Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þorkell er konungur pabbabrandaranna – Hefur samið pabbabrandara alla daga ársins

Þorkell er konungur pabbabrandaranna – Hefur samið pabbabrandara alla daga ársins
Þorkell Guð­munds­son Mynd: Aðsend

Þorkell Guð­munds­son hefur und­an­farið ár vakið athygli fyrir frum­samda „pabba­brand­ara“ sem hann hefur birt á hverjum ein­asta degi árs­ins 2021. En hver er Þorkell? Hvaðan kemur hann og hvert ætlar hann? Mannlíf ræddi við hann.

Þorkell er fæddur árið 1979 og er lang­yngstur af fimm sam­mæðra systk­inum. Hann býr í Reykja­vík en er alinn upp á Djúpa­vogi í Suður-Múla­sýslu og seg­ist vera aust­firð­ingur í húð og hár, kom­inn af bændum í báðar ættir. „Það var að mörgu leyti gott að alast upp á Djúpa­vogi. Eins og margir af minni kyn­slóð, þá vorum við eig­in­lega alltaf úti. Bæði eftir skóla og líka eftir kvöld­mat. Við smíð­uðum okkur fót­bolta­mörk á litlu túni í hverf­inu og vorum flest­öll kvöld í tuðru­sparki. Reyndar minna um helgar, því þá spil­uðum við hlut­verka­spil og tölvu­leiki.“

Þorkell á góðri stundu

Segir hann að honum hafi gengið illa til að byrja með í skól­anum, hann hafi verið algjör tossi en eftir þriðja bekk­inn fór honum að ganga betur. „Pabbi minn var eig­in­lega drif­kraft­ur­inn í því. Hann lagði áherslu á að ég ætti að vanda mig við námið og reyna að vera vel skipu­lagður. Þó svo ég skrif­aði mjög illa, þá var t.d. öllum stærð­fræði­dæmum raðað vel upp.“

For­eldrar Þorkels eru mjög hag­mælt og segir hann að það hafi stundum legið við að þau töl­uðu saman í bundnu máli. „Þau ortu bæði gam­an­vísur og vísna­gátur. Ég smit­að­ist aðeins af þessu og var stundum að reyna að hnoða saman vísum og flytja þær með mis­jöfnun árangri.“

Þorkell minn­ist þess er pabbi hans kom með eðal pabba­brand­ara þegar hann bað um hund­rað­kall eitt sinn. „Pabbi var og er algjör meist­ari í að snúa útúr, en það er kjarn­inn í pabba­brönd­urum. Ég man einu sinni eftir því að hafa spurt hvort hann ætti handa mér hund­rað­kall. Þá svar­aði hann „Nei, ég á bara kattrað­kall“,“ sagði Þorkell og hló.

Þorkell starfar sem ráð­gjafi hjá PwC og hefur verið þar í rúman ára­tug. Hann hefur nýlega skipt um svið hjá fyr­ir­tæk­inu en framan af vann hann við mannauðs­ráð­gjöf. Segist hann hafa „graut­ast í ýmsu“ í námi en hann er með BA gráðu í félags­fræði frá Háskóla Íslands en svo fann hann sig ekki í masters­námi á félags­vís­inda­sviði. Hefur hann síðan hann fékk gráðuna aðal­lega verið að læra for­ritun, gagna­safns­fræði og gagna vís­indi. „Það er nefni­lega svo ein­kenni­legt að mér þykir jafn­gaman að for­rit­unar/gagnagramsi og að vinna með fólki.“

Ekki er Þorkell maður ein­sam­all en hann á eig­in­kon­una Þóru Magneu Helga­dóttur og eiga þau saman tvö börn. „Ég kynnt­ist kon­unni minni í Mennta­skól­anum á Egils­stöðum og við byrj­uðum að vera saman árið 1999. Þú verður að spyrja hana að hverju hún hreifst, en ég giska á að það hafi verið akkúrat temmi­lega mik­ill aula­húmor. Það er skrýtið að hugsa til þess að hvor­ugt okkar átti far­síma á þessum tíma. Ég hringdi í heima­sím­ann hennar úr tíkalla­síma sem var á heima­vist­inni. Við útskrif­uð­umst úr mennta­skóla árið 2000 og vorum sam­ferða í gegnum Háskól­ann. Við byrj­uðum að búa saman á Stúd­enta­görðum haustið 2002 og gengum í hjóna­band árið 2011. Við höfum komið okkar vel fyrir í Hlíðunum í Reykja­vík og eigum tvö ynd­is­leg börn. Reyndar er stelpan að verða ung­lingur og búin að fá pass­lega nóg af aula­húmornum í mér. Þannig er bara gangur lífs­ins,“ segir Þorkell bros­andi.

Fjöl­skyldan upp­á­klædd

En nú eru stórfurðu­legir tímar sem við búum í svo vægt sé til orða tekið og þá er kannski eðli­legt að spyrja í við­tali árið 2021, hvernig hefur fjöl­skyldan komið undan Covid hingað til?

„Sem betur fer höfum við verið frekar heppin í þessu ástandi. Við hjónin höfum átt gott með að vinna heima og höfum ágæta aðstöðu til þess. Skólinn í hverf­inu hefur haldið þétt utan um krakk­ana og ég er mjög ánægður með það. Annars nenni ég tak­markað að tala meira um far­ald­ur­inn en ég nauð­syn­lega þarf.“

Flottir feðgar

Þorkell á sér mörg áhuga­mál, jafn­vel of mörg að hans mati.

„Stundum háir það mér hvað ég hef áhuga á mörgu. Kannski má þar helst nefna að ég og nokkrir góðir vinir erum að reyna að meika það sem rokk­stjörnur í hljóm­sveit­inni 6Pence. Það gengur hægt, en við erum dug­legir að æfa þegar það eru ekki sam­komu­tak­mark­anir. Ég spila á hljóm­borð og syng bak­raddir í sveit­inni. Samhliða því er ég í píanó­n­ámi. Tón­listin er æðis­legt áhuga­mál. Ég iðka crossfit af miklu kappi og hef gert í nærri 6 ár. Mikill áhugi einnig á flestum íþróttum, þó sér­stak­lega körfu­bolta og fót­bolta. Ég hef líka gaman að ofur­hetjum, tölvu­leikjum, borð­spilum, húsa­smíði og stjórn­málum. Ég hef sér­stakt yndi af langsóttum sam­sær­is­kenn­ingum, mót­sögnum og páska­eggjum.“

Hljóm­sveitin 6pence

Lífið er rús­sí­bani fyrir suma en aðra er það líkt og klessu­bílar og enn aðrir upp­lifa það eins og barna­lest, svona svo við höldum okkur við tívólímynd­lík­ing­una. Sem sagt, flestir upp­lifa sigra og töp í líf­inu, áföll og upp­risu. En hvernig hefur þetta verið hjá Þorkeli?

„Stærsti sig­ur­inn fyrir mig er að eiga ynd­is­lega eig­in­konu, góða fjöl­skyldu og góða vini. Það er eina sem skiptir máli fyrir mig. Jújú, ég hef alveg sigr­ast á erf­ið­leikum eins og vænt­an­lega hver annar, en þessir erf­ið­leikar tengd­ust aðal­lega mér sjálfum og mínu lífs­við­horfi – sem hefur stundum verið undir pari. Ég bara man ekki í augna­blik­inu eftir alvar­legum per­sónu­legum áföllum sem betur fer.“

Þorkell tekur á því í rækt­inni

Und­an­farið ár hefur Þorkell getið sér gott orð sem pabba­brand­ara­smiður en hann hefur birt glæ­nýjan og frum­sam­inn pabba­brand­ara á hverjum ein­asta degi árs­ins og mun halda áfram fram á síð­asta dag árs­ins. En hvernig datt honum þetta í hug?

„Það var síð­asta ára­mótaskaup. Ég fann mikla teng­ingu við eitt atriðið í skaup­inu, en þar kom fram að fjöl­margir ung­lingar hvar­vetna um land væru var­an­lega skadd­aðir á augum. Ástæðan var síend­ur­tekin rang­hvelf­ing augna í kjöl­far pabba­brand­ara, en þeir höfðu verið óþarf­lega margir á árinu því heilu fjöl­skyld­urnar hírð­ust lang­dvölum heima­fyrir. Þetta var búið að vera svona um tals­vert skeið á mínu heim­ili.“

Þorkell bætir svo við að hann hafi eitt sinn verið fynd­inn.
„Það vill nefni­lega svo til að ég var einu sinni fynd­inn. Það var um og eftir mennta­skóla­árin og einkum á busa­ár­inu. Í kringum alda­mótin reyndi ég fyrir mér sem uppi­stand­ari í 2-3 skipti með mis­jöfnum árangri. Ég keppti í fyndn­asta manni Íslands árið 2001 og gekk ágæt­lega án þess að kom­ast í úrslit. Fljót­lega uppúr því snar­hætti ég síðan að vera fynd­inn og skemmti­legur. Svo við förum aftur til gamlárs­kvölds­ins árið 2020, þá staldr­aði ég aðeins við atriðið um pabba­brand­ar­ana og hugur minn leit­aði aftur til þeirra tíma er ég var fynd­inn og skemmti­legur. Ég hugs­aði með mér að þetta væri krefj­andi og skemmti­leg áskorun fyrir mig að semja einn pabba­brand­ara á dag í heilt ár og deila honum á sam­fé­lags­miðlum.“

Og við­brögðin hafa verið mjög jákvæð.

„Þessum brönd­urum hefur verið ágæt­lega tekið. Það er dyggur aðdá­enda­hópur sem ég er mjög þakk­látur fyrir. Margir hafa sterkar skoð­anir og það er bara flott. Það eru 20-40 vinir sem bregð­ast við með ummælum eða „lækum“. Ég hef reyndar heyrt að mun fleiri lesi brand­ar­ana. Fyrstu 300 voru bara aðgeni­legir vinum mínum á Facebook. En hver sem er getur séð brand­ara 301 og uppúr. Ég hugsa að ég birti síð­ustu 10 á fleiri miðlum og reyni að vekja athygli á þessu.“

En nú búum við í landi bóka­út­gáf­unnar þar sem önnur hver mann­eskja hefur gefið út bók. Ætlar Þorkell að gera eitt­hvað meira með brand­ar­ana, svona í ljósi vin­sælda þeirra?

„Ég stefni að því að gefa þessa 365 brand­ara út og jafn­vel fleiri á einn eða annan hátt. Það kemur ekki út bók fyrir þessi jól, enda er hún auð­vitað hvergi nærri til­búin. Það er í gangi vinna við hönnun og útfærslu á mark­aðs­efni, vef­síðu og appi. Svo það gætu verið spenn­andi tímar framundan.“

Hér fyrir neðan má sjá nokkra af upp­á­halds pabba­brönd­urum Þorkells:

Pabba­brand­ari 115 af 365. Hvað heita BDSM sam­tökin sem þrí­eykið stofn­aði?
Ég hýði Víði.

Pabba­brand­ari 224 af 365. Hvað fékk ég vit­laust afgreitt í apó­tek­inu?
Meðal ann­ars.

Pabba­brand­ari 250 af 365. Hvað heitir send­ill­inn sem vinnur hjá Gustavs­berg?
Postulín Páll

Pabba­brand­ari 268 af 365. Í hvaða stöðu var fram­bjóð­and­inn, þegar hann var hættur að stunda BDSM?
Hann gekk óbund­inn til kosn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi