Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kristófer fékk tveggja og hálfs árs dóm fyrir íkveikju á Akureyri: Lagði viskastykki yfir brauðrist

Kristófer fékk tveggja og hálfs árs dóm fyrir íkveikju á Akureyri: Lagði viskastykki yfir brauðrist
Byrgi, Akureyri Mynd: Vikubladid.is

Krist­ó­fer Örn Sig­urð­ar­son hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fang­elsi fyrir að hafa í nóv­em­ber 2019 kveikt í hús­inu Byrgi í Sand­gerð­is­bót á Akureyri. Var dóm­ur­inn kveð­inn upp í Hér­aðs­dómi Norð­ur­lands eystra í síð­ustu viku.

Aðfara­nótt mið­viku­dags­ins 6. nóv­em­ber 2019, kveikti Krist­ó­fer á brauðrist sem stað­sett var á gangi við eld­húsið og lagði yfir hana viska­stykki og gekk svo út. Olli þetta athæfi hans brun­anum og er hann dæmdur fyrir það. Sjálfur bjó Krist­ó­fer á jarð­hæð húss­ins en brun­inn hafði það í för með sér að íbúar á efri hæð­inni voru í ber­sýni­legum lífs­háska segir í dómi hér­aðs­dóms.

Vísir fjallar um málið í dag. Í dómnum kom einnig fram að aug­ljós hætta hefði verið á yfir­grips­mik­illi eyð­ingu hús­næð­is­ins ef eld­ur­inn hefði náð að breið­ast meira út. Íbúar á efri hæð húss­ins urðu varir við eld­inn og létu slökkvi­lið vita.

Fram kemur í dómnum að klukkan 1:33 á aðfara­nótt 6. nóv­em­ber 2019 hafi beiðni um aðstoð lög­reglu og slökkvi­liðs vegna elds í Byrgi, borist. Þá hafi allir verið komnir út úr hús­inu að sjálfstáðum. Tveimur mín­útum eftir útkallið var lög­reglan mætt á vett­vang en hurð á jarð­hæð hefði verið sparkað upp og lög­reglan kallað inn en engin svör fengið. Á þessu augna­bliki log­aði eldur á gólfi milli for­stofu og hols.

Sögðust nágrann­arnir hafa heyrt hurða­skell á neðri hæð­inni skömmu áður en eld­ur­inn kvikn­aði. Var Krist­ó­fer hand­tek­inn sömu nótt, grun­aður um íkveikj­una. Þegar lög­reglan hand­tók hann var hann flaum­ósa og bað um að hitta lækna, kom­ast á geð­deild og fá lög­fræð­ing. Harð­neit­aði hann þó að hafa kveikt í hús­inu. Morgunin eftir ját­aði Krist­ó­fer að hafa ollið elds­voð­anum en það gerði hann upp úr þurru er lög­reglu­þjónn var að fylgja honum á sal­ernið. Þá lýsti hann í smá­at­riðum hvernig hann bar sig að við íkveikj­una. Klukk­stund síðar leit lög­reglan inn til hans í fanga­klef­ann sem hann dvaldi í en var hann þá búinn að binda band um háls sér. Rætt var við hann og bandið tekið af honum en þá við­ur­kenndi hann aftur að hafa kveikt í.

Í dómnum kemur fram að um klukkan hálf 1, sömu nótt og kveikt var í, hafi lög­reglan komið að heim­il­inu eftir að nágranni Krist­ó­fers hafði hringt og óskað eftir hjálp. Þá hafði Krist­ó­fer verið búinn að loka á heita vatnið hjá nágrann­anum og búinn að slá út raf­magn­inu. Taldi lög­reglan sig hafa leyst úr deil­unum. Kvöldið áður hafði Krist­ó­fer mætt á lög­reglu­stöð­ina, talandi við sjálfan sig og í miklu ójafn­vægi. Bauðst honum að gista í fanga­klefa um nótt­ina sem hann og þáði. Hafði hann sig þó á brott klukku­stund síðar.

Geð­lækn­ir­inn sem mat ástand Krist­ó­fers, sagði fyrir dóm­inum að hann hefði verið lang­veikur, hann hafi verið í geð­rofs­á­standi af og til um margra ára skeið og fengið mikla þjón­ustu hjá geð­veild Land­spít­al­ans sem og Sjúkra­húss­ins á Akureyri. Virtist neysla áfengis og fíkni­efna fram­kalla geð­rofs­á­stand hans. Mat geð­lækn­ir­inn það svo að Krist­ó­fer hefði ekki verið algjör­lega ófær um að stjórna gjörðum sínum þetta umrædda kvöld, að hann átt­aði sig almennt á afleið­ingum sinna gjörða.

Fyrir dómi neit­aði Krist­ó­fer sök en hafði játað það við skýrslu­töku hjá lög­regl­unni, að verj­anda sínum við­stöddum, að hafa kveikt í hús­inu og lýsti íkveikj­unni ítar­lega.
Var hann eins og áður segir, dæmdur í tveggja og hálfs árs fang­elsi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi