Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Heimsfaraldur reynt á fjölskyldur og pör – uppfullt hjá fjölskyldufræðingum og kynlífsráðgjafa

Heimsfaraldur reynt á fjölskyldur og pör – uppfullt hjá fjölskyldufræðingum og kynlífsráðgjafa

„Fyrir utan aukna eft­ir­spurn eftir geð­heil­brigð­is­þjón­ustu í kjöl­far Covid, þá hefur sú mikla og nauð­syn­lega umræða í fjöl­miðlum varð­andi kyn­bundið og kyn­ferð­is­legt ofbeldi einnig haft áhrif. Í kjöl­far slíkrar umræðu eykst yfir­leitt eft­ir­spurn eftir við­tölum hjá þeim sér­fræð­ingum sem sinna þolendum í slíkum málum. Það er í raun af hinu góða, þar sem slík umræða verður oft til þess að fólks leitar loks eftir aðstoð,“ segir Þóra Sig­fríður Ein­ars­dóttir, sál­fræð­ingur við Domus Mentis-geð­heilsu­stöð. Við ræddum við hana um stöðu geð­heil­brigð­is­mála á Covid-tímum.

Að sinna geðheilbrigði er hluti af því að hugsa vel um sjálfan sig

„Það getur alveg verið stórt skref fyrir marga að hafa sam­band við sál­fræð­ing eða aðra sér­fræð­inga á geð­heil­brigð­is­svið­inu. Sem betur fer þá verður sífellt við­ur­kennd­ara að það að sinna geð­heil­brigði sé hluti af því að hugsa vel um sjálfan sig. En ég myndi hvetja þá sem eru að taka sín fyrstu skref til að hafa sam­band, það er yfir­leitt auð­veld­ara en fólk heldur.“

Þóra segir að geð­heil­brigð­is­kerfið hafi verið að kljást við biðlista í þó nokkurn tíma. Þau vilji mæta fólki þegar það þarf á því að halda. Eins þegar fólk getur ekki fengið við­eig­andi þjón­ustu vegna fjár­hags, en sál­fræði­með­ferð krefst þess að fólk komi í reglu­leg við­töl, allra helst einu sinni í viku til að byrja með. Kostn­aður við með­ferð­ina getur verið mjög íþyngj­andi og því eru ekki allir sem geta sótt þessa nauð­syn­legu heil­brigð­is­þjón­ustu.

Samtalið bein­ist að heims­far­aldr­inum og hvernig geð­heil­brigð­is­þjón­ustan hafi náð utan um aukna eft­ir­spurn eftir þjón­ust­unni.

„Við sjáum að Covid hefur reynst mörgum erfitt, ekki síst sú ein­angrun og óvissa sem hefur fylgt heims­far­aldri. Ég held að flestir sem sinna geð­heil­brigð­is­þjón­ustu hafi orðið varir við aukna eft­ir­spurn frá því að heims­far­ald­ur­inn hóf yfir­reið sína.

Í fyrstu vorum við jú bjart­sýn á að með sam­taka­mætti þá myndum við sigra þessa veiru á nokkrum vikum, hugs­an­lega nokkrum mán­uðum. Nú, næstum tveimur árum seinna, erum við nán­ast í sömu stöðu og í upp­hafi. Það þýðir jú áfram­hald­andi óvissu og ákveðna ógn, ógn við eigin heilsu, afkomu og annað.

Þetta eru því álags­tímar og mik­il­vægt að fólk hlúi að geð­heils­unni. Það er ýmis­legt hægt að gera til þess, kannski fyrst og fremst að sinna grunn­þörfum okkar, það eru svefn, hreyf­ing, nær­ing og svo eru það félags­legu sam­skiptin.“

Ein af afleiðingum Covid eru mjög breyttar vinnuaðstæður

„Þetta hljómar kannski ein­falt en stað­reyndin er sú að þegar við erum undir álagi þá eru það þessir grunn­þættir sem fjúka oft fyrstir út í veður og vind. Ekki síst þegar ein af afleið­ingum Covid eru mjög breyttar vinnu­að­stæður.

Nú þegar fjar­vinna verður sífellt algeng­ari er hætta á því að rútínan verði ekki í eins föstum skorðum þegar við þurfum ekki að mæta á ákveð­inn stað á ákveðnum tíma. Fólk hefur meira frelsi til að sinna verk­efnum sínum á ólíkum tímum.

En það er mik­il­vægt að reyna að setja skýr skil á milli vinnu­tíma/vinnu­staðar og frí­tíma/heim­ilis. Og reyna að hafa hlut­ina í eins föstum skorðum og mögu­legt er. Svo má ekki gleyma því að sinna félags­legum tengslum og gera eitt­hvað skemmti­legt.

Þá er það líka svo að þó svo að flestir virð­ist ná sér vel eftir að hafa smit­ast af Covid, þá er líka ákveð­inn hópur sem glímir við alvar­legan heilsu­brest í kjöl­farið. Það alvar­legan heilsu­brest að hann hefur veru­leg áhrif á getu fólks til að sinna dag­legu lífi, sinna vinnu og fjöl­skyldu. Því fylgir auð­vitað mikil sorg og mik­ill kvíði.

Fólk hefur áhyggjur af því hvort það nái heilsu aftur, áhyggjur af afkomu sinni og áhrifum veik­inda á fjöl­skyldu­líf. Sálrænn stuðn­ingur getur verið mjög mik­il­vægur í slíkum til­fellum.“

Stuðla að bættri líðan og geðheilsu fólks

Þóra vinnur sem sál­fræð­ingur á geð­heilsu­stöð­inni Domus Mentis, en þar starfar stór þver­fag­legur hópur heil­brigð­is­starfs­fólks sem gerir þeim kleift að bjóða upp á breiða þjón­ustu til að stuðla að bættri líðan og geð­heilsu fólks.

Starfs­hóp­ur­inn hjá Domus Mentis býr yfir víð­tækri þekk­ingu á ein­stak­lings­með­ferð, para- og fjöl­skyldu­með­ferð, sálmeina­fræði og geð­lækn­ingum og því að sinna ein­stak­lingum, pörum, fjöl­skyldum og vinnu­stöðum.

Mikið er lagt upp úr þver­fag­legu sam­starf hjá geð­heilsu­stöð­inni til að tryggja hverjum og einum sem besta þjón­ustu.

​„Margir hafa spurt um lógóið okkar sem lýsir því kannski best hvað við stöndum fyrir. Aðili sem tengd­ist stofnun DMG er lista­maður og hafði lánað okkur nokkur verk. Eitt af þeim var mál­verk af alls kyns húsum, öllum stærðum og gerðum. Þar sem Domus Mentis þýðir í raun hús hug­ans, fannst okkur þetta mál­verk tala til okkar og við ákváðum að þróa lógó út frá því. Fyrir okkur þá stendur lógóið því fyrir marg­breyti­leika mann­eskj­unnar og að það sé pláss fyrir alla.“

Tekur á erfiðum málum

Í krafti stærð­ar­innar hafa þau getað þróað teymi með sér­hæf­ingu á ákveðnum sviðum.

„Þar má nefna að hjá okkur starfar íþróttateymi sem er ætlað að takast á við ýmsar krefj­andi aðstæður og til­finn­ingar sem geta komið upp í tengslum við íþrótta­iðkun. Teymið býður upp á marg­vís­lega þjón­ustu sem hentar þá bæði ein­stak­lingum og hópum og sér­stök áhersla hefur verið lögð á að bjóða upp á hag­nýtt og skemmti­legt fræðslu­efni sem þó tekur á erf­iðum málum.

Teymið veitir íþrótta­mönnum ein­stak­lings­við­töl, oft vegna kvíða tengdum frammi­stöðu eða meiðslum. Einnig hópum; hvað þarf til að efla liðs­heild og ná sem bestum árangri. Fókusinn er einnig á sam­skipti og hvernig menn­ingu við viljum hafa í tengslum við íþrótta­starf, enda mik­il­vægt að velta því fyrir sér.“

Sálfræðiviðtöl ekki niðurgreidd

Aðspurð hvort henni finn­ist þessi mála­flokkur mæta skiln­ings­leysi segir Þóra að „það hafi margt breyst á und­an­förnum árum varð­andi við­horf til geð­heil­brigðis og geð­heil­brigð­is­þjón­ustu. Sem betur fer fær þessi mála­flokkur sífellt meiri athygli og vægi og nú held ég að flestir séu sam­mála um að geð­heil­brigð­is­þjón­usta sé hluti af grunn­heil­brigð­is­þjón­ustu. Þrátt fyrir það eru sál­fræði­við­töl ekki nið­ur­greidd og fólk þarf enn að greiða fullt verð. Það er búið að sam­þykkja að sál­fræði­þjón­usta eigi að vera nið­ur­greidd en fjár­magn hefur ekki fylgt með. Það finnst mér ákveðið skiln­ings­leysi.

Eins má benda á að gríð­ar­leg eft­ir­spurn er eftir geð­læknum, og stór hluti til­vís­ana til þeirra er frá fólki sem er með ADHD-grein­ingu. Einungis geð­læknar mega ávísa lyfjum sem eru hugsuð til að með­höndla ADHD, fyrst eftir grein­ingu. Mikil bið er eftir slíkri þjón­ustu, ekki bara hjá okkur og margir geð­læknar taka ekki lengur við fleiri til­vís­unum. Á meðan er þetta fólk í lausu lofti og fær ekki þá heil­brigð­is­þjón­ustu sem það þarf. Vandinn er auð­vitað fyrst og fremst sá að það eru ekki nógu margir starf­andi.“

Þóra finnur fyrir því hvað heims­far­ald­ur­inn hefur reynt á fjöl­skyldur og pör og hafa fjöl­skyldu­fræð­ing­arnir og kyn­lífs­ráð­gjafi orðið vör við það. Hún segir sífellt fleiri leita eftir þess­ari þjón­ustu til að bæta sam­skipti sín og lífs­á­nægju.

„Dagleg rútína getur gleypt dag­legt líf og ást­ar­sam­bandið þannig að for­eldrar verða meira vinnu­fé­lagar, verk­stjórar á heim­il­inu, sem getur leitt til alls kyns vanda. Þar getur para/hjóna­með­ferð gert krafta­verk og við erum svo heppin hér á DMG að auk úrvals fjöl­skyldu­fræð­inga, þá starfar hér á Domus Mentis kyn­lífs­ráð­gjafi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi