Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

20 ára Harry Potter á hvíta tjaldinu: „Í upphafi óraði engan fyrir að þetta yrði svona vinsælt“

20 ára Harry Potter á hvíta tjaldinu: „Í upphafi óraði engan fyrir að þetta yrði svona vinsælt“
Daniel Radcliffe, Rupert Grint og Emma Watson í hlut­verkum sínum í fyrstu kvik­mynd­inni um Harry Potter. Mynd: Getty images.

Þann 30. nóv­em­ber árið 2001, fyrir næstum því sléttum 20 árum síðan, var fyrsta kvik­myndin um galdra­strák­inn Harry Potter frum­sýnd á Íslandi. Við­hafn­ar­frum­sýn­ing hafði verið á kvik­mynd­inni þann 4. nóv­em­ber í London en almenn frum­sýn­ing var síðan þann 16. nóv­em­ber á Bret­landi og í Banda­ríkj­unum.

Þetta var kvik­mynd sem gerð var eftir fyrstu bók­inni í ser­í­unni eftir J. K. Rowling – Harry Potter og Visku­steinn­inn (e. Harry Potter and the Philosopher’s Stone). Hennar hafði verið beðið með mik­illi eft­ir­vænt­ingu víða um heim og var Ísland svo sann­ar­lega engin und­an­tekn­ing þar á.

Heilu bekkirnir tóku sig saman um miðakaup

Myndin vakti strax storm­andi lukku þegar hún var frum­sýnd hér á landi og börn flykkt­ust í kvik­mynda­húsin til að berja vin­ina Harry, Ron og Hermione augum – sum oftar en einu sinni. Hún var bæði sýnd með upp­runa­legu ensku tali og íslenskri tal­setn­ingu.

Þessi fyrsta mynd var ansi trú bók­inni, senni­lega hvað mest af þeim átta kvik­myndum sem gerðar voru eftir sögum Rowling. Hún mal­aði gull, bæði með kvik­mynda­að­sókn og sölu á varn­ingi. Bæði bæk­urnar og mynd­irnar höfðu djúp­stæð áhrif á heila kyn­slóð barna sem óx upp sam­hliða þeim (jafn­vel allt upp í þrjár kyn­slóðir, ef út í það er farið) og sann­kallað Harry Potter-æði greip um sig úti um allan heim.

Það er eftir sýn­ingu þess­arar fyrstu myndar sem bæði börn og full­orðnir fóru að mæta á frum­sýn­ingar mynd­anna sem á eftir komu, upp­á­klædd í skikkjur, með strá­kústa og töfra­sprota, trefla merkta sinni upp­á­halds heima­vist og litlar tuskuuglur í eft­ir­dragi.

„Það eru dæmi um að heilu bekkirnir hafi tekið sig saman og keypt miða á sýn­ing­una,“ sagði Davíð Jón­atans­son, bíó­stjóri Sam­bíó­anna í Keflavík í aðdrag­anda frum­sýn­ing­ar­innar hér á landi, í sam­tali við Vík­ur­fréttir.

Það var bóka­út­gáfan Bjartur sem gaf fyrstu bók­ina út á íslensku árið 1999 og rataði bókin í ófáa jóla­pakk­ana það árið. Bókin hafði hins­vegar komið út tveimur árum fyrr í Bret­landi og árið sem hún kom út hér var Rowling þegar búin að gefa út þrjár bækur í flokknum. Það voru því ein­ungis tvö ár liðin frá útgáfu fyrstu bók­ar­innar á íslensku þar til kvik­myndin kom út.

Harry Potter og Visku­steinn­inn. Warnes Bros.

2011 höfðu Íslendingar eytt 900 milljónum í Potter

Til að gefa vís­bend­ingu um það mikla pen­inga­veldi sem hefur risið í kringum sög­urnar um galdra­strák­inn knáa þá birt­ist grein á Vísi árið 2011, rétt áður en átt­unda og síð­asta kvik­myndin kom út, um það hvernig Íslend­ingar höfðu á þeim tíma eytt 900 millj­ónum í Harry Potter.

Í grein­inni, sem skrifuð er af Frey Gígju Gunn­ars­syni, segir:

„Íslend­ingar hafa keypt Harry Potter-bækur, mynddiska og bíómiða fyrir 900 millj­ónir íslenskra króna. Þá er ekki tekið með í reikn­ing­inn tölvu­leik­irnir og þær ótal­mörgu skóla­töskur, penna­veski og jafn­vel boltar sem hafa selst eins og heitar lummur í leik- og rit­fanga­versl­unum lands­ins. Síðustu for­vöð eru að sjá síð­ustu Harry Potter-mynd­ina, Harry Potter og Dauða­djásnin 2, í bíó um þessar mundir.“

„Að með­al­tali hefur hver bók selst í tutt­ugu þús­und ein­tökum,“ sagði Guðrún Vil­mund­ar­dóttir hjá Bjarti-Veröld, útgef­anda bókanna hér á landi, í sam­tali við blaða­mann í grein­inni. Eins og fram kemur í grein­inni þýðir þetta að 140 þús­und Harry Potter-bækur höfðu selst hér á landi á þessum tíma­punkti.

„Ef hver þeirra kostar í kringum 2.500 krónur hafa Potter-bækur verið seldar fyrir 350 millj­ónir íslenskra króna,“ segir í grein Vísis.

Um útgáfu kvik­mynd­anna segir í grein­inni:

„Þor­valdur Árnason, fram­kvæmd­ar­stjóri Samfilm, segir að frá því að fyrsta myndin um Potter og vini hans var frum­sýnd árið 2001 hafi 430 þús­und gestir séð Harry Potter-mynd­irnar átta, bíómiðar hafi því verið seldir fyrir 360 millj­ónir.

Nýjasta myndin, Harry Potter og Dauða­djásnin 2, hefur þegar halað inn 63 millj­ónir í miða­sölu.

„Í upp­hafi óraði engan fyrir að þetta yrði svona vin­sælt í tíu ár. Maður er nátt­úru­lega bara rosa­lega glaður og það er ekki hægt að kvarta undan Harry Potter,“ en hver ein­asta Potter-mynd hefur halað inn yfir millj­arð dala í miða­sölu á heims­vísu.
En þá er ekki allt upp­talið því Þorvaldi reikn­ast til að hátt í 75 þús­und Harry Potter-mynddiskar hafi selst hér á landi og miðað við útsölu­verð, sem er 2.500 krónur, gerir það sölu upp á 187 millj­ónir.“

Spáð vinsældum á borð við Titanic

Þann 7. nóv­em­ber árið 2001, eftir fyrstu frum­sýn­ingu mynd­ar­innar í London, kom út grein í DV um vænt­an­lega frum­sýn­ingu hér á landi, eft­ir­vænt­ing­una og hina ungu leik­ara sem stigu þarna sín fyrstu skref á hvíta tjald­inu.

„Sjálf­sagt hefur sjaldan verið beðið með jafn mik­illi eft­ir­vænt­ingu eftir frum­sýn­ingu einnar kvik­myndar og fyrstu mynd­ar­innar um Harry Potter. Og það var ljóst fyrir sýn­ing­una í Leicester Square í London á sunnu­dag­inn að merk­is­við­burður var að eiga sér stað.“

Í grein­inni er hrifn­ing gesta, jafnt gagn­rýnenda og ann­arra bíó­gesta, sögð hafa verið mikil.

„[…] og er þegar farið að tala um að hún gæti orðið vin­sælli en Titanic sem er vin­sælasta kvik­mynd sem gerð hefur verið.“

Emma Watson safnaði eiginhandaráritunum

Á við­hafn­ar­frum­sýn­ing­unni í London voru ungu leik­ar­arnir þrír sem léku Harry, Ron og Hermione, sögð hafa verið bæði glöð og spennt, en feimn­astur og mest hissa á öllu umstang­inu var aðal­leik­ar­inn sem lék Potter, Daniel Radcliffe.

Hann var sagður hafa horft stór­eygður á allt umstangið, fjöl­miðl­ana og stór­stjörn­urnar sem við­staddar voru. Aðspurður hvort hann ætl­aði sér að safna pen­ing­unum sem hann fengi fyrir leik sinn í kvik­mynd­unum, gat hann rétt stunið upp: „örugg­lega,“ skrækum rómi.

Emma Watson, sem lék Hermione Granger, var bæði tauga­ó­styrk og spennt að eigin sögn og sagð­ist örugg­lega eiga eftir að gubba. Hún mætti á sýn­ing­una með litla stíla­bók til að safna eig­in­hand­ar­á­rit­unum í.

Daniel Radcliffe í hlut­verki Harrys.

Jóla-Potter

Greinin í DV frá 7. nóv­em­ber árið 2001 endar á orð­unum:

„Fyrstu kvik­mynd­inni er spáð met­að­sókn og hver skyldi nú verða jóla­gjöfin í ár? Ekki kæmi á óvart að það yrðu Harry Potter-leik­föng en þegar er búið að skrifa undir hund­rað milljón doll­ara samn­ing við leik­fanga­fyr­ir­tæki.“

Blaða­mað­ur­inn sem skrif­aði grein­ina var aldeilis sann­spár og er það vægt til orða tekið, því enn þann dag í dag er ekk­ert lát á sölu á varn­ingi tengdum kvik­mynd­unum um Harry Potter. Sömu­leiðis er enn mikið áhorf á mynd­irnar sjálfar og ýmsir sem hafa það til dæmis fyrir órjúf­an­legan jólasið að horfa á þær yfir hátíð­arnar, maulandi smákökur og sötr­andi jólaöl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi