Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kári slakur gagnvart nýju veiruafbrigði: „Ég vona að við komumst í gegnum þessi jól glöð og kát“

Kári slakur gagnvart nýju veiruafbrigði: „Ég vona að við komumst í gegnum þessi jól glöð og kát“
Kári Stef­áns­son Mynd / Hallur Karlsson

Það er fræði­lega mögu­legt og lík­lega hafa menn ein­hverjar vís­bend­ingar um að nýtt afbrigði SARS-CoV-2 sé meira smit­andi og lík­legra til að kom­ast hjá ónæm­is­vörnum lík­am­ans en það hefur alls ekki verið sannað enn sem komið er. Þetta ítrek­aði Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, í sam­tali við Reykja­vík síð­degis í gær, þar sem rætt var um afbrigðið B.1.1.529.

Stór hundraðshluti af smitum er hjá krökkum

Fregnir bár­ust af því í gær að Lyfja­stofnun Evrópu hefði heim­ilað bólu­setn­ingu barna á aldr­inum 5 til 11 ára með bólu­efn­inu frá Pfizer. Kári seg­ist telja að það muni hafa meiri­háttar áhrif, þar sem veiran sé að smokra sér manna á milli í gegnum börnin.

Þá segir lík­legt að börnin verði bólu­sett þrisvar, líkt og full­orðnir, en þess ber að geta að þau fá minni skammt.

Þegar Kári var spurður um stöðu kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hér­lendis og horf­urnar fyrir jól seg­ist hann von­ast til þess að þriðji skammt­ur­inn af bólu­efn­unum muni hafa mikil áhrif á útbreiðslu veirunnar.

„Mér skilst að býsna stór hund­raðs­hluti af smitum sé hjá krökkum, sem hafa ekki verið bólu­settir. Mér sýnst á tölum sem ber­ast frá sjúkra­stofn­unum að alltof stór hund­raðs­hluti þeirra sem er að lasnast núna sé óbólu­settur. Þannig að ég vona að bólu­setn­ing­arnar sem slíkar komi til með að hafa meiri­háttar áhrif,“ svar­aði Kári.

„Ég vona að við komumst í gegnum þessi jól glöð og kát og án of mik­illa áhrifa frá pest­inni.“

Afbrigðið er með fjölda stökkbreytinga

77 til­vik hafa verið stað­fest í Suður-Afríku, fjögur í Botswana og eitt í Hong Kong en þar var um að ræða ferða­lang sem var að koma frá Suður-Afríku.

Afbrigðið er með fjölda stökk­breyt­inga í svoköll­uðu bindi­pró­tíni og uggur vegna þess hefur orðið til þess að Bretar hafa bannað flug frá nokkrum Afr­íku­ríkjum.

„Ég hef ekki séð gögn sem hægt er að rýna í sem benda til slíks,“ sagði Kári um þann mögu­leika að nýja afbrigðið væri smit­næmara en önnur.

„Ætli það sé ekki enn einu sinni að menn séu kannski svo­lítið á undan sjálfum sér í að draga ályktun. Ég veit ekki hvernig við förum að því að bera saman útbreiðslu á veirunni í Botswana og til dæmis í Evrópu.

Þannig að ég held að við eigum bara að draga djúpt and­ann og bíða svo­lítið. Ég held að það sé ekk­ert enn sem gerir það að verkum að við þurfum að rjúka upp til handa og fóta vegna enn smit­næmara afbrigðis í Botswana,“ sagði Kári.

„Það sem ræður útbreiðslu þess­arar veiru er ekki bara hversu smit­andi hún er heldur ræðst hún líka af hegðun manna. Þannig að vissu leyti er Covid-19 sjúk­dóm­ur­inn hegð­un­ar­sjúk­dómur; það er að segja lík­urnar á því að menn smit­ist ráð­ast tölu­vert mikið af hegðun þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi