Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Önnur móðir greinir frá hugsanlegum ofskammti sýklalyfs: „Ég tek lyfjaskömmtun alvarlega.“

Önnur móðir greinir frá hugsanlegum ofskammti sýklalyfs: „Ég tek lyfjaskömmtun alvarlega.“

Önnur móðir hefur nú sett sig í sam­band við Mannlíf og greint frá því að barnið hennar hafi senni­lega lent í því að fá of sterkan skammt sýkla­lyfja bland­aðan í apó­tek­inu Apó­tek­ar­anum.

Mannlíf hefur áður fjallað um mál þar sem lyfja­fræð­ingur í Apó­tek­ar­anum í Mos­fellsbæ er sagður hafa blandað of sterkan sýkla­lyfja­skammt fyrir sautján mán­aða gam­alt barn, sem end­aði þannig að fara þurfti með barnið upp á bráða­mót­töku Barna­spít­al­ans í eitr­un­ar­próf. Barnið fékk mikla og sárs­auka­fulla sveppa­sýk­ingu í tann­holdið í kjöl­farið.

Konan sem Mannlíf hefur nú rætt við kýs að koma ekki fram undir nafni.

Hún útskýrir að sonur hennar hafi átt að fá sjö daga skammt af sýkla­lyfi. Hún hafi síðan tekið eftir því að það vant­aði einn og hálfan dag upp á skammt­inn.

Hún fékk lyfið í Apó­tek­ar­anum í Aust­ur­veri.

„Þegar ég heyri í lyfja­fræð­ingi hjá þeim þá fer hann bara í vörn og segir að lyfið komi svona til þeirra frá fram­leið­anda og þau blandi það sam­kvæmt leið­bein­ingum þaðan. Hann vildi ekki kann­ast við að hugs­an­lega hefði lyfið verið blandað vit­laust hjá þeim og að ef svo væri þá væri það ekk­ert hættu­legt. Hann sagði mér svo bara að panta tíma hjá lækni til að fá það sem vant­aði upp á,“ segir móð­irin í sam­tali við Mannlíf.

„Ég heyrði í Eitr­un­ar­mið­stöð­inni, þar sem strák­ur­inn minn var með svaka­legar pílur í mag­anum eftir þetta og hægða­tregðu – sem hann er enn með. Við end­uðum uppi á Barna­spít­ala af því að hann verkj­aði svo. Hjúkr­un­ar­fræð­ingur hjá Eitr­un­ar­mið­stöð­inni reikn­aði þetta út og sagði að hann hefði alls ekki fengið of stóran skammt af lyf­inu, þótt það hefði verið vit­laust blandað.“ Hún segir að sér hafi verið létt við að heyra það.

Aldrei áður verið með magavandamál

Seinna fór móð­irin með dreng­inn á Domus Medica, þar sem hann var enn að glíma við vanda­mál í maga.

„Læknir þar sagði mér bara að hætta að gefa honum sýkla­lyfið, sem ég gerði, en hann er enn að fá svona pílur í mag­ann.“ Hún seg­ist þó hafa velt því fyrir sér hvort um maga­kveisu væri að ræða og að þetta væri hugs­an­lega ekki eitt­hvað sem tengd­ist sýkla­lyf­inu.

Hún segir son sinn þó aldrei hafa átt við hægða­vanda­mál að stríða. Allt hafi gengið vel í þeim efnum, allt frá fæð­ingu. „Svo ég gat ekki annað en spáð í hugs­an­legum tengslum milli þess og lyfja­skammts­ins. Líka þar sem maga­kveisan kom ekki fyrr en fljót­lega eftir að hann byrj­aði á sýkla­lyfjum.“

Þarf að komast á hreint

„Á Barna­spít­al­anum náði hann að losa á meðan við biðum eftir lækni, svo við vorum bara send heim í kjöl­farið af hjúkr­un­ar­fræð­ingi þar. Það var litið svo á að þetta væri bara hægða­vanda­mál og við héldum það líka, en síðan hélt þetta áfram. Hann los­aði ekk­ert í þrjá daga í kjöl­farið og á þriðja degi náði hann að losa örlítið ásamt því að fá áfram þessar svaka­legu pílur í mag­ann.

Ég veit ekki hvað ég á að halda,“ segir móðir drengs­ins.

Hún segir að ef til vill komi í ljós að þetta geti ekki tengst ofskammti sýkla­lyfs en að það þurfi að kom­ast á hreint.

„Lækn­ir­inn á Domus tal­aði líka um að það væri orðið algengt að fá ekki réttan skammt; þann skammt sem lækn­ir­inn hefði ávísað. Hún hefði sem­sagt verið að upp­lifa það. En hún virt­ist ekki hafa neinar áhyggjur af því.“

Móðirin segir lyfja­fræð­ing­inn í apó­tek­inu hafa borið því við að hún hefði sjálf hugs­an­lega mælt þetta vit­laust fyrir son sinn eða sullað lyf­inu niður.

Hún segir það alveg af og frá. „Ég tek lyfja­skömmtun alvar­lega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi