Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stórnotendur Facebook með sömu einkenni og fíklar

Stórnotendur Facebook með sömu einkenni og fíklar

Fjöl­margar sál­fræði­rann­sóknir hafa sýnt að sam­fé­lags­miðlar á borð við Facebook og syst­ur­mið­il­inn Instagram geti haft áhrif á geð­heils­una.

Facebook-fíkn er ekki við­ur­kennd grein­ing en vax­andi fjöldi rann­sókna bendir til að þessi sam­fé­lags­mið­ill geti ýtt undir fíkni­hegðun.

Árið 2015 sýndi athygl­is­verð rann­sókn að Facebook virkjar sömu heila­stöðvar og fíkn­mynd­andi efni.

MR-skann­anir sýndu t.d. að heilam­andlan og svæðið stri­atum virkj­uð­ust þegar not­endur horfðu á myndir á Facebook eða Facebook-merkið. Þessar heila­stöðvar sem hér um ræðir stýra hvat­vísi, en það eru þrjár leiðir dópamíns í heil­anum.

Hefð­bundnar dag­legar athafnir losa vana­lega um ca. þrjú boð­efni í heil­anum. Nora­drena­lín beinir hugs­un­inni að venj­unni. Serótónín virkjar þá til­finn­ingu sem hin venju­bundna athöfn vekur. Og dópamín kennir heil­anum ákveðnar venjur og verð­launar okkur fyrir að fylgja þeim.

Með tím­anum fer heil­inn að fram­leiða dópamín strax við vænt­ing­arnar um umbun, áður en athöfnin sjálf er fram­kvæmd en á móti minnkar dópamín­fram­leiðslan ef umbunin skilar sér ekki.

Fjölgun þunglyndistilfella

Notkun sam­fé­lags­miðla og mis­notkun fíkni­efna eiga það sam­eig­in­legt að gang­setja dópamín­hringrás­ina í heil­anum.

Fyrri rann­sóknir hafa sýnt að stórnot­endur Facebook sýna sömu ein­kenni og fíkni­efna­neyt­endur.

En öfugt við fíkn í kókaín sem jafn­framt lamar þá hluta heil­ans sem hafa hemil á hvat­vísi, virka þessar stöðvar vel hjá Facebook-fíklum.

Það þarf ekki að koma á óvart að fyrrum yfir­maður hefur afhjúpað að í upp­hafi hafi Facebook sótt inn­blástur beint til tóbaks­iðn­að­ar­ins.

Rann­sóknir hafa sýnt fram á það að fólk sem leit­ast eftir „læk“ á Facebook stríði við lágt sjálfs­mat og jafn­vel eins­konar fíkni­vanda. Heilaskannar hafa náð að sýna fram á það hvað ger­ist í heil­anum þegar þú skoðar Facabook.

Sam­an­burð­ar­grein­ing á 50 rann­sóknum hefur m.a. sýnt fjölgun þung­lynd­istil­fella hjá fólki sem:

… eyðir miklum tíma á sam­fé­lags­miðlum

… skoðar sam­fé­lags­miðla oft

Kvíði hjá notendum jókst

Ein umfangs­mesta rann­sókn sinnar teg­undar sýnir að 1.500 Band­ríkja­menn upp­lifðu aukna ánægju með því að hætta notkun Facebook í einn mánuð. Áhrifin voru mest hjá yngsta ald­urs­hópnum.

Hins vegar valdi tíundi hver að halda áfram á Facebook eftir að rann­sókn­inni lauk.

Önnur rann­sókn bendir til að Facebook-flett­ingar auki hætt­una á þeirri til­finn­ingu að missa af ein­hverju. Þessi ummerki sjást ekki í tengslum við Snapchat.

Þriðja rann­sóknin kort­lagði hvernig kvíði hjá not­endum jókst í takti við þann tíma sem þeir eyddu á sam­fé­lags­miðlum. Hvort kvíð­inn stafar af notkun sam­fé­lags­miðla eða hvort kvíðið fólk noti miðl­ana meira, var ekki full­yrt á grund­velli þess­arar rann­sóknar.

Í sumum rann­sóknum hafa MR-skann­anir sýnt minna af gráum heila­vef en almennt er í svo­nefndum Accumbenskjarna í heila fólks sem notar Facebook mikið. Grái heila­vef­ur­inn er uppi­stöðu­efni í heil­anum og umlykur heila­frum­urnar sjálfar.

Accumbenskjarninn er hluti af verð­launa­kerfi heil­ans og virkj­ast þegar ástæða er til vellíð­unar. Heila­stöðin sendir þá t.d. gleði­horm­ónið dópamín út í heil­ann. Kenn­ingin er sú að færri heila­frumur í þess­ari heila­stöð hafi áhrif á geð­heils­una.

Sál­fræð­ingar benda t.d. á að sam­fé­lags­miðlar þvingi fólk til að bera sig saman við aðra, einkum gildir það um yngra fólk. Þetta getur haft mikil áhrif á sjálfs­mat.

Til við­bótar hafa rann­sóknir sýnt að mjög virkir not­endur sam­fé­lags­miðla eiga erf­ið­ara með að ein­beita sér og hafa lak­ara minni.

Rann­sóknir sem Facebook-fyr­ir­tækið sjálft lét fram­kvæma miða að því að afsanna þetta en margir sál­fræð­ingar benda líka á að sam­fé­lags­miðlar kunni að hafa jákvæð áhrif en þau sé enn erf­ið­ara að rann­saka.

Heim­ildir:

Hunt Allcott. 2019, 8. nóv­em­ber. The Welfare Effects of Social Media. Stand­ford. Slóðin.

Jean M Twenge. 2018, 18. októ­ber. Associations between screen time and lower psychological well-being among children and adolescents: Evidence from a population-based study. National Library of Medicine. Slóðin.

Sunkyung Yoon. 2019, 1. april. Is social network site usage related to depression? A meta-ana­lysis of Facebook–depression relations. Journal of Affective Dis­orders. Slóðin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi