Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sölvi Tryggvason um Jón Pál sterkasta mann heims: „Hann vissi að hann var að deyja“

Sölvi Tryggvason um Jón Pál sterkasta mann heims: „Hann vissi að hann var að deyja“

Upp úr 1980 sat almenn­ingur sem límdur yfir túbu­sjón­vörp­unum sínum og fylgd­ist með feg­urð­ar­sam­keppnum og krafta­keppnum. Þessar tvær keppnir kynj­anna, ann­ars vegar í feg­urð og hins vegar styrk, voru gríð­ar­legar vin­sælar og vart var að finna það mæl­andi barn sem ekki gat nafn­greint fal­leg­ustu konu og sterkasta mann Íslands. Eða heims­ins, þegar svo bar við.

Algjörir yfirburðir

Gríð­ar­legur áhugi land­ans á krafta­keppnum var að stórum hluti til Jóni Páli Sig­mars­syni að þakka en hann vann tit­il­inn „Sterkasti maður maður“ heims hvorki minna né fjórum sinnum og hafði eng­inn afrekað það áður. Kjarninn rak sögu keppn­innar og aðkomu Jóns Páls að henni árið 2015. Til hennar hafði verið stofnað árið 1977 sem alhliða afl­rauna­keppni þar sem keppt var um einn titli. Keppt var í ýmsum greinum eins og t.d. trukka­drátti, reipi­togi og lóða­kasti.

Keppnin var í upp­hafi hálf­gerð brella, gerð fyrir amer­ískt sjón­varp, og var fálega tekið. En á níunda ára­tugnum varð keppnin alþjóð­leg og þá komu íslenskir kepp­endur til leiks. Á árunum 1983 til 1996 má síðan segja að Íslend­ingar hafi haft algera yfir­burði á mót­inu. Án til­lits til höfða­tölu. Einna hæst reis áhug­inn árið 1992 þegar keppnin var haldin hér á landi.

„Þetta er ekkert mál fyrir Jón Pál“

Þótt fleiri kraft­karlar hafi lagt sitt á vog­ar­skálar­innar með frá­bærum árangri, má segja að það hafi verið Jón Páll Sig­mars­son sem kom Íslend­ingum ærlega á kortið í krafta­keppnum kom­andi ára. Jón Páll varð súper­stjarna. Eins og Skúli varð Jón Páll gríð­ar­lega vin­sæll fyrir brosmildi sína og hnytt­inn til­svör.

„Þetta er ekk­ert mál fyrir Jón Pál“ og „Það er eng­inn til­gangur með líf­inu ef þú getur ekki gert dauða­lyftu“ eru meðal tveggja fræg­ustu til­vitn­ana í Jón Pál sem var með afbrigðum orð­hepp­inn þegar svo lá á honum.

Hið mesta ljúfmenni

Jón Páll var fæddur í Hafn­ar­firði árið 1960 og flutt­ist með fjöl­skyldu sinni til Stykk­is­hólms tveggja ára gam­all þar sem hann sýndi snemma af sér krafta við landa­bún­að­ar­störf í Skál­eyjum. Níu ára gam­all flutti Jón Páll til Reykja­víkur og hóf að æfa fjöl­margar íþrótta­greinar. Hann kynnt­ist lyft­ingum árið 1976 og eftir það var ekki aftur snúið.

Jón Páll hóf keppn­is­feril sinn árið 1979, jafnt í vaxta­rækt og kraft­lyft­ingum og árið 1981 varð hann fyrsti Íslend­ing­ur­inn að lyfta yfir 900 kg sam­an­lagt á Íslands­meist­ara­móti. Sama ár hlaut hann verð­launin Íþrótta­maður árs­ins og keppti í fyrsta sinn á „Sterkasti maður heims“ mót­inu og lenti í 3. sæti.  Hann vann keppn­ina Sterkasti maður heims sam­tals fjórum sinnum; árin 1984, 1986, 1988 og 1990 og lenti aldrei neðar en í þriðja sæti.

Jón Páll var elsk­aður og dáður jafnt innan lands og utan. Hann var harður keppn­is­maður, sann­kall­aður vík­ingur, innan vallar, en þótti hið mesta ljúf­menni utan keppni.

Sann­kall­aður kett­lingur.

Mikill harmdauði

Árið 1991 meidd­ist Jón Páll og það var þjóð­inn mik­illi harmdauði þegar Jón Páll varð bráð­kvaddur við æfingar laug­ar­dag­inn 16. jan­úar 1993, aðeins 32 ára að aldri.

Á þessum árum var lítið rætt og enn minna vitað um afleið­inga stera­notk­unar sem var, og margir segja, er ríkj­andi í íþrótta­heim­inum. Fjöl­miðla­mað­ur­inn Sölvi Tryggva­son skrif­aði sögu Jóns Páls árið 2013 þar sem hann meðal ann­ars ræði stera­notkun Jóns Páls en lengi voru þessi mál tabú og ekki mátti orða að sterar hefðu átt þátt í frá­falli Jóns Páls. „All­ir vin­ir hans sögðu hins veg­ar við mig: „Ef Jón Páll væri á lífi í dag myndi hann pott­þétt vilja segja frá þessu og opna umræð­una,“ sagði Sölvi.

Meðal þess sem kem­ur fram í bók­inni er að Jón Páll leit­aði til vina sinna þar sem hann ræddi stera­notk­un sína og slæm­ar heilsu­fars­leg­ar af­leið­ing­ar sem hann upp­lifði. Hann vissi að hann var að deyja.

Gerði sér grein fyrir hvert stefndi

„Síðasta árið gerði hann sér grein fyr­ir hvert stefndi. Hann fór í lækn­is­rann­sókn til Banda­ríkj­anna en hann vildi ekki fara í rann­sókn hér­lend­is því hann var svo hrædd­ur við kjafta­gang­inn. Síðasta árið var hann far­inn að passa sig að borða ekki fitu og hlúa vel að sér því lækn­ir­inn vest­an­hafs hafði til­kynnt hon­um að hjartað í hon­um væri eins og í níræðum manni.“

Sölvi segir í við­tali að til­gang­ur­inn með bók­inni hafi engan veg­inn að sverta minn­ingu Jóns Páls og dragi bókin engan veg­inn úr afrekum hans en krafta­menn þessa tíma hafi notað stera og hafi hann staðið jafn­fætis þeim.

„Ástæðan fyr­ir því að Jón Páll varð sterk­asti maður í heimi var ekki sú að hann tók stera held­ur sú að allt hans líf snér­ist um æf­ing­ar, hann hafði ótrú­lega háan sárs­auka­þrösk­uld, góð gen og vilja­styrk,“ sagði Sölvi. „Það verður eng­inn svona sterk­ur af stera­notk­un og það er ágætt að all­ir þeir strák­ar sem eru að gleypa stera í dag heyri það; þannig verður maður ekki Jón Páll.“

Eftir frá­fall Jóns Páls missti þjóðin smám saman áhuga á keppn­inni um sterkasta mann­inn og við tók áhugi á góðu gengi í öðrum íþrótta­greinum á við hand- og fót­bolta og cross-fit. Keppnin er þó enn haldin en verður seint stór­frétt í íþrótta­f­réttum lands­manna í dag.

Nettur hroki og karlremba

Jón Páll skildi eftir sig son­inn Sigmar Frey, sem var aðeins níu ára gam­all þegar að faðir hans lést. Sjálfur átti Sigmar eftir að nota mis­nota stera árum saman með skelfi­legum afleið­ingum, eins og fram kom í frétta­skýr­ing­ar­þætt­inum Kveik árið 2018.

„Áhrifin voru í fyrstu bara stór­kost­leg. Það er alveg sama þótt þú notir stera, þú þarft að hafa fyrir því að verða stór og hrika­legur. Og ég þyngdi mig um ein­hver þrjá­tíu kíló. En í byrjun þá fannst mér þetta… þá var eig­in­lega bara gaman alla daga. Maður var bara fullur af testó­steróni, meira sjálfs­ör­yggi, það kom svona nettur hroki í mann og karl­remba. Og það var bara mjög gaman að vera til, til að byrja með. Og maður hugs­aði með sér: „Af hverju er maður ekki alltaf svona?“

„Svo fór maður að finna fyrir auka­verk­un­unum þegar leið á. Ég man að ég hætti að nota stera í heilt ár og hafði smá áhyggjur. Ég var ekki orð­inn þrí­tugur og ég fann að kyn­hvöt og kyn­geta kom ekk­ert til baka á heilu ári,“ sagði Sigmar Freyr í við­tali við Kveik.

Bak­sýn­is­speg­ill­inn er end­ur­birtur. Höfundur: Guðrún Gyða Eyþórs Árna­dóttir. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi