Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jón Steinar segist vita leiðina að færri nauðgunum: „Vafalaust besta vörnin gegn svona brotum“

Jón Steinar segist vita leiðina að færri nauðgunum: „Vafalaust besta vörnin gegn svona brotum“
Jón Steinar Gunn­laugs­son

Jón Steinar Gunn­laugs­son, lög­maður og fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari, er sann­færður um að nauðg­unum og öðrum kyn­ferð­is­brotum muni snar­fækka séu konur var­aðar við áfengis- og vímu­efna­notkun og þeim kennt að gæta sín sjálfar. Honum þykir miður að ekki megi ræða þessa hlið kyn­ferð­is­brota­mála án þess að umræðan þyki rétt­læt­ing á brotum mis­ind­is­manna.

Jón Steinar fer yfir skoðun sína í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu. Þar full­yrðir hann að áfengis- og vímu­efna­notkun, oft­ast kvenna, sé ráð­andi áhrifa­þáttur í lang­flestum kyn­ferð­is­brota.

„Þó að eng­inn vafi sé á, að þessi neysla sé stærsti áhrifa­þátt­ur­inn í böl­inu, heyr­ast þær skoð­anir að á þetta megi helst ekki minn­ast. Sumir hafa gengið svo langt að telja óheim­ilt að vara þá við sem verða þolendur svona brota með því að benda þeim á að var­ast notkun vímu­efna í því skyni að forð­ast brot,“ segir Jón Steinar og heldur áfram:

„Ég tel að áfengis- og vímu­efna­notkun sé ráð­andi áhrifa­þáttur í lang­flestum þess­ara brota.
Afleið­ingar hennar geta auk nauð­gana og ann­arra ofbeld­is­brota verið ótíma­bærar þung­anir,
van­ræksla og jafn­vel mis­notkun barna, fóst­ur­eyð­ingar, for­sjár­svipt­ingar, skað­leg and­leg áhrif á börn, fram­hjá­höld, slys og ótíma­bær and­lát.“

Jón Steinar virð­ist ekki vera hrif­inn af því að verið sé að nafn­greina menn á opin­berum vett­vangi, án þess að sakir séu sann­aðar sem kosti þá jafn­vel vinnu og útskúfun frá sam­fé­lag­inu. Hann skilur ekki hvers vegna megi ekki vara konur við vímu­efna­notkun á skemmti­stöðum.

„Þetta er auð­vitað hálf­gerður þvætt­ingur, sem á lík­lega rót sína að rekja til þess að svo margir vilja geta þjónað áfeng­is­nautn sinni í friði. Í raun er verið að segja að ekki megi benda fólki á að reyna að gæta sín sjálft. Það er samt vafa­laust besta vörnin gegn svona brotum að gæta sín sjálfur.  Ráðið er sem sagt að hætta eða draga veru­lega úr notkun áfengis- og vímu­efna hvort sem er á skemmti­stöðum eða bara heima fyrir. Þeir sem ekki geta nýtt sér þetta ráð eru lík­lega háðir vímu­gjöf­unum með þeim hætti að þeir ættu að leita sér hjálpar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi