Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Golfhjónin Margrét og Pétur: „Valið stóð um nýja konu eða fara í golf með Margréti“

Golfhjónin Margrét og Pétur: „Valið stóð um nýja konu eða fara í golf með Margréti“
Mynd úr mynda­banka og teng­ist ekki frétt­inn. Mynd: shapecharge / Getty Images

Hjónin Margrét Þor­valds­dóttir og Pétur Björns­son tóku sér golf­kylfu í hönd í fyrsta skiptið árið 2011 og nú, tíu árum síðar, snýst líf þeirra mikið til um golf, en þó ekki alveg. Þau eru fædd 1955 og hafa feng­ist við ýmis­legt um ævina. Hann er frá Rauf­ar­höfn og hún frá Akureyri og lágu leiðir þeirra saman í MA. Hann fór svo í Stýri­manna­skól­ann og hún í Kenn­ara­skól­ann og svo tók lífið við.

Valið stóð um nýja konu eða fara í golf með Margréti

„Ég próf­aði fyrst að slá golf­kúlu sum­arið 2011 en Pétur tveimur árum síðar,” segir Margrét. Það má segja að golfið hafi hel­tekið mig frá fyrsta höggi og þá var ekki aftur snúið. Maður er alltaf að keppa við að bæta sinn eigin árangur og keppnin er því fyrst og fremst við sjálfan sig þótt skemmti­legra sé að spila með fleirum. Maður er alltaf að vinna í eigin for­gjöf sem er svo spenn­andi,“ segir Pétur við Sólveigu Bald­urs­dóttur, blaða­mann.

Margrét segir að Pétur hafi verið heldur lengur í gang og hann bætir við: „þetta var þannig að Margrét hvarf eitt sum­arið og þá þurfti ég að taka ákvörðun um að fá mér nýja konu eða fara með Margréti í golfið,” segir Pétur og hlær. „Þar sem sam­bandið hafði reynst ágæt­lega í rúm 40 ár valdi ég seinni kost­inn,” bætir Pétur við og er sáttur við þá ákvörðun sína.

Golfferð til Suður Afríku þar sem þau kynntust öðrum „golfhjónum“

Árið 2017 fóru Pétur og Margrét í golf­ferð til Suður Afríku þar sem þau kynnt­ust öðrum golf­hjónum, eða þeim Sigríði Björns­dóttur og Gunn­laugi Elsusyni. Þau eru mikið áhuga­fólk um golf og Gunn­laugur er PGA golf­kenn­ari.

„Þannig vildi til að þau hjónin stóðu í flutn­ingum í byrjun þessa árs og vant­aði stað til að búa á í stuttan tíma og bjuggu þá hjá okkur í kjall­ar­anum í mánuð,” segir Margrét.

„Áður en þau fluttu út var hug­myndin fædd og búið að fjár­festa í hús­næði og kaupa fjórtán herma,” bætir Margrét við og ljóst er að þarna mætt­ust kraft­miklir ein­stak­lingar og til varð eitt­hvað skemmti­legt.

Úr fiskinum í golfið

Starfs­fer­ill Péturs byrj­aði í tengslum við fisk en það gerð­ist þannig að hann fór að vinna fyrir breskt fyr­ir­tæki sem sá um afgreiðslu og sölu á ísfiski fyrir íslensk fiski­skip sem sigldu með afl­ann til Englands. Pétur fékk fyrst vinnu hjá þeim sem túlkur og afgreiðslu­maður fyrir skipin og áhafnir þeirra því þá vant­aði mann sem kunni íslensku og ensku. Það varð vendi­punktur í lífi hans og Mar­grétar.

„Við fluttum út 1981 með tvö eldri börnin okkar og ætl­uðum að vera í tvö ár en þau urðu 16,” segja þau.

„Við vorum búin að vera þar í fimm ár þegar við stofn­uðum okkar eigið fyr­ir­tæki sem heitir Ísberg Ltd. Sá rekstur gekk mjög vel.  1992 stofn­uðum við svo fyr­ir­tæki á Íslandi ásamt bróður mínum,” segir Pétur.

„Það fyr­ir­tæki fékk nafnið Ísfell og selur bæði efni til veið­ar­færa og full­búin veið­ar­færi auk hífi­bún­aðar og margt fleira. Þetta var lítið fyr­ir­tæki til að byrja með en nú eru starfs­stöðv­arnar orðnar 8 um allt land. Ég seldi minn hlut í þessu fyr­ir­tæki fyrir tveimur árum og not­aði m.a. þann pen­ing til að byggja upp Golf­höll­ina,” segir Pétur.

Golf­höll­ina er eitt fyrsta húsið sem reist var á upp­fyll­ing­unni sem nú myndar Grandann. Húsið var reist nokkrum útgerð­ar­fyr­ir­tækjum bæði til fisk­verk­unar svo og veið­ar­færa­gerðar o.fl.  Það var til skamms tíma kennt við þá Aðal­bjarg­ar­bræður sem voru þar með sína starf­semi í ára­tugi.

Margrét segir að þau Pétur hafi verið farin að hugsa um að hægja svo­lítið á. „En það kemur alltaf eitt­hvað skemmti­legt upp í hend­urnar á okkur og þá stökkvum við til,” segja þessi lif­andi hjón sem nýta tæki­færin sem gef­ast og lifa líf­inu lif­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi