Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jakob Frímann kominn á þing og Stuðmenn lifa: „Tónleikar í Sýrlandi ekki slegnir út af borðinu“

Jakob Frímann kominn á þing og Stuðmenn lifa: „Tónleikar í Sýrlandi ekki slegnir út af borðinu“
Jakob Frímann Magn­ús­son. Mynd: Róbert Reynisson

„Inga Sæland hafði sam­band við mig í júlí­lok og bað mig um að taka þátt í þessu. Þá var Tómas Tómasson búinn að lýsa stuðn­ingi og ákvað að fara með henni. Ég afþakk­aði þetta í fyrstu en hún tók það ekki sem gilt svar. Hún heimt­aði að ég kæmi í kaffi og heils­aði upp á sig,“ segir Jakob Frímann Magn­ús­son sem hugs­aði málið eftir að hafa hitt Ingu, fór í fram­boð og er nú rétt­kjör­inn þing­maður Flokks fólks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Tón­list­ar­mað­ur­inn, Stuð­mað­ur­inn og alþing­is­mað­ur­inn er í við­tali í Mann­líf­inu með Reyni og snýst það að mestu um hljóm­sveit­ina vin­sælu, Stuðmenn, sem hefur skemmt land­anum í ára­tugi og mun vænt­an­lega gera um ókomna tíð.

Fé ber á góma og koma Stuðmenn einmitt inn í þær pæl­ingar.

„Ég fædd­ist inn í aðstæður sem voru til­tölu­lega áhyggju­lausar og síðan varð til hljóm­sveit sem sá um mann, það er að segja Stuðmenn, og gerði það bara ágætt á þessum íslenska mark­aði, náði að fara til ýmissa heims­álfa og þjóð­landa auk þess að gera kvik­myndir, bækur og sitt­hvað fleira. En ég er langt frá því að vera ríkur maður eða eigna­maður. Ég hef haft nóg til hnífs og skeiðar. Það er ekk­ert sem segir það að þeir sem leggj­ast á sveif­inn með Flokki fólks­ins þurfi að vera úr fátæk­ustu lögum sam­fé­lags­ins. Það var kannski frekar horft til þess að maður hafi náð fram góðum málum fyrir hönd þeirra sem maður hefur barist fyrir og það var kannski fyrst og fremst það sem Inga var að höfða til þegar hún kall­aði mig til sín.“

Ég hef haft nóg til hnífs og skeiðar. Það er ekk­ert sem segir það að þeir sem leggj­ast á sveif­ina með Flokki fólks­ins þurfi að vera úr fátæk­ustu lögum sam­fé­lags­ins.
Inga Sæland hafði sam­band við mig í júlí­lok og bað mig um að taka þátt í þessu.

Sló aðsóknarmet

Jakob Frímann segir að varð­andi Stuðmenn þá hafi aldrei verið lagt af stað með ein­hverja „gróða­mó­tí­vasjón“ í þeim hópi. „Ég held að í því hafi falist ákveðin blessun að þar hefur almennt bara verið látið flæða og allar hug­myndir fengið að njóta sann­mælis og jafnan verið „inkorper­aðar“ í það sem hefur verið gert hverju sinni. Sumir kunna að telja að svo­leiðis ætti alls ekki að gera hlut­ina. Það er ekk­ert laun­unga­mál að við erum af þeirri kyn­slóð sem var mjög inn­blásin af bresku Bítlunum og þeir voru þannig hljóm­sveit að það ægði saman af alls kyns lögum af ýmsum stefnum; þung­arokkslag hér, kán­trílag næst og svo kannski ball­aða. Og það fékk allt fag­lega með­höndlun í hljóð­veri og útsetn­ingum og úr varð ofsa­lega skraut­leg og fal­leg heild­ar­mynd.“

Tón­listar- og grín­myndin Með allt á hreinu, sem var frum­sýnd árið 1982, fjallar um hljóm­sveit­irnar Stuðmenn og Gærurnar og á meðal við­fangs­efna er ástin, afbrýði­semin og einkum þó kapp­hlaup kynj­anna. Aðsókn­ar­met var slegið í kvik­mynda­húsum á land­inu. „Um 120.000 manns sáu mynd­ina á frum­sýn­ing­ar­ári. Það met verður held ég aldrei slegið á Íslandi né neinu öðru landi miðað við höfða­tölu. Aðstæður allar hafa gjör­breyst á upp­lif­unar- og afþrey­ing­ar­mark­að­inum .“

Um 120.000 manns sáu mynd­ina á frum­sýn­ing­ar­ári.

Kvik­myndin Hvítir mávar var svo frum­sýnd þremur árum síðar. Jakob Frímann segir að Stuðmenn hafi gert ráð fyrir að um 55.000 manns myndu sjá þá mynd en raunin varð önnur: Um 35.000 manns mættu í kvik­mynda­hús til að horfa sem þýddi umtals­vert tap sem varð að mæta með ein­hverjum hætti, til að mynda aug­lýs­inga­gerð „Ég bretti upp ermar og gerði til dæmis öll kynn­ing­ar­stefin fyrir hina nýstofn­uðu Stöð 2, sömu­leiðis Bylgjuna, Rás 2, frétta­stef Rík­is­út­varps­ins og síðan um 80% af öllum þeim aug­lýs­inga­lögum sem hljóm­uðu í útvarpi í kjöl­farið: Toyota-lagið, Úrval-Útsýnar-lagið, Hörpu-lagið  og fleiri slík. Þetta varð til þess að maður náði að ganga frá öllum skuldum en ég var svo­leiðis kom­inn með upp í kok að syngja um sápur, utan­lands­ferðir eða bíla að ég sagði mig frá öllu slíku og hef sem minnst komið nálægt því síðan.“

Jakob Frímann segir að Hvítir mávar sé umdeild mynd. „Menn héldu að við værum að fara að gera Með allt á hreinu númer 2 en það var engin stemmn­ing í hópnum fyrir því að end­ur­taka sömu for­múlu. Með allt á hreinu er langt frá því að vera full­komin mynd; þar gildir það sama og um önnur mann­anna verk. Þarna voru algjörir nýgræð­ingar og ama­törar að gera bíó­mynd og spinna nán­ast á staðnum og það var bara orka, gleði og húmor sem var leið­ar­ljósið. Hvítir mávar er á engan hátt full­komin mynd heldur en hún er sönn. Hún er byggð á sönnu íslensku  fjöl­skyldu­drama í kalda­stríðs­á­standi sem aldrei mátti ræða. Und­ir­tónn­inn í þeirri mynd – geisla­til­raunir Banda­ríkja­manna austur á Fjörðum – vísar auð­vitað í það að hér voru geymd hættu­leg vopn sem eng­inn vildi né mátti við­ur­kenna.“

Með allt á hreinu er langt frá því að vera full­komin mynd; þar gildir það sama og um önnur mann­anna verk.

Svo var gerð fram­halds­mynd af Með allt á hreinu, Í takt við tím­ann, sem var frum­sýnd árið 2004. „Útgangs­punkt­ur­inn í fyrri mynd­inni var gömul hljóm­sveit sem var að nið­ur­lotum komin í upp­hafi hinnar femínísku bylt­ingar. 22 árum síðar er þetta allt orðið þeim mun grát­bros­legra, súr­ara og skrýtn­ara eins og gefur að skilja.“

Það er ekk­ert laun­unga­mál að við erum af þeirri kyn­slóð sem var mjög inn­blásin af bresku Bítlunum og þeir voru þannig hljóm­sveit að það ægði saman af alls kyns lögum af ýmsum stefnum; þung­arokkslag hér, kán­trílag næst og svo kannski ball­aða.

Aldrei

52 ár. Jú, Stuðmenn hafa starfað í 52 ár. Hefur hrykt í hljóm­sveit­inni?

„Jú, það hefur svo sum gerst, rétt eins og getur gerst í öllum sam­bæri­legum hópum. Með­al­líf­tími hljóm­sveita er tvö til þrjú ár. Þetta er í okkar til­felli búinn að vera langur tími og við­vera með bæði kostum og göllum. Þegar menn verða ungir jafn­afger­andi höf­undar, hug­mynda­smiðir og flytj­endur eins og raunin varð í Stuð­mönnum þá ger­ist það jafnan eftir því sem menn eld­ast og vaxa upp að það þró­ast með mönnum mis­mikil löngun til þess að setja verk sín í púlíu og láta hræra í og þróa en í slíku sam­starfi getur hins vegar falist ansi mik­ill galdur. Enn og aftur vísa ég til John Lennon og Paul McCartney sem báru gæfu til þess að styrkja lög hvors ann­ars í sínu sam­starfi, framan af að minnsta kosti.  Það gat verið ansi tíma­frekt og krefj­andi að vera í Stuð­mönnum og ósköp eðli­legt að sumum hafi fund­ist nóg um og viljað huga meira að sínum eigin verkum.“

Þetta er í okkar til­felli búinn að vera langur tími og við­vera með bæði kostum og göllum.

Jakob Frímann er spurður hvort hann hafi aldrei haldið að þetta væri bara búið.

„Aldrei.“

Valgeir Guð­jóns­son yfir­gaf hljóm­sveit­ina árið 1986.

„Svo mætti hann á Þjóð­leik­hús­tón­leika árið 2004 – sat úti í sal með móður sinni. Við vissum ekki að hann væri að koma en buðum honum að koma upp og taka lagið með okkur. Hann var hik­andi en sló til. Móðir hans felldi tár af gleði. Þetta var fal­leg stund.

Það þró­að­ist í það að við buðum honum að koma aftur og hann þáði það með þökkum. Hann hefur að mestu verið með okkur síðan. En það er með hann eins og aðra – hann hefur ýmsu öðru að sinna eins og gengur. Á ein­hverjum tíma­punkti kvaddi Egill tíma­bundið en sneri fljót­lega aftur.“

Ýmsir tón­list­menn hafa gengið í og úr hljóm­sveit­inni eins og gengur svo sem Ragn­hildur Gísla­dóttir, fyrr­ver­andi eig­in­kona Jakobs Frímanns, dóttir þeirra, Bryndís og nú síð­ast Þórður Árnason gít­ar­leik­ari.

Er gleði í band­inu í dag?

„Já, það er óskap­lega gaman að spila með þess­ari hljóm­sveit eins og hún er skipuð í dag, með þessa stjörnu­söngv­ara og svo þessa ofboðs­lega flinku hljóð­færa­leik­ara.“

Jakob Frímann er spurður um mesta floppið tengt hljóm­sveit­inni.

„Það var búið að spila víða, meðal ann­ars í Bret­landi, Norð­ur­lönd­unum, Rúss­landi og Kína og þá kom þessi hug­mynd að efna til stór­tón­leika um sumar í Sýrlandi. Jóhanna Krist­jóns­dóttur var búin að skipu­leggja tvenna tón­leika, bæði í tón­leika­höll­inni og í óperu­hús­inu í Damaskus og það átti að fara vél með fullt af far­þegum frá Íslandi og margir búnir að skrá sig. Þá brást á með leið­indum í Jylland­sposten,“ segir Jakob Frímann og á við skop­mynd af Múhameð spá­manni sem birt­ist í blað­inu árið 2005 sem olli víða upp­námi. „Það var byrjað að brenna danska fán­ann á götum úti og allt fór í upp­nám í land­inu. Svo magn­að­ist þetta allt saman og end­aði með hörm­ung­ar­á­standi sem er búið að vera við­var­andi í allt of langan tíma og ekki sér fyrir end­ann á því miður. Tón­leikar í Sýrlandi hafa þó alls ekki verið slegnir út af borð­inu þó langur tími sé lið­inn“.

Jú, Stuðmenn eru aug­ljós­lega enn í fullu fjöri og Jakob Frí­manner spurður hvort hann ætli nokkuð að van­rækja Stuðmenn þrátt fyrir vax­andi annir.

„Alls ekki!“

„Já, það er óskap­lega gaman að spila með þess­ari hljóm­sveit eins og hún er skipuð í dag, með þessa stjörnu­söngv­ara og svo þessa ofboðs­lega flinku hljóð­færa­leik­ara.“

Mann­lífið með Reyni er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi