Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Unnur Sara hlaut Nýsköpunarverðlaun: „Tók ákvörðun um að flýja til Íslands út af útgöngubanni“

Unnur Sara hlaut Nýsköpunarverðlaun: „Tók ákvörðun um að flýja til Íslands út af útgöngubanni“
Unnur Sara Eldjárn Mynd: Katla Sólnes

Tón­list­ar­konan Unnur Sara Eldjárn hlaut Nýsköp­un­ar­verð­laun á degi íslenskrar tón­listar, sem hald­inn var í gær, fyrir nám­skeiðið sitt „Hvernig kemst ég inná Spotify playlista?”.

Unnur Sara hefur komið víða við; gefið út þrjár breið­skífur, haldið fjöl­marga tón­leika, unnið með hinum ýmsu lista­mönnum, starfað við tón­mennta­kennslu og nú síð­ast deilt þekk­ingu sinni á mark­aðs­setn­ingu tón­listar í gegnum nám­skeið og einka­tíma.

Flúði til Íslands út af útgöngubanni í Frakklandi

„Ég var mjög hissa þegar ég fékk að vita að ég fengi þessi verð­laun. Það er svo stutt síðan ég byrj­aði að þora að kalla sjálfa mig frum­kvöðul, svo þetta er stór við­ur­kenn­ing og mikil hvatn­ing fyrir mig til að halda áfram! Ég byrj­aði með þessi nám­skeið fyrir ári síðan. Þetta var skrítið tíma­bil hjá mér, sem og auð­vitað flestum í heim­inum,“ segir Unnur Sara.

„Kvöldið áður en ég byrj­aði með fyrsta nám­skeiðið á Zoom tók ég ákvörðun um að flýja til Íslands út af útgöngu­banni í Frakk­landi. Háskól­inn sem ég stund­aði nám við á þeim tíma­punkti var engan veg­inn búinn að und­ir­búa við­bragðs­á­ætlun fyrir nýtt útgöngu­bann, allt var fært yfir á netið, en tölvu­kerfið þeirra hrundi á hverjum degi og eng­inn vissi neitt. Ég fékk ekk­ert að vita hvenær eða hvort ég ætti að taka jóla­próf í des­em­ber,“ segir Unnur Sara.

Veitti gleði að hjálpa svo mörgum öðrum

„Þannig að á þessum tíma­punkti var það afskap­lega kær­komið fyrir mig að setja fók­us­inn eitt­hvert allt annað, í þetta nýja nám­skeið mitt. Ég er núna eft­irá ótrú­lega þakk­lát fyrir að ég hafi borið gæfu til þess að gera eitt­hvað sem veitti mér gleði og til­gang og var að hjálpa svo mörgum öðrum á þessu erf­iða tíma­bili, þar sem næstum því allt sem maður sem lista­maður vildi gera eða gat starfað við var bannað.

Ég held að ástæðan fyrir því að þetta nám­skeið hefur náð vin­sældum er að það kynnir nýja hugsun í mark­aðs­setn­ingu á tón­list. Ein­stak­lingar og fyr­ir­tæki vilja ná fram ákveð­inni stemn­ingu í gegnum tón­list og nýta laga­listana á streym­isveitum til að ná því mark­miði. Sumir af þessum laga­listum eru mjög stórir og með hlust­endur um allan heim, svo það er til mik­ils að vinna.

Ég finn að þegar ég er að deila minni reynslu af þessum málum hér í Frakk­landi vekur þetta alveg jafn mikla undrun og áhuga og það gerir á Íslandi. Fólk spyr bara hvar það geti skráð sig á næsta nám­skeið! Svo það er senni­lega næsta skref hjá mér, að snara þessum fyr­ir­lestri yfir á frönsku og ensku!“.

Fer af stað með nýjan fyrirlestur

Unnur Sara er nú búsett í Mont­pellier í suð­ur­hluta Frakk­lands þar sem hún vinnur í sínum tón­list­ar­verk­efnum og nám­skeiðs­haldi.

„Hér er ynd­is­legt að vera. Mont­pellier er ekki of stór borg og ekki of lítil. Hún er ein­hvern veg­inn alveg pass­leg fyrir mig. Hér er mikið af grænum svæðum og það greini­lega skiptir Frakkana miklu máli að skapa fal­legt umhverfi, sem er eitt­hvað sem ég kann virki­lega að meta. Hér er líka verið að vinna hörðum höndum að því að minnka mengun með því að nið­ur­greiða raf­hjól og gera almenn­ings­sam­göngur eins aðgengi­legar og hægt er. Margir af þeim sem eiga bíl hér nota hann ein­ungis þegar farið er í lengri ferðir en taka bara spor­vagn­inn inn­an­bæjar.“

 En hvað er framundan?

„Ég verð á Íslandi í jan­úar og byrjun febr­úar. Ég er með nýjan fyr­ir­lestur sem heitir „Tón­list­ar­út­gáfa frá A – Ö“ sem ég er að flytja í tón­list­ar­skólum og fyrir fleiri aðila og sam­tök. Þar fjalla ég um allt sem þarf að hafa í huga við útgáfu á lagi. Ég fer með fyr­ir­lest­ur­inn til Akur­eyrar og flyt hann einnig hjá Tón­list­ar­mið­stöð Aust­ur­lands á Eski­firði.

Í leið­inni ætla ég að taka með mér gít­ar­inn og halda nokkra tón­leika á lands­byggð­inni þar sem ég flyt frönsku tón­list­ina í akústískum útgáfum – nota­leg kaffi­húsastemn­ing. Ég er á fullu að púsla dag­setn­ing­unum þessa dag­ana en hægt er að fylgj­ast betur með því á við­burð­inum sem ég er búin að setja upp á Facebook. En það eru ennþá ein­hverjar dag­setn­ingar lausar fyrir þá sem hafa áhuga á því að fá þennan fyr­ir­lestur eða tón­leika.“

Unnur Sara tekur á móti fólki í bæði einka- og hóp­tíma, og geta allir haft sam­band við hana til þess að bóka tíma.

Hér má finna tónleikaviðburð Unnar Söru

Hér er svo slóðin á námskeiðið sem Unnur Sara hlaut verðlaunin fyrir, „Hvernig kemst ég inná Spotify playlista?“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi