Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Morðið við Svartárvatn: Myrti ófríska ástkonu sína

Morðið við Svartárvatn: Myrti ófríska ástkonu sína
Svart­ár­vatn Mynd: svartarkot.is

Guðfinna Jóns­dóttir, vinnu­kona, fannst látin í grynn­ingum í Svart­ár­vatni rétt hjá Svart­ár­koti á Norð­aust­ur­landi, 16. sept­em­ber árið 1891. Hafði hún verið myrt.

Guðfinna, sem var fer­tug, hafði átt í ást­ar­sam­bandi við tví­tugan vinnu­mann að nafni Jón Sig­urðs­son en vann hann á Mýri í Bárð­ar­dal. Varð Guðfinna ólétt eftir Jón sem hafði heim­sótt hana dag­inn áður og gist um nótt­ina. Var hún þá komin hálfa leið á með­göng­unni. Eftir að Jón fór segir í blað­inu Norð­ur­ljós árið 1891 þegar Jón hafi farið hefði Guðfinna komið inn í bað­stofu og verið hin glað­asta. „Hafði hún þá orð á því, að Jón hefði verið fremur venju hlý­legur við sig.“ Bað hún svo hús­móður sína um far­ar­leyfi þetta kvöld og það fékk hún. Hitti hún Jón við Svart­ár­vatn. Var hún mjög glöð að sjá hann.

Jón hins vegar var ekki eins ánægður með fund­inn en hann veitt­ist strax að ást­konu sinni, tróð vett­ling­unum sínum upp í hana og hélt fyrir vit hennar þar til hún var öll. Þá henti hann Guðfinnu í ána og fór aftur til vinnu.

Þrátt fyrir að leit hófst að Guðfinnu strax dag­inn eftir, fannst lík hennar ekki fyrr en þremur dögum eftir morðið. Vá þá lík hennar flutt til Svart­ár­kots en fólkið á bænum grun­aði strax að and­látið hefði ekki borið á fyrir slysni. Sent var eftir sýslu­mann­inum á Héð­ins­höfða sem reið strax af stað til Svart­ár­kots. Á sama tíma sendi hann amt­mann sinn að sækja hér­aðs­lækn­inn á Akureyri sem kom að bónda­bænum 24. sept­em­ber.

Fljót­lega féll grunur á Jón Sig­urðs­son og var tekin sú ákvörðun að hann skyldi vera við­staddur krufn­ing­una á Guðfinnu. Eftir hana úrskurð­aði hér­aðs­lækn­ir­inn að orsök and­láts­ins væri köfnun og það af manna­völdum. Sýslu­mað­ur­inn reið að Svart­ár­vatni í rann­sókn­ar­leið­angur og fann þar fótsport. Gróf hann fótsporið upp og hafð með sér til Svart­ár­kots. Voru skór Jóns bornir saman við fótsporið og smellpössuðu við.

Jón ját­aði loks morðið og var hann dæmur til dauða í októ­ber 1891. Hæsti­réttur stað­festi dóm­inn árið 1893. Aftakan átti að fara fram í Kaup­manna­höfn og þangað var Jón sendur.

Árið 1893 skrif­uðu blöðin fréttir þess eðlis að Jón hefði framið sjálfs­víg í fanga­klefa sínum í Kaup­manna­höfn og gerð­ist Þjóð­vilj­inn svo grófur að lýsa sjálfs­víg­inu. „Heila­slett­urnar fóru út um allt her­bergið.“

Hið rétta í mál­inu er það að Jón var aldrei sendur til Kaup­manna­hafnar heldur vistaður í hegn­ing­ar­hús­inu og árið 1904 var hann náð­aður og lát­inn laus. Ástæðan var heilsu­leysi og góð hegðun í fang­els­inu. Jafn­framt væri hann undir eft­ir­liti, eða nokk­urs konar skil­orði, í ein­hvern tíma.

Fluttist Jón til Húsa­víkur og lést árið 1947.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi