Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þegar Gerður var kærð: „Mér finnst líklegt að stutt sé þar til ég dey“

Þegar Gerður var kærð: „Mér finnst líklegt að stutt sé þar til ég dey“

Verð­launa­skáldið Gerður Kristný var kærð til siða­nefndar Blaða­mann­fé­lags­ins árið 2003 útaf grein sem hún birti eftir konu sem hafði á unga aldri orðið fyrir skelfi­legu kyn­ferð­is­of­beldi. Stuttu síðar snéri Gerður Kristný þá rit­stjóri Mannlífs því sem virt­ist vera ósigur upp í „óvæntan sigur.“

Eftir að greinin birt­ist orti Gerður Kristný um kon­una ljóða­bálk­inn Sálu­messa. Sálu­messan er ljóða­bálkur þar sem sungin er messa yfir konu sem féll fyrir eigin hendi, svo þján­ing hennar og líf fái ekki að gleym­ast.

„Sálu­messa hefur von­andi þýð­ingu fyrir þann sem les hvort sem hann þekkir for­sög­una eða ekki. Ljóð­mæl­andi er haug­búi sem dvelur við hlið hinnar látnu og lítur yfir sögu­sviðið. Hann rifjar upp líf hennar, fer yfir örlög hennar og veltir fyrir sér hvernig refs­ingu kval­ari hennar ætti skilið,“ segir Gerður í við­tali við blaða­mann Frétta­blaðs­ins.

Áhugaverðast að skrifa um heiminn sem við góðborgararnir verðum tæpast vör við

Gerður hafði á þessum tíma skrifað nokkuð um kyn­ferðis­ofbeldi sem var ekki eins algengt þá og í dag og útskýrir í við­tal­inu hvers vegna hún hafi ákveðið að fara þessa leið í fjöl­miðlun.

„Þegar ég var í blaða­mennsku fannst mér áhuga­verð­ast að skrifa um heim­inn sem við góð­borg­ar­arnir verðum tæp­ast vör við og tók til dæmis við­töl við dæmda morð­ingja inni á Litla-Hrauni en líka þolendur kyn­ferð­is­of­beldis af báðum kynjum. Ég hafði þá þegar áttað mig á því hvað umfjöllun um kyn­ferð­is­of­beldi var við­kvæm og hvað mikil þöggun ríkti um það.“

Hún sagði enn­fremur að: „ég tók alvar­lega á þessum mál­efnum strax árið 1994 þegar ég hóf störf í blaða­mennsku og tók við­tal við konu sem hafði verið hópnauðgað á Þjóð­há­tíð í Eyjum. Saga hennar sat í mér. Árið 2001 skrif­aði ég síðan grein um Kristínu Gerði Guð­munds­dóttur, sem seinna varð fyr­ir­mynd að per­sónu í kvik­mynd­inni Lof mér að falla. Hún hafði orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi sem barn, ánetj­að­ist eit­ur­lyfjum, stund­aði vændi til að fjár­magna neysl­una, varð síðan veik á geði og svipti sig lífi. Við grein­ar­skrifin tal­aði ég við ætt­ingja hennar og vini en nýtti mér líka heim­ildir. Ég tók mér góðan tíma til að vinna þessa grein, enda átti Kristín Gerður það skilið.

Ég vissi að það var þög­ull hópur þarna úti sem fylgd­ist með skrif­unum mínum þótt ég yrði lítið vör við hann en ég vissi líka ástæð­una fyrir þess­ari þögn. Þess þá heldur fannst mér ástæða til að halda áfram að fjalla um kyn­ferð­is­glæpi. Fyrr eða síðar hlyti við­horf sam­fé­lags­ins til þeirra breyt­ast.“

Þessar pyntingar höfðu mótað líf hennar

Það var rétt fyrir jólin árið 2002 sem konan, sem Gerður hefur nú samið um Sálu­messu, hringdi og spurði hvort hún vildi lesa grein sem hún hefði skrifað. Hún átti fjóra eldri bræður og hafði sá elsti mis­notað hana kyn­ferð­is­lega. Þessar pynt­ingar höfðu mótað líf hennar.

„Nú var hún rúm­lega þrí­tug. Hún var veik á geði, hafði því dvalið inni á geð­deild og nokkrum sinnum reynt að svipta sig lífi.“

Konan sendi Gerði Kristnýju grein­ina til yfir­lestrar. „Hana lang­aði til að koma sögu sinni á fram­færi í Mannlífi en vildi hitta mig áður en greinin birt­ist. Ég flaug norður til Akur­eyrar þar sem við áttum saman ljúfa stund um miðjan dag skömmu fyrir jól í blokkar­í­búð þar sem hún bjó. Konan var róleg í tíð­inni og döpur en þó var hugur í henni. Ég lagði fyrir hana örfáar spurn­ingar til að fylla inn í eyður í frá­sögn­inni en ann­ars var greinin ákaf­lega vel skrifuð. Þetta var kona góðum gáfum gædd. Hún hlakk­aði til að fá greitt fyrir grein­ina og sagð­ist ætla að kaupa sér föt fyrir launin. Ég man að hún gerði eina athuga­semd við leið­rétt­ingu sem ég hafði gert á grein­inni. Þar stóð að hún væri á fer­tugs­aldri. Frekar vildi hún að ég skrif­aði að hún væri rúm­lega þrí­tug. Ég breytti þessu vit­an­lega.

Konan fór fram á að nafn sitt birt­ist ekki í grein­inni. Hún vildi heldur ekki að við mynd­uðum hana þannig að sæist framan í hana. Myndin sem birt­ist með grein­inni var því tekin af bak­svip hennar en jafn­framt lán­aði hún myndir af sér í æsku. Trúnaður minn var við hana og ég fór í einu og öllu eftir því sem hún fór fram á.“

Í grein­inni, sem er slá­andi lestur, segir konan á einum stað: „Með mér bær­ist sú von að fara kannski í háskól­ann eftir tæpt ár en ég þori ekki að hugsa mikið um það því mér finnst enn lík­legt að stutt sé þar til ég dey.“

„Já, þetta er veru­lega slá­andi og sýnir okkur rétt eina ferð­ina hræði­legar afleið­ingar kyn­ferð­is­of­beldis. Sumir lifa það ekki af,“ segir Gerður.

Ægileg tíðindi

Mannlíf var komið í prent­smiðju þegar Gerður Kristný fékk sím­tal frá yngsta bróður kon­unnar.„Hann sagði mér að systir hans hefði fallið fyrir eigin hendi. Ég hlust­aði þögul á hann og reyndi að ná taki á hugs­unum mínum á meðan. Þetta voru ægi­leg tíð­indi. Ég man að hann sagði að sig hefði grunað þegar hún var lítil að eitt­hvað ætti sér stað milli hennar og elsta bróð­ur­ins því hann var alltaf að draga hana afsíðis. Hann sagði líka að henni hefði þótt gott að vinna með mér. Þetta var því ósköp hlý­legt sam­tal. Síðan hringdi mág­kona kon­unnar og spurði hvort hún mætti fá launin hennar upp í útfar­ar­kostnað sem væri mik­ill. Ég taldi það allt í lagi og lagði féð inn á reikn­ings­númer sem hún gaf mér upp.

Þegar fór að líða að því að blaðið kæmi út fór ég að heyra bæði frá fjöl­skyld­unni og prest­inum þeirra að þeim þætti ekki við hæfi að blað­inu væri dreift í búðir á kistu­lagn­ing­ar­deg­inum og reyndar mis­lík­aði fólk­inu að greinin myndi birt­ast.

Ég man að undir dán­ar­til­kynn­ing­unni í Morg­un­blað­inu birt­ust nöfn allra bræðr­anna – líka þess elsta. Mannlíf kom út og þessi saga var í fréttum RÚV um kvöldið.“

Kæra til siðanefndar Blaðamannafélagsins

Þegar nær þrír mán­uðir voru liðnir frá því að greinin kom út kærði yngsti bróð­ir­inn Gerði Kristnýju til siða­nefndar Blaða­manna­fé­lags­ins vegna grein­ar­innar og sömu­leiðis Rík­is­sjón­varpið fyrir að hafa fjallað um grein­ina. Þá var Gerður stödd í útlöndum í svoköll­uðu þriggja mán­aða leyfi sem blaða­menn eiga rétt á. Hún skrif­aði því bréf til siða­nefndar og bað um að málið yrði tekið til skoð­unar þegar hún kæmi heim.

„Ég mætti síðan á fund siða­nefndar í byrjun júní. Í nefnd­inni sátu fjórir karlar og ein kona. Þor­steinn Gylfason var for­maður. Á fund­inum kom fram að frétta­stjóri Rík­is­sjón­varps­ins hafði beðist afsök­unar á að hafa birt frétt um grein kon­unnar. Það fannst mér allt í lagi. Frétta­menn RÚV þekktu kon­una ekki og höfðu aldrei hitt hana. Ég hafði hins vegar kynnst henni og leit á hana sem skjól­stæð­ing minn.

Á fund­inum svar­aði ég spurn­ingum nefnd­ar­innar og afsök­un­ar­beiðni frétta­stofu RÚV lá á borð­inu fyrir framan mig. „Svona get­urðu gert þetta,“ sagði Þor­steinn og otaði plögg­unum að mér. Ég taldi mig ekki þurfa að biðj­ast afsök­unar á að hafa hlustað á þol­anda kyn­ferðis­ofbeldis og birt sögu hans.

Í kærunni fór bróð­ir­inn um víðan völl. Honum mis­lík­aði til að mynda að ég skyldi hafa lagt pen­inga inn á banka­reikn­ing hjá ein­stak­lingi í fjöl­skyld­unni og kall­aði þá 30 silf­ur­pen­inga. Upp­hæð­inni, sem greidd hafði verið fyrir grein­ina, hafði hann skipt í klink, sett í plast­poka og skilið hann eftir á skrif­stofu Fróða sem gaf út Mannlíf. Ég lagði pen­ing­ana inn á Krist­ín­ar­sjóð, sjóð kenndan við Kristínu Gerði Guð­munds­dóttur sem er til að styðja konur sem leiðst hafa út í vændi. Bróð­ir­inn var afar reiður yfir því að ég hefði birt grein eftir veika systur hans. Á fundi með siða­nefnd var ég spurð hvort ég hefði ekki leitað til lækna hennar við vinnslu grein­ar­innar. Ég átti sem sagt að hafa lækni með í ráðum, eins fúsir og þeir eru nú til að tala um skjól­stæð­inga sína. Blaða­manna­fé­lagið ætti þá ef til vill að hafa lækni í starfi til að veita fólki upp­á­skrift þess efnis að því sé óhætt að segja sögu sína.

Til hvers er fjölmiðill ef hann má ekki gefa þeim rödd sem þaggað er niður í

Ég velti því fyrir mér til hvers fjöl­mið­ill væri ef hann má ekki gefa þeim rödd sem þaggað er niður í. Ég reyndi að útskýra þetta á fund­inum með siða­nefnd, en fann mjög skýrt að engu máli skipti hvað ég segði, fólkið hafði þegar gert upp hug sinn. Ég fékk síðan þyngsta úrskurð siða­nefndar Blaða­manna­fé­lags­ins í afmæl­is­gjöf 10. júní 2003. Þar var látið að því liggja að ég hefði sjálfs­víg mann­eskju á sam­visk­unni. Svona var litið á blaða­mennsku árið 2003. Maðurinn sem beitti systur sína kyn­ferð­is­of­beldi hefur hins vegar aldrei verið dæmdur fyrir þessa glæpi.“

Dóma siða­nefndar ber að birta í þeim fjöl­miðli sem fær dóm­inn á sig. Þessi dómur birt­ist hins vegar ekki í Mannlífi. „Það hvarfl­aði ekki að mér,“ segir Gerður Kristný. „Allur sá sirkus sem varð í kringum þetta mál var stað­fest­ing á því hversu eld­fimt þetta mál­efni var og hvað þögg­unin var mikil. Konan var ekki lengur á meðal okkar en það var enn hægt að ná sér niðri á mér.“

„Um haustið sama ár hringdi Thelma Ásdís­ar­dóttir í mig. Við hitt­umst á Borginni og hún sagði mér frá pabba sínum sem brotið hafði árum saman á henni og systrum hennar. Hann hafði verið kærður fyrir glæp­ina en verið sýkn­aður fyrir Hæsta­rétti. Thelma vildi skrifa pistla í Mannlíf eða fá þar við sig við­tal. Ég fór heim og velti því fyrir mér hvort það væri nokk­urt vit. Thelma gæti jú gengið í sjó­inn þegar við­talið birt­ist. Vissara var að láta svona mál bara eiga sig.

Þá átt­aði ég mig á því að þetta voru auð­vitað áhrifin af siða­nefnd­ar­úr­skurð­inum og ákvað að ég skyldi ekki læra nokkurn skap­aðan hlut af honum. Maður verður nátt­úr­lega að vera sæmi­legur til sam­visk­unnar. Ég hristi af mér úrskurð­inn og lét vaða. Ég hringdi í Thelmu og sagði: Á ég ekki bara að skrifa um þig bók? Og það gerði ég. Myndin af pabba – Saga Thelmu kom svo út árið 2005.

Hjálpi mér, hvað það er dapurlegt

Með bók­inni breytt­ist býsna margt. Tveimur árum eftir að ég fékk úrskurð­inn frá siða­nefnd fékk ég Blaða­manna­verð­launin fyrir Myndina af pabba og spurði sjálfa mig: Hvað gerð­ist þarna í milli­tíð­inni? Það sem gerð­ist var að Thelma mætti á sjón­ar­sviðið og útskýrði fyrir fólki afleið­ingar kyn­ferð­is­of­beldis á börn. Hún var til staðar og gat tekið það hlut­verk að sér. Aðrir höfðu hins vegar ekki séð aðra leið út úr van­líðan sinni en að flýta fyrir sér. Hjálpi mér, hvað það er dap­ur­legt.“

Viðtalið við kon­una birt­ist árið 2003 eins og fyrr segir en tæp­lega 20 árum síðar virð­ist ekki mikið hafa breyst til hins betra í þessum málum.

16. nóv­em­ber árið 2020 á degi íslenskrar tungu hlaut Gerður Kristný verð­laun Jónasar Hall­gríms­sonar, en þau ber að veita ein­stak­lingum er hafa með sér­stökum hætti unnið íslenskri tungu gagn í ræðu eða riti, með skáld­skap, fræði­störfum eða kennslu og stuðlað að efl­ingu hennar, fram­gangi eða miðlun til nýrrar kyn­slóðar.

Gerður Kristný hefur sent frá sér ljóða­bækur, skáld­sögur, smá­sögur, barna­bækur, við­tals­bók og ferða­sögu og hafa bækur hennar hlotið ýmsar við­ur­kenn­ingar, þar á meðal Bók­mennta­verð­laun Halldórs Laxness fyrir skáld­sög­una Bátur með segli og allt, Bóka­verð­laun barn­anna 2003 fyrir sög­una Marta smarta, Blaða­manna­verð­laun Íslands 2005 fyrir bók­ina Myndin af pabba – Saga Thelmu, Vest­nor­rænu barna- og ung­linga­bóka­verð­launin fyrir Garðinn og Íslensku bók­mennta­verð­launin 2010 fyrir ljóða­bók­ina Blóð­hófnir.

Heimildir

Blaða­manna­fé­lag Íslands. Úrskurður. https://www.press.is/is/faglegt/sidavefur/urskurdir-sidanefndar/mal-102002-2003

Kolbrún Berg­þórs­dóttir. 2018. „Maður verður að vera sæmi­legur til sam­visk­unnar.“ Frétta­blaðið, 20. októ­ber.

Umfjöllun á Bók­mennta­vefnum. Skoðað 16. nóv­em­ber 2021

Umfjöllun á vef For­lags­ins. Skoðað 16. nóv­em­ber 2021

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi