Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Covid hefur reynst mörgum erfitt – ekki síst sú einangrun og óvissa sem hefur fylgt heimsfaraldri“

„Covid hefur reynst mörgum erfitt – ekki síst sú einangrun og óvissa sem hefur fylgt heimsfaraldri“

„Fyrir utan aukna eft­ir­spurn eftir geð­heil­brigð­is­þjón­ustu í kjöl­far Covid, þá hefur sú mikla og nauð­syn­lega umræða í fjöl­miðlum varð­andi kyn­bundið og kyn­ferð­is­legt ofbeldi einnig haft áhrif. Í kjöl­far slíkrar umræðu eykst yfir­leitt eft­ir­spurn eftir við­tölum hjá þeim sér­fræð­ingum sem sinna þolendum í slíkum málum. Það er í raun af hinu góða, þar sem slík umræða verður oft til þess að fólks leitar loks eftir aðstoð,“ segir Þóra Sig­fríður Ein­ars­dóttir, sál­fræð­ingur við Domus Mentis-geð­heilsu­stöð. Við ræddum við hana um stöðu geð­heil­brigð­is­mála á Covid-tímum.

Að sinna geðheilbrigði er hluti af því að hugsa vel um sjálfan sig

„Það getur alveg verið stórt skref fyrir marga að hafa sam­band við sál­fræð­ing eða aðra sér­fræð­inga á geð­heil­brigð­is­svið­inu. Sem betur fer þá verður sífellt við­ur­kennd­ara að það að sinna geð­heil­brigði sé hluti af því að hugsa vel um sjálfan sig. En ég myndi hvetja þá sem eru að taka sín fyrstu skref til að hafa sam­band, það er yfir­leitt auð­veld­ara en fólk heldur.“

Þóra segir að geð­heil­brigð­is­kerfið hafi verið að kljást við biðlista í þó nokkurn tíma. Þau vilji mæta fólki þegar það þarf á því að halda. Eins þegar fólk getur ekki fengið við­eig­andi þjón­ustu vegna fjár­hags, en sál­fræði­með­ferð krefst þess að fólk komi í reglu­leg við­töl, allra helst einu sinni í viku til að byrja með. Kostn­aður við með­ferð­ina getur verið mjög íþyngj­andi og því eru ekki allir sem geta sótt þessa nauð­syn­legu heil­brigð­is­þjón­ustu.

Samtalið bein­ist að heims­far­aldr­inum og hvernig geð­heil­brigð­is­þjón­ustan hafi náð utan um aukna eft­ir­spurn eftir þjón­ust­unni.

„Við sjáum að Covid hefur reynst mörgum erfitt, ekki síst sú ein­angrun og óvissa sem hefur fylgt heims­far­aldri. Ég held að flestir sem sinna geð­heil­brigð­is­þjón­ustu hafi orðið varir við aukna eft­ir­spurn frá því að heims­far­ald­ur­inn hóf yfir­reið sína.

Í fyrstu vorum við jú bjart­sýn á að með sam­taka­mætti þá myndum við sigra þessa veiru á nokkrum vikum, hugs­an­lega nokkrum mán­uðum. Nú, næstum tveimur árum seinna, erum við nán­ast í sömu stöðu og í upp­hafi. Það þýðir jú áfram­hald­andi óvissu og ákveðna ógn, ógn við eigin heilsu, afkomu og annað.

Þetta eru því álags­tímar og mik­il­vægt að fólk hlúi að geð­heils­unni. Það er ýmis­legt hægt að gera til þess, kannski fyrst og fremst að sinna grunn­þörfum okkar, það eru svefn, hreyf­ing, nær­ing og svo eru það félags­legu sam­skiptin.“

Ein af afleiðingum Covid eru mjög breyttar vinnuaðstæður

„Þetta hljómar kannski ein­falt en stað­reyndin er sú að þegar við erum undir álagi þá eru það þessir grunn­þættir sem fjúka oft fyrstir út í veður og vind. Ekki síst þegar ein af afleið­ingum Covid eru mjög breyttar vinnu­að­stæður.

Nú þegar fjar­vinna verður sífellt algeng­ari er hætta á því að rútínan verði ekki í eins föstum skorðum þegar við þurfum ekki að mæta á ákveð­inn stað á ákveðnum tíma. Fólk hefur meira frelsi til að sinna verk­efnum sínum á ólíkum tímum.

En það er mik­il­vægt að reyna að setja skýr skil á milli vinnu­tíma/vinnu­staðar og frí­tíma/heim­ilis. Og reyna að hafa hlut­ina í eins föstum skorðum og mögu­legt er. Svo má ekki gleyma því að sinna félags­legum tengslum og gera eitt­hvað skemmti­legt.

Hægt er að lesa við­talið í heild sinni í helg­ar­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi