Guðjón Friðriksson sagnfræðingur og afkastamikill rithöfundur, segist vera á því að varðveita eigi gamla útvarpshúsið á Vatnsendahæð í Kópavogi í stað þess að rífa það eins og nú stendur til.

Guðjón, sem er mikill áhugamaður um byggingar á Höfuðborgarsvæðinu segir að húsið, sem teiknað er af einum þekktasta arkitekt Íslandsbyggðar, Guðjóni Samúelssyni, hafi alla tíð verið partur af útvarpssögu landsins.
„Það er heilmikil saga í kringum þetta hús, útvarpið var þarna með mikil möstur og húsið tengist útvarpinu alveg frá upphafi. Og svo er það teiknað af Guðjóni Samúelssyni,“ sagði Guðjón í samtali við Mannlíf. „Þetta hús hefur lengi sett svip sinn á hæðina. Foreldrar mínir áttu sumarbústað í Vatnsenda og ég fór oft þangað upp eftir.“
Þann 2. júlí á þessu ári undirrituðu fjármála- og efnahagsráðherra og bæjarstjóri Kópavogsbæjar samkomulag um skipulag og uppbyggingu á landi í eigu ríkis og sveitarfélagsins á Vatnsendahæð í Kópavogi undir aukna íbúðabyggð. Þar kemur fram að varðveita eigi gamla útvarpshúsið „en þó með þeim hætti að hægt sé að finna því nýtt hlutverk í tengslum við fyrirhugaða íbúðabyggð.“
Nú virðist sem þessi kafli samkomulagsins sé gleymdur en nú er stefnt að því að rífa húsið niður.





















Athugasemdir