Nóg hefur verið að gera hjá björgunarsveitarfólki undanfarið en í dag var 11 ára drengi komið til aðstoðar við gosstöðvarnar á Reykjanesi en talið er að hann hefði farið út hnjálið. Með í för björgunarsveitarinnar voru sjúkraflutningamenn en hlúð var að drengnum á slysstað áður en hann var fluttur að sjúkrabíl.
Kemur þetta fram í tilkynningu frá slysavarnarfélaginu Landsbjörg. Þá komu björgunarsveitamenn aukreitis 12 ára stúlku til hjálpar en hún hafði slasast á fæti við Hestfjall í Skorradal. Var hún flutt á sjúkrahús eftir að búið hafði verið um hana í sjúkrabörur.
Við Geysi í Haukadal hrasaði maður illa í hálku svo fóturinn brotnaði en vettvangsaðilar aðstoðuðu hann. Var maðurinn frekar kvalinn en hann var fluttur til móts við sjúkrabíl sem flutti hann á sjúkrahús í borginni.































Athugasemdir