Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ráðaleysi ráðherranna – Áslaug Arna vísar á Katrínu sem vísar á Áslaugu Örnu og Ásmundur segir nei

Ráðaleysi ráðherranna – Áslaug Arna vísar á Katrínu sem vísar á Áslaugu Örnu og Ásmundur segir nei
Katrín Jak­obs­dóttir, Mynd: Róbert Reynisson

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra vill meina að það sé hlut­verk dóms­mála­ráð­herra, Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, að skera úr um hvort ráð­ist verði í rann­sókn á Vist­heim­il­inu á Hjalt­eyri.

Áslaug Arna segir aftur á móti að það sé hins vegar á ábyrgð Katrínar.

Þriðji ráð­herr­ann, Ásmundur Einar Daðason barna­mála­ráð­herra, er greini­lega á sömu bylgju­lengd og þær Áslaug Arna og Katrín og vill ekk­ert með málið hafa, en mun­ur­inn er þó að Ásmundur bendir ekki á ein­hvern annan eins og þær áður­nefndu stöllur gera eins og ekk­ert sé sjálf­sagð­ara.

Vist­heim­ilið var opið á Hjalt­eyri á árunum 1972 til 11979 en fólk sem dvald­ist þar á barns­aldri hefur lýst kyn­ferð­is­of­beldi og öðru við­bjóðs­legu ofbeldi af hendi hjón­anna sem ráku heim­ilið.

Málið hefur vakið sterk við­brögð í sam­fé­lag­inu og kallað hefur verið eftir því að stjórn­völd rann­saki það sem fram fór á Hjalt­eyri.

RÚV náði tali af ofan­greindum ráð­herrum og krafð­ist svara:

„Þetta eru auð­vitað slá­andi frá­sagnir sem við höfum verið að heyra í fjöl­miðlum,“ sagði Katrín for­sæt­is­ráð­herra, en Áslaug Arna dóms­mála­ráð­herra vísar mál­inu til for­sæt­is­ráð­herra:

„Það er á for­ræði for­sæt­is­ráð­herra. Hún er með þetta,“ sagði Áslaug og var svo spurð:

 Ætlar hún að tjá sig um það?

„Ég býst við því já,“ sagði Áslaug Arna.

Katrín er alls ekki sam­mála orðum Áslaugar Örnu:

„Nú heyra þessi lög undir dóms­mála­ráðu­neytið og vænt­an­lega verður þetta tekið til skoð­unar þar í sam­ráði við sveit­ar­fé­lögin sem hafa lýst að þau hafi hug á að taka þetta til sér­stakrar skoð­unar,“ sagði Katrín.

Ásmundur Einar barna- og félags­mála­ráð­herra segir líka að málið sé ekki á sínu borði, og var spurður:

Nú hefur umsjón­ar­maður sann­girn­is­bóta, bæj­ar­stjór­inn á Akureyri, fyrr­ver­andi félags­mála­stjóri Akur­eyr­ar­bæjar kallað eftir að þetta heim­ili verði rann­sakað eins og önnur vist­heim­ili. Hvað finnst þér um það?

„Það er eins og ég segi ekki form­lega á mínu borði,“ var svar hans við þeirri spurn­ingu.

 Katrín var síðan spurð hvort rík­is­stjórnin muni ákveða að það verði ein­hver rann­sókn á vegum rík­is­ins eða Vist­heim­ila­nefndar á þessu?

„Það er þá dóms­mála­ráð­herra sem þarf að meta það þar sem lögin heyra undir hana. Og ég vænti þess að hún muni taka þetta til skoð­unar,“ sagði Katrín.

Dóms­mála­ráð­herra vísar á for­sæt­is­ráð­herra, félags­mála­ráð­herra vísar þessu líka frá sér. Hvers vegna vísið þið hvert á annað?

„Samkvæmt for­seta­úr­skurði á þetta heima hjá dóms­mála­ráð­herra, en það þarf eðli­lega að ger­ast í ein­hverju sam­ráði þess­ara ráð­herra og líka þess­ara sveit­ar­fé­laga sem báru ábyrgð á rekstri heim­il­is­ins á sínum tíma. Líkt og Reykja­vík­ur­borg hefur ákveðið að gera varð­andi Arn­ar­holt sem eftir sam­ráð okkar við Reykja­vík­ur­borg var ákveðið að Reykja­vík­ur­borg myndi ann­ast þá rann­sókn,“ sagði Katrín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi