frétta­blað­inu.

„Mér finnst ég aldrei hafa tekið sér­staka ákvörðun um að skrifa endi­lega glæpa­sögur. Ég las rosa­lega mikið sem krakki og bóka­safnið á Akranesi var nán­ast mitt annað heim­ili,“ svarar Eva Björg, aðspurð hvenær áhug­inn á hinum myrku hliðum mann­legs eðlis hafi kviknað.

„Mér var stundum skutlað heim af starfs­fólki safns­ins á kvöldin.“

Hefur betrunarvist áhrif á endurkomur fanga

Í háskóla stund­aði Eva námi í félags­fræði þar sem hún sat meðal ann­ars kúrs í afbrota­fræði og fjall­aði í fram­haldi um fanga í BA-rit­gerð sinni.

„Rit­gerðin fjall­aði um hvort betr­un­ar­vist hefði áhrif á end­ur­komur fanga, en ég gerði sam­an­burð á Íslandi og löndum eins og Banda­ríkj­unum þar sem fang­elsi eru meira hugsuð sem refsi­vist.

„Ég held ég hafi alltaf haft mik­inn áhuga á mann­legri hegðun og fólki almennt. Það að drepa ein­hvern er ýktasta formið sem mann­leg hegðun býður upp á og ég held að flestir hafi gríð­ar­legan áhuga á því, það er fyrir okkur svo óskilj­an­legt að ein­hver geti myrt aðra mann­eskju,“ segir hún.

„Við viljum flest leit­ast við að skilja hvernig slíkt getur gerst og mér finnst gaman að sökkva mér í það,“ segir Eva og bætir við að svo óhugs­andi glæpur sé þó í raun nær okkur en við höldum.

„Við hugsum að við gætum ómögu­lega framið slíkan glæp, en svo hefur sagan sýnt að fleiri eru færir um að fremja hræði­lega glæpi en við höldum. Ef við til að mynda horfum á seinni heims­styrj­öld­ina og sjáum hversu hræði­lega hluti fólk gerði – ein­fald­lega því það hafði leyfi til þess frá yfir­valdi.“

Flugfreyjustarfið gaf henni rými til að skrifa

Eva Björg minn­ist jafn­framt á hina frægu rann­sókn sem gerð var við Stanford háskóla árið 1971, The Stanford Prison Experiment. „Þar var hópi háskóla­nema skipt í tvennt, helm­ing­ur­inn var fanga­verðir og hinn helm­ing­ur­inn fangar. Eftir nokkra daga þurfti að stöðva rann­sókn­ina því fanga­verð­irnir voru orðnir svo brú­tal – því þeir fengu leyfi,“ rifjar hún upp.

Fyrsta bók Evu Bjargar, Marrið í stig­anum, kom út árið 2018 en hafði verið tæpt ár í vinnslu.

„Ég vissi ekk­ert hvort ég hefði það í mér að skrifa heila bók, hafði oft skrifað brot. En þegar ég lauk masters­námi í alþjóða­fræði í Þránd­heimi og flutti heim, ákvað ég að setj­ast við skriftir og lauk bók­inni á níu mán­uðum.“

Við heim­flutn­inga réði Eva Björg sig sem flug­freyju hjá Wow Air, enda sann­færð um að það starf gæfi henni rými til að skrifa.

„Ég var með tvö börn og gat þannig skrifað í vakta­fr­íum og tekið tölv­una með mér út í stopp.“ Aðspurð hvort hún hafi setið uppi á hót­el­her­bergjum hingað og þangað um heim­inn og skrifað um glæpi á Íslandi svarar Eva: „Á milli þess sem maður var að versla,“ og skellir upp úr.

„Ég vann við flugið svona átta til tíu daga í mán­uði og átti svo gott frí inn á milli sem ég nýtti til að skrifa.“

Eva bar sigur úr býtum

Um sama leyti og hand­ritið að fyrstu bók Evu var til­búið aug­lýsti bóka­út­gáfan Veröld sam­keppni um ný bók­mennta­verð­laun, Svart­fugl­inn, sem stofnað hafði verið til í sam­starfi við glæpa­sagna­höf­undana Yrsu Sig­urð­ar­dóttur og Ragnar Jónasson.

Sam­keppnin er fyrir höf­unda sem ekki hafa áður sent frá sér glæpa­sögu svo hún pass­aði vel fyrir frumraun Evu, sem tók þátt og bar sigur úr býtum. Með sigrinum hlaut Eva útgáfu­samn­ing hér á landi, pen­inga­verð­laun en einnig samn­ing við umboðs­mann í Bret­landi.

Skemmst er frá því að segja að Marrið í stig­anum varð met­sölu­bók hér á landi og fljót­lega keypti breskt for­lag útgáfu­rétt­inn og í kjöl­farið hafa fylgt samn­ingar víða um heim og bókin verið þýdd á ensku og frönsku og næst stendur til að þýða hana á þýsku.

„Ég fékk þarna bók og barn í sama mán­uði í mars 2018,“ segir Eva, sem var í fæð­ing­ar­or­lofi með sitt þriðja barn þegar bókin kom út.Sögusvið fyrstu þriggja bóka Evu eru æsku­slóðir hennar á Akranesi en í þeirri nýj­ustu hefur það færst á Snæ­fells­nesið, en þangað á hún jafn­framt sterka teng­ingu.

„Að gefa út bók er mjög per­sónu­legt. Maður er kannski í heilt ár að skrifa hana og svo er hún gefin út og ekk­ert heyr­ist strax og maður bara bíður óþreyju­fullur. Því er ég mjög þakk­lát þegar ég heyri eitt­hvað jákvætt.“

Hægt er að lesa við­talið í heild sinni inn á Frétta­blað­inu

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi