Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jóhannes opnar sig um tvíkynhneigðina: „Þetta hafði verið að angra mig dálítið í einhvern tíma“

„Ég var hrein­lega orð­inn þreyttur á því að vera settur í rangt box.“ Þetta segir Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, í ein­lægu við­tali við Gay Iceland. Í við­tal­inu lýsir Jóhannes því hvernig hann upp­götv­aði og lærði að skilja eigin kyn­hneigð, en hann er tví­kyn­hneigður. Hann kom opin­ber­lega út úr skápnum fyrir þremur árum síðan,

Jóhannes opnar sig um tvíkynhneigðina: „Þetta hafði verið að angra mig dálítið í einhvern tíma“
Jóhannes Þór Skúlason.
„Ég var hrein­lega orð­inn þreyttur á því að vera settur í rangt box.“

Þetta segir Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, í ein­lægu við­tali við Gay Iceland.

Í við­tal­inu lýsir Jóhannes því hvernig hann upp­götv­aði og lærði að skilja eigin kyn­hneigð, en hann er tví­kyn­hneigður. Hann kom opin­ber­lega út úr skápnum fyrir þremur árum síðan, en tekur það þó fram að ýmsir nákomnir honum hafi þó vitað af þessu.

„[…]það tók nærri því tíu ár að átta mig á og bara skilja hvað tví­kyn­hneigð væri. Er ég gagn­kyn­hneigður maður sem lað­ast líka að mönnum, eða? Hvað þýðir tví­kyn­hneigð? Er þetta ann­að­hvort-eða?

Jóhannes segir vitað að tví­kyn­hneigðir menn séu þarna úti. „Það er mikið af þeim. En þeir virð­ast ekki, hvort sem það er val eða ekki, koma fram í sviðs­ljósið.“

Var sískynja, gagnkynhneigði karlmaðurinn

Jóhannes ákvað að koma opin­ber­lega út með kyn­hneigð sína eftir að hann var gestur í Viku­lok­unum á Rás 1. Hann hafði ekki falið þetta fram að því en ekki fundið sér­staka þörf fyrir að tala um það að fyrra bragði.

Þátt­ur­inn var á dag­skrá viku fyrir Hinsegin daga í Reykja­vík og með honum sem gestir í setti voru þær Hanna Katrín Frið­riks­dóttir og Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir.

„Báðar tvær eru þær bar­áttu­konur fyrir rétt­indum hinsegin fólks. Þegar umræðan fór svo að snú­ast um Hinsegin daga varð alveg ljóst hvert mitt hlut­verk í hópnum var. Ég var sískynja, gagn­kyn­hneigði karl­mað­ur­inn í setti með tveimur les­b­íum. Það gerði svo­lítið úts­lagið, ég varð bara þreyttur á því að vera settur í rangt box. Þetta hafði verið að angra mig dálítið í ein­hvern tíma en þetta ýtti mér yfir brún­ina,“ segir Jóhannes.

Eftir þetta tók Jóhannes ákvörðun um að vera mun opn­ari með kyn­hneigð sína en hann hafði áður verið. Þegar kom að Hinsegin dögum hringdi hann í móður sína og systur. Hann skrif­aði líka færslu um málið á Facebook og fékk afar jákvæð við­brögð.

Mamma hafði áhyggjur af áhrifum á starf hans 

Jóhannes segir að þrátt fyrir að flest við­brögðin hafi verið jákvæð, hafi sum þeirra þó verið full dramat­ísk. Til að mynda hafi sumir vinir hans haldið að hann væri að skilja við kon­una sína þegar þeir sáu færslu hans á Facebook.

„Mamma mín hafði aðal­lega áhyggjur af því hvort þetta myndi hafa ein­hver áhrif á starfið mitt. Þetta voru svona hlutir sem komu mér til að sjá hvaða hluti mikið af fólki, ef til vill flest fólk, þarf að takast á við þegar það kemur út úr skápnum sem hinsegin. Í mis­miklum mæli auð­vitað. Ég var mjög hepp­inn, þetta var mjög lítið hjá mér.“

Umræður um veruleika tvíkynhneigðra karlmanna

Jóhannes tók nýverið þátt í umræðupanel Sam­tak­anna 78 fyrir tví­kyn­hneigða karl­menn. Hann segir þá hafa verið þrjá saman að ræða veru­leika tví­kyn­hneigðra karl­manna á Íslandi.

„Það var dálítið skrýtið að eng­inn okkar hafði áður verið í her­bergi með tveimur öðrum tví­kyn­hneigðum karl­mönnum. Eftirá átt­aði ég mig á því að þeir voru að minnsta kosti fimm tals­ins í þessu sama her­bergi í Norræna Húsinu.“

Lífið er grátt

Jóhannes segir að ef til vill sé tví­kyn­hneigð ekki nákvæm skil­grein­ing í hans til­felli, en það sé þó sú skil­grein­ing sem passi honum einna best.

Hann segir að þegar hann hafi verið að fikra sig í átt að skil­grein­ingu sem pass­aði honum og í leið­inni skilja hvað tví­kyn­hneigð væri, hafi hug­myndin um pankyn­hneigð farið að láta til sín taka og að það væri munur á þessu tvennu.

„Umræðan um rétt­indi trans­fólks og við­ur­kenn­ing á trans­fólki spilar þarna inn í. En fyrir mér er þetta tvennt nákvæm­lega það sama. Tví­kyn­hneigð er mitt orð yfir það. Það lýsir mér. Almennt séð er ég ekki hrif­inn af þeirri hug­mynd að þú getir aðeins lað­ast að þessum tveimur kynjum, öðru eða báðum. Það er eins og að gera allt annað hvort svart eða hvítt. Lífið er grátt. Það er ekki ann­að­hvort-eða,“ segir Jóhannes.

Viðtalið má finna á Gay Iceland.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi