Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þetta eru verstu vinnustaðir landsins: „Ég hélt að mér væri að blæða út“

Þetta eru verstu vinnustaðir landsins: „Ég hélt að mér væri að blæða út“

Nýverið skap­að­ist mikil umræða á sam­skipta­for­rit­inu Reddit um verstu vinnu­staði lands­ins. Fjöldi manns tók þátt í umræð­unni þar sem tekin voru fyrir mál á borð við launa­svik, kyn­ferð­is­of­beldi og annað mis­ferli.

Heitar umræður á sam­fé­lags­miðlum og í raun bara alls staðar. Og þar á meðal á einu stærsta vef­svæði ver­aldar. Fjöldi heims­þekktra ein­stak­linga notar vef­svæði Reddit. Dæmi um fræga sem hafa not­ast mikið við vef­inn er Barack Obama, fyrr­ver­andi for­seti Banda­ríkj­anna. Á Reddit skap­ast iðu­lega umræður um hin ýmsu mál­efni og það er ekki ýkja algengt að Íslend­ingar séu þar til umfjöll­unar. Svo er hins vegar nú og að þessu sinni er það umræða um verstu vinnu­staði lands­ins. 

Þau sem sagt nenntu ekki einu sinni að tala við mig

Kona nokkur lýsir hræði­legri reynslu sinni á að starfa við útkeyrslu hjá Póstinum: „Eg var nýlega orðin ólétt og var þarna að missa fóstur. Eg helt að mér væri að blæða ut, leið i raun bara eins og að fóstrið væri með riðg­aðan óbeittan hníf að reyna skera sig út. Verkirnir að innan voru þeir alverstu sem eg hef upp­lifað. (Og þarna hafði eg aður fætt 2 born an deyf­inga) Að sjálf­sögðu var eg ekki að fara mæta í þessu ástandi. Yfir­mað­ur­inn BILAÐIST. Sakaði mig um að vera ekki trausts­ins virði og aldrei hægt að treysta á mig“. Margir virð­ast eiga slæma reynslu á því að vinna fyrir Póstinn: „Vann þar í 25 ár, frétti svo einn dag­inn í sjúkra­leyfi að mér hafði verið sent upp­sagn­ar­bréf 3 mán­uðum áður. Í pósti. Sem ég sá aldrei. Þau sem­sagt nenntu ekki einu sinni að tala við mig áður. Topp lið.“

„Vann hjá blóma­heild­sölu frá 15-18 ára, borg­aði mér alltaf lág­marks­laun miðað við aldur.

Fékk aldrei yfir­vinnu greidda þó ég vann oft 10-12 tíma á dag. Var oft að skila 220 tímum á mán­uði. Svo voru öll stimp­il­kort tætt í enda mán­uðs (eflaust til að fela sporin sín). Svo núna fyrir stuttu síðan sá ég hann var dæmdur fyrir toll­svik á blómum! (6mkr sekt)“ segir einn not­and­inn en hann seg­ist enn í dag vera að eiga við and­legar afleyð­ingar þess að starfa fyrir heild­söl­una.

Þeir sem reyktu máttu setj­ast út

Annar not­andi sagð­ist hafa neyðst til að byrja að reykja til að fá pásu í vinnu hjá N1: „Vann svo hjá N1 en það var hel­víti yfir­mað­ur­inn okkar bann­aði okkur að setj­ast niður á 12 tíma vöktum og máttum bara taka pásu til að éta og hann tékk­aði á manni og rak á eftir manni og þegar maður var búinn að éta þá var pásan búin. Þeir sem reyktu máttu setj­ast út meðan þeir reyktu svo eg byrj­aði að reykja.“

Icelandair Hotels sveik starfs­mann sinn um laun; „Ég er nýbyrjuð að vinna á Icelandair hot­els. Fyrst lík­aði mér mjög vel, og yfir­mað­ur­inn var mjög skemmti­legur, fynd­inn og vina­legur. Nema, hann kenndi mér ekki að skrá mig inn í kerfið fyrsta heila mán­uð­inn, og hálfa þar á eftir… Hann sagði mér bara að hann myndi „skrá“ niður allar vakt­irnar, og ég trúði því eins og kjáni. En svo fæ ég ekk­ert útborgað eftir fyrsta mán­uð­inn, ekki neitt. Ég tala við hann yfir­mann­inn, og hann útskýrir að þetta hitti bara svona á tím­ana, að ég mun fá tvö­falt útborgað næsta mán­uð­inn. Ég trúði því.Síðan þegar næstu mán­að­ar­mót koma, þá fæ ég HUNDRAÐ ÞÚSUND útborgað fyrir 2 mán­uði, og allar auka­vakt­irnar!!!“

Svo virð­ist sem hót­el­brans­inn á Íslandi sé þekktur fyrir svona hegðun: „Vann hjá foss­hótel og var svik­inn um laun, vann þar aftur mörgum árum seinna og var svik­inn aftur en kærði það og fékk greitt. Þar voru að vinna útlend­ingar sem fengu aldrei borgað heilt sumar. Veit ekki hvernig það end­aði.“

Einnig eru nokkrar sögur úr veit­inga­geir­anum: „þetta er hrika­legt hef unnið sem upp­vask­ari, yfir­kokkur, og fleira í þessum bransa en þetta er hrika­legt. Fyrir utan launa­bullið og vakta­bullið þá voru rosa­lega oft vand­ræði með hrá­efni og þjónar og kokkar neyddir til að taka þátt í óheið­ar­leika með því að notq mun verri og ódýr­ari hrá­efni en kúnn­inn er lát­inn halda.“

„Versta sem eg varð vitni að er ungar stelpur að þjóna langt fram á nótt á mjög lágum launum að þola áreiti og kyn­ferð­is­lega áreitni frá drukknum kúnnum. Stundum 16 ára stelpur.“

Þetta er aðeins brot af umræð­unni en það eru um hund­rað manns sem hafa sett inn athuga­semd við þráð­inn með sögur af allskyns mis­ferli sem líðst á íslenskum vinnu­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi