Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skotmaðurinn á Egilsstöðum beindi hlaðinni haglabyssu að tveimur piltum

Skotmaðurinn á Egilsstöðum beindi hlaðinni haglabyssu að tveimur piltum
skotárás Mynd: Gunnar Gunnarsson

Karl­mað­ur­inn sem fór um Dalsel á Egils­stöðum í lok ágúst og gekk þar ber­serks­gang, vopn­aður tveimur byssum hefur nú verið ákærður fyrir marg­vís­leg brot.

Ákæra var gefin út á hendur honum um miðjan nóv­em­ber en honum birt ákæran í síð­ustu viku. Er hann ákærður fyrir til­raunir til mann­dráps, ógnun við öryggi almenn­ings, vopna­laga­brot, brot gegn vald­stjórn­inni og barna­laga­brot.

Aust­ur­frétt segir frá mál­inu í dag.

Að lokum var mað­ur­inn tek­inn úr umferð er lög­reglu­maður skaut hann eftir að hann hafði beint hagla­byssu sinni að lög­regl­unni. Við tók sjúkra­flutn­ingur til Reykja­víkur þar sem hann gekkst undir gríð­ar­lega krefj­andi aðgerð sem bjarg­aði lífi hans. Síðan þá hefur hann verið í gæslu­varða­ldi.

Beindi skammbyssu að sambýliskonu sinni

Fyrsti liður í ákærunni snýr að broti hans í nánu sam­bandi og vopna­lögum en hann, undir áhrifum áfengis, beindi skamm­byssu að sam­býl­is­konu sinni á heim­ili þeirra í Fellabæ

Þá snýr annar liður ákærunnar að til­raun til mann­dráps, hús­brot, eigna­spjöll og vopna­laga­brot. Er honum gefið að sök að hafa ráð­ist inn í hús fyrrum eig­in­manns sam­býl­is­konu sinnar, vopn­aður skamm­byssu og hagla­byssu með þeim ásetn­ingi að drepa hús­ráð­anda, sem hafði yfir­gefið húsið stuttu áður. Í hús­inu skaut mað­ur­inn þremur skotum úr hagla­byss­unni og tveimur úr skamm­byss­unni. Olli hann þannig skemmdum á bað­her­bergi og í eld­húsi. Þá skaut hann aukreitis sex skotum úr skamm­byss­unni og þremur úr hagla­byss­unni á tvo bíla í hlað­inu.

Skotsár á rúðu Ljósmynd/ Gunnar Gunn­ars­son.

Þriðji ákæru­lið­ur­inn er fyrir brot gegn barna­vernd­ar­lögum sem og á vopna­lögum fyrir að hóta tveimur bræðrum, 12 og 14 ára, á heim­ili þeirra með því að beina hlað­inni hagla­byssu að þeim þar sem þeir sátu í sófa í stof­unni. Þeim tókst svo að flýja út um stofu­dyr og út í skóg. Drengirnir eru synir hús­ráð­anda og sam­býl­is­konu skot­manns­ins.

Skaut að lögreglumönnum

Þá er fjórði ákæru­lið­ur­inn fyrir til­raun til mann­dráps, brot gegn vald­stjórn­inni, eigna­spjöll, vopna­laga­brot og ógn við öryggi fólks. Er mað­ur­inn sak­aður um að hafa skotið úr and­dyri húss­ins, þrisvar úr hagla­byss­unni á bíl í hlað­inu þar sem tveir lög­reglu­menn höfðu leitað skjóls á bak­við. Skotin lentu í bílnum og fram­hlið húss­ins á móti. Þar með telst hann

Fjórði lið­ur­inn er fyrir til­raun til mann­dráps, brot gegn vald­stjórn­inni, eigna­spjöll, vopna­laga­brot og ógn við öryggi fólks. Maðurinn á að hafa, úr and­dyri húss­ins, skotið þrisvar úr hagla­byss­unni á bíl í hlað­inu sem tveir lög­reglu­menn höfðu leitað skjóls á bak­við. Höglin lenti í bílnum og fram­hlið húss­ins á móti. Með þessu telst hann með ósvífnum hætti hafa stofnað lífi og heilsu fólks í auð­sjá­an­legan háska.

Síðasti lið­ur­inn snýr að broti gegn vald­stjórn og vopna­lögum með því að hafa gengið að lög­reglu­bíl og beint að lög­reglu­manni sem þar hafði leitað skjóls, hlað­inni hagla­byssu.

Auk ákæru hér­aðs­sak­sókn­ara hafa konan, fyrrum eig­in­maður hennar og synir þeirra höfðað einka­mál gegn mann­inum. Fara þau fram á tæpa níu og hálfa milljón króna auk máls­kostn­aðar.

Sjá einnig: Fjölmörg kúlna­för eftir skotárás­ina – Sjáðu myndir af vett­vangi á Egils­stöðum
Sjá einnig: Áfalla­mið­stöð opnuð á Egils­stöðum eftir skotárás – Maðurinn liggur þungt hald­inn

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi