Nýjar upplýsingar komu fram við aðalmeðferð máls Hilmars V. Gylfasonar gegn SSF, er snúa að innbroti stjórnar samtakanna í tölvupóst Hilmars sem þá var í veikindaleyfi.
Hilmar Vilberg Gylfason hefur stefnt Samtökum starfsmanna fjármálafyrirtækja líkt og fram hefur komið í fréttum áður. Aðalmeðferð málsins var tekin fyrir rétti á dögunum og munu dómarar í málinu taka sér nokkra mánuði til að komast að niðurstöðu. Stefna Hilmars er í þremur liðum. Þeir eru eftirfarandi:
1. Krafa um greiðslu fyrir ógreitt orlof, ógreidda yfirvinnu og kostnað vegna lögmannsaðstoðar.
2. Krafa um skaðabætur vegna ólögmætrar uppsagnar.
3. Krafa um miskabætur skv. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 vegna slæmra vinnuaðstæðna, eineltis, ofbeldis, saknæms athafnaleysis stefnda og vegna þess hvernig stefndi stóð að ólögmætri uppsögn stefnanda.
Kostnaðurinn sem um ræðir í lið 1 kom til vegna lögmannsaðstoðar sem Hilmar sótti í tengslum við málið sem nú er fyrir dómi, meðal annars vegna innbrots inn í tölvupóstfang Hilmars þar sem aðgerðaskrám var eytt.
Í réttarhaldinu komu fram nýjar upplýsinga sem renna stoðum undir þann grun að Friðbert Traustason, formaður SSF hefði sjálfur brotist inn í tölvupóstinn. Þar bar stjórnarmaður vitni um að innbrotið í tölvupóstinn hjá Hilmari, sem Persónuvernd var búin að úrskurða ólögmætt, var ákveðið á stjórnarfundi og framkvæmdastjórinn látinn framkvæma það.
Í samtali við Mannlíf sagði Hilmar að hingað til hefur því verið haldið fram að Friðbert hefði ekkert komið að málinu.
„Þau hafa allan tímann haldið því fram að framkvæmdastjóranum hafi verið haldið utan við allt en í þessum vitnisburði kom fram að hann var inni í ýmsum ákvörðunum gagnvart mér.“
Áður hafði Persónuvernd vísað máli er snéri að innbrotinu frá vegna skorts á sönnunargögnum en þarna virðist vera komin sönnun, vitnisburður stjórnarmanns.































Athugasemdir