Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Karl Ágúst: „Farðu í friði, góði og fallegi félagi, og hafðu þakkir fyrir allt sem þú gafst mér“

Karl Ágúst: „Farðu í friði, góði og fallegi félagi, og hafðu þakkir fyrir allt sem þú gafst mér“
Karl Ágúst Úlfsson.

Karl Ágúst Úlf­ars­son minn­ist Jóns Sig­ur­björns­sonar, félaga síns og sam­leik­ara, með hlýjum orðum á Facebook síðu sinni. Jón lést þann 30. nóv­em­ber síð­ast­liðin, þá 99 ára að aldri.

Gefum Karli orðið:

„Hann Nonni Sibb, þessi mátt­ar­stólpi og maka­lausi lista­maður. Einn af þeim sem ég dáði mest þegar ég staulað­ist inn í leik­húsið barn að aldri og sú aðdáun ent­ist alla tíð okkar beggja. Nonni var sá sem sýndi reynslu­lausum og ráð­villtum leik­ara skiln­ing og hlýju og var alltaf til í þau fífla­læti sem á þurfti að halda svo vinnu­dag­ur­inn yrði bæri­legur.

Við lékum saman í þónokkrum leik­sýn­ingum og leik­stýrðum hvor öðrum. En hvert sem sam­band okkar var í það og það skiptið var hann alltaf sá sem ég leit upp til, dáð­ist að og vildi gera að fyr­ir­mynd.

Blessuð sé mining Jóns.

Ég hitti Jón fyrst sextán ára gam­all í Róm. Hann var þar far­ar­stjóri og ég einn af þeim sem treystu á þekk­ingu hans og kynnum af borg­inni eilífu. Og ekki brást hann mér fremur en öðrum. Ég skoð­aði með honum Vadikanið, Pantheon, Trevi, Colosseum, Forum Romana, ég sá með honum Aídu í Caracalla og svo skoð­uðum við Pompei og Capri þegar leiðin lá suður á bóg­inn. Og því­líkur leið­sögu­maður!  Ítalskan vafð­ist ekki fyrir honum, enda hafði hann menntað sig þar í landi, og ung­ling­ur­inn mændi á hann bæði stoltur og svo­lítið öfund­sjúkur.

Fáum árum seinna urðum við kollegar. Ég fékk að sitja í með honum vestur í Stykk­is­hólm, en þaðan tókum við Baldur á Brjáns­læk til þess að leika í Útlag­anum í Her­gilsey. Hann Ingjald bónda, ég fíflið son hans. Þetta er ógleym­an­leg ferð – við spjöll­uðum, við hlógum – og við sungum. Aðallega Jón auð­vitað, það var hann sem hafði rödd­ina og kunn­átt­una, en úti í Her­gilsey skemmti ég mér við að ganga upp að honum og raula fyrstu lín­urnar úr Hvað er svo glatt, og það brást ekki að hann tók undir og á end­anum sungum við heilt erindi til enda, með eða án texta, oft sem trompet og básúna, en stundum sem sauð­drukknir Hafn­ar­stúd­entar.

Þegar heim var komið lékum við saman í fyrstu sýn­ing­unni minni hjá Leik­fé­lagi Reykja­víkur, Undir álm­inum í Iðnó. Það var ómet­an­legt að hafa Nonna í hús­inu fyrir ungan og óör­uggan leik­ara sem var að reyna að fóta sig.

Við urðum síðan sam­ferða nokkrum sinnum til útlanda í leik­ferðir, meðal ann­ars til Sofiu í Búlgaríu með Sölku Völku. Eins og alltaf reynd­ist Jón ein­stak­lega skemmti­legur ferða­fé­lagi í þeirri ferð. Hann þótt­ist aldrei vera mik­ill hag­yrð­ingur, en í þess­ari ferð, eins og oft áður hrutu frá honum vísur sem okkur félögum hans þóttu óheyri­lega skemmti­legar.

(Hér er rétt að skjóta inn stuttri sögu­skýr­ingu: Skömmu áður en ferðin var farin var starf­andi förð­un­ar­meist­ari í Iðnó sem nefnd var Lilja. Hún hafði sér­stakan talanda og þegar hún ávarp­aði Jón Sig­ur­björns­son sagði hún ævin­lega „Jón Sébéson“. Þetta þótti auð­vitað kostu­legt og varð til þess að sumir af kol­legum Jóns tömdu sér þetta ávarp.)

Þann tíma sem við dvöldum í Sofiu var mikil hita­bylgja og þá daga sem við æfðum og sýndum í Leikhúsi Alþýðu­hers­ins svitn­uðum við öll meira en góðu hófi gegndi. Þegar við mættum til að leika fyrstu sýn­ing­una á hátíð­inni sem við tókum þátt í var hit­inn síst minni en dag­ana á undan og svit­inn ekki heldur. Þá varp­aði Jón fram þess­ari stöku:

Kominn er í kófið strax.

kannski ekki nema von.

Allt hér bráðnar eins og vax,

einnig Nonni Sébéson.

Allar minn­ingar sem ég á um Nonna Sébéson eru góðar, fal­legar og hjarta­verm­andi. Farðu í friði, góði og fal­legi félagi, og hafðu þakkir fyrir allt sem þú gafst mér.

Fjöl­skyldu og vinum votta ég dýpstu samúð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi