Kristján Frank Einarsson, eigandi skyrbarsins The Skyr Factory á Höfðatorgi, er að undirbúa opnun skyrbars á Tenerife sem staðsettur verður á Amerísku ströndinni. Hann segir tíma til kominn að bjóða upp á heilbrigðan kost á eyjunni.
Þeir fjölmörgu Íslendingar sem verða í sólinni um jólin geta því fengið sér gómsætt skyr á ströndinni því hjá Kristjáni er allt að verða klárt úti. „Það er kominn staður og það er bara verið að panta tækin,“ sagði Kristján í Síðdegisþættinum á K100.
Greinilegt er að Kristjáni þykir Íslendingar of oft velja sér óhollan mat á eyjunni fögru. Hann útskýrir jafnframt hvers vegna honum datt þetta í hug. „Já, við erum að reyna að breyta því. Nú ertu bara með heilbrigðan kost. Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá ákváðum við þetta sem afsökun fyrir pabba til að vera með vinnu út en hann er á flytja tilt Tenerife,“ segir Kristján.





















Athugasemdir