Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Draugagangur í Skipalóni

Draugagangur í Skipalóni

Þann 13. nóv­em­ber, árið 2008, birt­ist í Fjarð­ar­póst­inum frétt um óskunda mik­inn, sem gerður var í hálf­kar­aðri blokk í Skipa­lóni í Hafn­ar­firði. Þá voru aðeins örfáir íbúar fluttir inn í fjöl­býl­is­húsið, eðli máls­ins sam­kvæmt, sem eflaust var drunga­legt á að líta; lítið um ljós í gluggum og fleira slíkt sem ann­ars breytir köldum stein­steypukössum í hlý­leg híbýli.

Kvöld eitt í vik­unni áður en fréttin birt­ist í Fjarð­ar­póst­inum voru íbúar einnar íbúð­ar­innar í mestu mak­indum heima hjá sér og áttu sér einskis ills von. Skyndi­lega var sem allir árar vítis væru mættir, slíkur var hávað­inn þegar höggin dundu á úti­dyra­hurð­inni. Einnig barst mikil háreysti að utan sem inni­hélt að stærstum hluta fólsku­legt orð­bragð og hót­anir um ill örlög íbúa ef þeir gengju ekki að kröfum óvætt­anna sem fóru mik­inn úti fyrir.

Samkvæmt frétt í Fjarð­ar­póst­inum mátti draga þá ályktun að óprút­tnir ein­stak­lingar hefðu gert sér að leik „að búa til drauga­gang í blokk­inni“ umrætt kvöld. Sann­leik­ur­inn er þó annar, því sam­kvæmt áreið­an­legum, síð­ari tíma heim­ildum bár­ust inn í íbúð­ina háværar kröfur um að íbúar „borg­uðu skuld­ina“ ella hefðu þeir verra af.

Skelk­aðir íbú­arnir inni fyrir nötr­uðu af skelf­ingu, slíkar voru bar­smíð­arnar og öskrin að utan. Könn­uð­ust þeir enda ekki við að skulda nokkrum manni nokkuð, nema ef vera skyldi ónafn­greindum banka og fannst þeim ólík­legt að hann gripi til inn­heimtu­að­gerða af þessu tagi þótt alkunna sé að bankar elta skuldu­nauta sína út yfir gröf og dauða ef svo ber undir.

„Með öskrum og banki tókst þeim [hávaða­seggj­unum, innsk.] að búa til hræðslu­á­stand hjá íbúum sem end­aði með því að íbúar, sem hrekk­ur­inn beind­ist að, læstu sig inni á sal­erni og hringdu á lög­regl­una,“ segir í Fjarð­ar­póst­inum.

Hófst þá atburða­rás sem hefði sómt sér í amer­ískri glæpa­mynd. Í Fjarð­ar­póst­inum segir: „Tveir lög­reglu­bílar voru sendir á for­gangi á stað­inn og er lög­reglu­menn komu heyrðu þeir öskur og hróp í blokk­inni. Gengu menn fljót­lega á hljóðin og kom þá í ljós að um hrekk var að ræða.“
Sagan segir reyndar að lög­reglu­menn hafi talið sig sjá til manna­ferða þar sem engar áttu að vera í hús­inu og haf­ist hafi eft­ir­för mikil, þar sem brjót­ast þurfti inn í mannauðar íbúðir með til­heyr­andi tjóni. Hér skal ekki full­yrt um hvort sú hafi verið raunin, enda alkunna að lax­inn á það til að stækka og þyngj­ast í hverri nýrri frá­sögn af veiði­ferð­inni … með ákveðnum greini.

Ætlun hrekkjaló­manna var þó ekki að búa til drauga­gang, heldur þótt­ust þeir vera und­ir­heima menn að inn­heimta skuld sem til hafði verið stofnað í þeirri kreðsu. Enn fremur kom í ljós að þarna voru ekki á ferð­inni ókunn­ugir menn sem af ein­skærri illsku höfðu látið til skarar skríða við íbúð­ina. Einnig varð ljóst að ekki hafði kylfa ráðið kasti þegar íbúðin og íbúar hennar voru valdir sem skot­spónn.

Sann­leik­ur­inn var mun nær­tæk­ari; þannig var mál með vexti að hús­ráð­andi var ónafn­greind kona, sem nýlega hafði fest kaup á íbúð­inni, og fyrir utan voru faðir kon­unnar og bróðir sem höfðu hugsað gjörn­ing­inn sem græsku­laust grín. Tvær lög­reglu­bif­reiðir í for­gangsakstri og fjöldi lög­reglu­manna hafði ekki verið inni í mynd­inni þegar hug­myndin hafði fæðst og síðar verið fram­kvæmd. Þeir ku hafa verið æði nið­ur­lútir þegar þeir báð­ust afsök­unar á þessu glensi.
Grínið féll í mjög grýttan jarð­veg hjá dóttur for­sprakk­ans og lög­reglu­mönn­unum var, merki­legt nokk, ekki skemmt.

En þarna lauk sög­unni ekki, því konan ákvað að launa pöru­pilt­unum lambið gráa; þeir skyldu fá til tevatns­ins. Því setti hún aug­lýs­ingu á Bland þar sem sagði að tvö­faldur, leð­ur­klæddur, amer­ískur ísskápur feng­ist gef­ins ef hann yrði sóttur og að hægt væri að fá frek­ari upp­lýs­ingar í síma. Aug­lýs­ing­unni lét konan fylgja síma­númer föður síns og bróður. Eins og við var að búast þagn­aði ekki sími hjá óknytta­drengj­unum heldur hringdi hvort tveggja oft og frekju­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi