Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mál Þórhildar: „Skil ekki hvernig lögmanni datt í hug að birta lögregluskýrslur á samfélagsmiðli“

Mál Þórhildar: „Skil ekki hvernig lögmanni datt í hug að birta lögregluskýrslur á samfélagsmiðli“

Þór­hildur Gyða Arn­ars­dóttir, meist­ara­nemi í félags­ráð­gjöf og bar­áttu­kona fyrir þolendum ofbeldis og þögg­unar sendi frá sér pistil í morgun sem birt­ist undir flokknum Skoðun á Vísi með fyr­ir­sögn­inni Á­kall til per­sónu­verndar- og lög­reglu­yfir­valda.
Í pistl­inum talar Þór­hildur um það þegar Sigurður G. Guð­jóns­son hæsta­rétt­ar­lög­fræð­ingur birti brot úr lög­reglu­skýrsl­unum hennar á Facebook síðu sinni fyrir um það bil tveimur mán­uðum.
Þór­hildur sagði að „ég hef kært hann til per­sónu­verndar og lög­reglu fyrir athæfið.“
Sigurður Örn Hilm­ars­son for­maður lög­manna­fé­lags­ins sagði um málið í við­tali:
„Mér var sjálfum mjög brugðið þegar ég las þetta í morgun og fæ ekki skilið hvernig lög­manni getur dottið í hug að birta lög­reglu­skýrslur eða við­kvæm gögn úr saka­mála­rann­sókn á sam­fé­lags­miðlum.“
Hann segir svo:
„í öllu falli fæ ég ekki séð að svona lagað eigi erindi á sam­fé­lags­miðlum.“
Þór­hildur segir að: „þess má geta að þetta var til umfjöll­unar í tvígang í fréttum Stöðvar 2 þar sem ég fékk þær upp­lýs­ingar per­sónu­lega frá frétta­stof­unni að gögnin úr lög­reglu­skýrsl­unni minni yrðu blörruð. Ofan­greind dæmi benda til þess að hegðun Sigurðar G hafi verið for­dæmd af hinum ýmsu aðilum og í grein sem birt­ist á Vísi kemur meðal ann­ars fram; „Margir gagn­rýna birt­ingu gagn­anna í við­kvæmu máli á borð við þetta.65t“

Gagnrýna fjölmiðla

Tekið er fram í pistli Þór­hildar að 2. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn hafi annar aðsendur pist­ill birst á Vísi með inni­haldi úr lög­reglu­skýrslu þol­anda í opnu dóms­máli. Höfundur pistils­ins er Jón Baldvin Hanni­bals­son og var greinin hans birt viku áður en dómur var kveð­inn upp og hann sýkn­aður.

„Þessi pist­ill minn er skrif­aður í þeim til­gangi að gagn­rýna fjöl­miðla sem for­dæmdu hegðun Sigurðar G en taka síðan þátt í aðför að þol­anda í öðru ofbeld­is­máli með því að birta gögn úr hennar lög­reglu­skýrslu á frétta­síðu sinni. Samkvæmt rit­stjórn­ar­stefnu frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar kemur fram að í umfjöllun um við­kvæm mál­efni skuli „Frétta­stofan forð­ast að birta … per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar,“ segir Þór­hildur.

Þór­hildur gagn­rýnir að „í pistli Jón Baldvins, þar sem hann birtir brot úr lög­reglu­skýrslu Carmenar Jóhanns­dóttur, eru per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar um vitni hennar í mál­inu sem Jón Baldvin nafn­greinir svo síðar í pistl­inum.

Ég geri mér grein fyrir að þessi pist­ill var ekki skrif­aður af blaða­manni en rit­stjórn­ar­stefnan hlýtur að eiga við um alla frétta­mennsku Vísis og því ættu aðsendar greinar að falla þar undir.“

Pistill Þór­hildar rekur svipuð mál og segir að „það eru til fyrri dæmi um að gögnum úr saka­málum sé lekið til fjöl­miðla og birt­ist grein eftir hæsta­rétt­ar­lög­fræð­ing þess efnis í lög­manna­blað­inu fyrir 16 árum síðan, eða árið 2005.“

Í grein­inni er gagn­rýnt þegar lög­reglu­skýrslum er lekið í fjöl­miðla:

„Öllu alvar­legra hlýtur þó að vera þegar upp­lýs­ingar úr lög­reglu­skýrslum á rann­sókn­ar­stigi máls hafa ratað í fjöl­miðla.“

Gögnum úr viðkvæmri rannsókn lekið

Í byrjun þessa árs birt­ist frétt um að gögnum úr við­kvæmri rann­sókn á starf­semi lög­reglu­full­trúa hafi verið lekið, þar á meðal per­sónu­grein­an­legum upp­lýs­ingum um aðra lög­reglu­menn og yfir­menn innan lög­regl­unnar úr lög­reglu­skýrslum þeirra. Kolbrún Bene­dikts­dóttir, vara­hér­aðs­sak­sókn­ari, stað­festi í frétt­inni að málið væri strax komið til skoð­unar hjá emb­ætt­inu og litið alvar­legum augum.

Í tengslum við sama mál greindi Margeir Sveins­son, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, frá því að það væri mjög slæmt þegar per­sónu­grein­an­legum upp­lýs­ingum úr rann­sókn saka­máls sé dreift. Vert er að taka fram að þegar þessi leki átti sér stað var búið að taka málið fyrir og hafði lek­inn því ekki áhrif á rann­sókn máls­ins.

Þór­hildur fer yfir mögu­legan skaða þess að lög­reglu­skýrslum sé lekið og segir að þess konar leki geti „verið mjög skað­legur fyrir þá sem fyrir því verða og getur haft áhrif á málið sjálft ef það er á rann­sókn­ar­stigi. Að leka per­sónu­rekj­an­legum upp­lýs­ingum um brota­þola ofbeldis út frá lög­reglu­skýrslu getur einnig stofnað við­kom­andi í lífs­hættu.“

Hún spyr:

„Af hverju er það litið alvar­legri augum þegar per­sónu­rekj­an­legum upp­lýs­ingum úr skýrslu lög­reglu­manna er lekið? Ætlum við sem sam­fé­lag bara að leyfa því að ger­ast að lög­reglu­skýrslum brota­þola í ofbeld­is­málum sé lekið á inter­netið og í fjöl­miðla án nokk­urs­konar afleið­inga? Hversu mörgum lög­reglu­skýrslum þol­anda ofbeldis þarf að vera lekið áður en gripið verður til ein­hvers­konar aðgerða?“

Þór­hildur furðar sig á þessum vinnu­brögðum og segir að „í til­felli Jóns Baldvins var ekki komin úrlausn í dóms­mál­inu þegar hann tekur ákvörðun um að leka broti úr lög­reglu­skýrslu Carmenar í fjöl­miðla. Þann 14. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn gerði Sigurður G grein fyrir því í við­tali á Bylgj­unni að hann hafi ekki enn fengið kær­urnar birtar, tveimur mán­uðum eftir að þær voru lagðar fram. Samkvæmt upp­lýs­ingum á heima­síðu Per­sónu­verndar kemur fram að áætl­aður afgreiðslu­tími kvart­ana sé 9 – 15 mán­uðir.

Við þekkjum það vel að mál hjá lög­reglu­yf­ir­völdum taka oft langan tíma en hvernig væri að taka þessi mál hraðar fyrir til að for­dæma þessa hegðun? Ég velti því fyrir mér hvers vegna þolendur ofbeldis njóta ekki verndar hjá lög­reglu- og per­sónu­vernd­ar­yf­ir­völdum og af hverju raunin sé sú að auð­velt sé að leka lög­reglu­skýrslum þeirra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi