Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lifir einföldu lífi; dreymir um að komast burt – Á ská og skjön við allt og alla:„Ég lærði af Nóa“

Lifir einföldu lífi; dreymir um að komast burt – Á ská og skjön við allt og alla:„Ég lærði af Nóa“
Mynd. Skjáskot/RÚV Mynd: cc

Nói albinói er fyrsta kvik­mynd Dags Kára Pét­urs­sonar í fullri lengd. Kvik­myndin lýsir sannri íslenskri stemmn­ingu í firði fullum af snjó með nokkrum furðu­fuglum á stangli. Kvik­myndin er ang­ur­vær og ljóð­ræn þar sem dauð­leik­inn, örlögin og for­spár­gildi stýra undir­öld­unni, en skemmti­leg húmor­ísk saga siglir öldu­topp­ana.

Kvik­myndin hlaut sex Eddu­verð­laun árið 2003 og var send í for­val til Ósk­ars­ins árið 2004. Myndin fjallar um ungan dreng að nafni Nói, sem býr í afskekktum bæ á Íslandi. Nóa gengur ekki vel í skóla og fær litla virð­ingu heima hjá sér. Hann kynn­ist ungri stelpu frá Reykja­vík og ákveður að strjúka í burtu með henni. En hún er ekki á sama máli.

Myndin er borin uppi af sterkum, húmor­ískum sam­tölum og óvenju­legum per­sónum.

Sögunni vindur fram á rúmri viku um vetur í þorpi í djúpum firði þar sem him­inhá fjöll gnæfa yfir byggð­ina. Nói er hvorki full­orð­inn né barn heldur upp­á­tækja­samur vand­ræðaung­lingur sem er á skjön við allt og alla. Skóla­yf­ir­völd sveifl­ast á milli að telja strák­inn til snill­inga eða versta nem­and­ann í sögu skól­ans og lög­reglan hefur sínar ástæður til að hafa á honum vök­ult auga.

Nói er óvenju­legur 17 ára strákur sem býr í þorpi á Vest­fjörðum. Á vet­urna er fjörð­ur­inn ein­angr­aður frá umheim­inum, umkringdur yfir­þyrm­andi fjöllum og graf­inn undir þykku snjó­lagi. Nóa dreymir um að flýja þetta hvít­veggj­aða fang­elsi og eygir loks von um láta þann draum ræt­ast þegar hann kynn­ist Írisi, stúlku úr borg­inni sem kemur til vinnu á bens­íns­stöð bæj­ar­ins. Áætlanir hans um flótta renna þó klaufa­lega úr greipum hans og enda í algjöru klúðri. Aðeins skelfi­legar nátt­úru­ham­farir leysa Nóa úr fjötr­unum og bjóða honum sýn á betri heim.

Inni­lok­un­ar­kennd Nóa magn­ast í hlut­falli við snjó­inn sem kyngir niður í pláss­inu. Flótti virð­ist vera eina und­an­komu­leiðin, en þá grípa örlögin í taumana.

Snjóflóð og ófærð 

Nói albínói er tekin á Vest­fjörðum og voru veð­urguð­irnir kvik­mynda­gerð­ar­mönn­unum hlið­hollir eins og glögg­lega sést í mynd­inni. Snjórinn færði allt í kaf; snjó­flóð og ófærð töfðu fyrir flutn­ingum á láði og í lofti. Allt fór þó vel að lokum.

Tómas Lemarquis lék Nóa albínóa en röð til­vilj­ana allt frá því er hann var tíu ára olli því að hann fékk hlut­verkið. Tómas vakti á sínum tíma mikla athygli fyrir leik sinn í mynd­inni enda eiga hann og Nói albínói ýmis­legt sam­eig­in­legt að eigin sögn.

En hvernig fékk Tómas, til­tölu­lega óþekktur leik­ari á þessum tíma, aðal­hlut­verkið í mynd­inni?

„Það var eig­in­lega röð til­vilj­ana sem á rætur sínar í lít­illi ákvörðun sem ég tók þegar ég var tíu ára. Ég er fæddur og upp­al­inn í Grjóta­þorp­inu og var vanur að labba niður Fischersundið og beygja inn Mjóstræti þegar ég var að leika mér. Dag einn ákvað ég að halda áfram niður Fischersund út af því að ég sá að það var eitt­hvað að ger­ast þarna nið­ur­frá. Það reynd­ist vera Ásgrímur Sverr­is­son að taka upp mynd­band með hljóm­sveit­inni Kátir piltar. Ég spurði hvort ég mætti vera með og fékk að lokum hlut­verk í mynd­band­inu.

Á skjön við allt og alla í samfélaginu

Ellefu árum síðar mundi Ásgrímur eftir mér og fékk mig til að leika í sínum hluta í kvik­mynd­inni Villi­ljósi. Þar sá Dagur mig og fékk mig til að leika Nóa,“ segir Tómas í sam­tali við blaða­mann Morg­un­blaðs­ins.

Persónan Nói albínói er ung­lingur sem er á skjön við allt og alla í sam­fé­lag­inu. Hann lifir ein­földu lífi í litlu þorpi úti á landi og dreymir um að kom­ast burt. Tómas segir að per­sónan Nói hafi haft mikil áhrif á sig:

„Ég lærði ýmis­legt af Nóa. Hann fylgir alltaf sinni sann­fær­ingu jafn­vel þótt það sem hann gerir sé ekki við­ur­kennt af sam­fé­lag­inu. Ef hann langar að baka pönnu­kökur og telur það gera sér gott þá gerir hann það frekar en að mæta í skól­ann og láta sér leið­ast. Mér finnst þetta umhugs­un­ar­vert þar sem margt í okkar skóla­kerfi er þannig að ekki er ætl­ast til nógu mik­ils af ein­stak­ling­unum sjálfum. Það gengur frekar út á að mata nem­endur á upp­lýs­ingum en að virkja það sem ein­stak­ling­arnir hafa fram að færa.

Nói er eig­in­lega eins og þegar maður var krakki, þá gerði maður það sem manni datt í hug, en nú er eig­in­lega búið að drepa það niður því það er svo margt sem ekki má,“ segir Tómas.

„Við erum kannski ekki svo ólíkir. Nói er til dæmis bæði sér­vitur og mis­skil­inn og það getur hugs­an­lega átt við mig líka,“ segir Tómas sem er útskrif­aður leik­ari úr leik­list­ar­skól­anum Cours Florent í París. Þar var hann meðal ann­ars í bekk með leikkon­unni Audrey Tautou sem lék hina ráða­góðu Amélie í sam­nefndri kvik­mynd.

Áhugi Tómasar á leik­list og kvik­myndum nær þó lengra aftur. „Pabbi hefur alla tíð verið með mikla kvik­mynda­dellu og ég var ekki nema nokk­urra mán­aða þegar hann fór fyrst með mig í bíó í bak­poka aftan á sér. Síðan fór ég nán­ast viku­lega með honum í bíó alla mína barn­æsku. Föðurafi minn rekur svo kvik­mynda­fé­lag í París svo ég á ekki langt að sækja kvik­mynda­á­hug­ann,“ segir Tómas og segir mér að pabbi hans leiki jafn­framt í Nóa albínóa:

„Pabbi leikur hlut­verk frönsku­kenn­ara í mynd­inni. Þar leikur hann atriði sem átti sér raun­veru­lega stað í frönsku­tíma hjá honum, nánar til­tekið þegar leik­stjór­inn, Dagur Kári, nam hjá honum frönsku í MH. Þegar verið var að sýna mynd­ina í London heyrð­ist mik­ill hlátur í salnum þegar pabbi birt­ist á tjald­inu og reynd­ist hann koma frá fyrr­ver­andi nem­endum pabba.“

„Hinn sköllótti leikarinn“

Mynd Skjáskot/RÚV

Tómas fékk fyrst áhuga á leik­list þegar hann var í grunn­skóla en umsjón­ar­kenn­ari hans lét bekk­inn árlega setja upp leik­verk. Hann tók aftur upp þráð­inn í Mennta­skól­anum við Hamra­hlíð og tók ávallt þátt í upp­færslum leik­fé­lags­ins.

Að loknu mennta­skóla­námi vann hann á heim­ili fyrir þroska­hefta og tók að sér ýmis verk­efni. „Á þessum tíma kynnti ég meðal ann­ars Söngvakeppni fram­halds­skól­anna með Ólafi Egils­syni sem er „hinn sköll­ótti leik­ar­inn“. Við erum jafn­gamlir og okkur er mikið ruglað saman. Það vill þannig til að við erum með sama sjúk­dóm, sem er sjálfsof­næm­is­sjúk­dómur og veldur því að við erum ekki með hár. Það sem ger­ist er að hvítu blóð­kornin halda að hár séu óvinir sínir og ráð­ast á þau.

Sjúk­dóm­ur­inn er skað­laus að öllu leyti nema hann gerir það að verkum að maður missir hárið.Ég var þrettán ára þegar ég missti hárið sem er út af fyrir sig við­kvæmur aldur. Ég gekk alltaf með húfu og tók hana aldrei niður. Þegar ég var í MH lék ég eitt sinn per­sónu sem var öll rauð­máluð og þá tók ég húf­una ofan í fyrsta sinn. Þá fór fólk að segja að þetta væri töff og upp frá því hætti ég að nota húf­una. Sjúk­dóm­ur­inn háir mér ekki að neinu leyti og núna myndi ég segja að þetta sér­kenni­lega útlit mitt hjálpi mér frekar en hitt, að minnsta kosti í leik­list­inni þar sem ég stend út úr fjöld­anum. Ég myndi að minnsta kosti ekki vilja hár ef mér væri boðið það núna,“ segir Tómas.

Tómas sagði að upp­tök­urnar á mynd­inni fyrir vestan hafi verið eitt skemmti­leg­asta tíma­bil sem hann hefði upp­lifað.

„Við tókum mest í Bol­ung­ar­vík, á Ísafirði og Þingeyri. Það var frá­bær stemn­ing í hópnum og við vorum eins og ein stór fjöl­skylda. Við bjuggum á Ísafirði og ekki skemmdi fyrir að Ísfirð­ingar eru mjög skemmti­legt fólk. Þeir eru opnir og til í að spjalla. Ég lærði líka heil­mikið af þeim og hvernig það er að lifa í sífelldri bar­áttu við veðrið og nátt­úru­öflin.“

Dagur Kári, leik­stjóri kvik­mynd­ar­innar útskrif­að­ist úr kvik­mynda­skól­anum í Kaup­manna­höfn 1999. Loka­verk­efni hans, stutt­myndin Lost Weekend, vann til alþjóð­legra kvik­mynda­verð­launa. 

Með stæstu hlut­verkin fara Tomas Lemarquis, Elín Hans­dóttir, Hjalti Rögn­valds­son og Þröstur Leó Gunn­ars­son. Einn fram­leið­and­anna er Philip Bober, en fyr­ir­tæki hans hefur m.a. komið við sögu þátt­anna Ríkið, eftir Lars Von Trier.

Heim­ildir:

Kvik­mynda­vef­ur­inn. Slóðin: https://www.kvikmyndavefurinn.is/films/nr/211

Rsj. 2003. Lærði margt af Nóa, 23. febr­úar. Morg­un­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi