Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kristbjörg: „Ég sagði honum líka að við ættum þennan dónaskap ekki skilið, ég var 8 eða 9 ára“

Kristbjörg: „Ég sagði honum líka að við ættum þennan dónaskap ekki skilið, ég var 8 eða 9 ára“

Krist­björg T. Har­alds­dóttir ritar afar athygl­is­verða færslu í Facebook-hópnum Bar­áttu­hópur gegn ofbeld­is­menn­ingu og hefst hún svona:

„Ég, þessi feimna, ákveðna stelpa átti síðar eftir að fara í ofbeld­is­sam­band. Ég hef oft furðað mig á því af hverju?

Kannski af því að við sog­umst inn í ofbeld­is­sam­band án þess að fatta það.

Getur það ekki verið?“

Bætir við að „ég er samt eig­in­lega alveg viss um að ég gæti ekki sog­ast inn í ofbeld­is­sam­band í dag, þar sem „rauðu flöggin“ eru í aug­unum á mér eins og neon-skilti. En það eru ákveðn­ustu konur sem hafa sog­ast inn í ofbeld­is­sam­bönd. Og ekki hjálpar ger­enda­með­virkt sam­fé­lag til við að vara konur við.

Ég deili þessu til þess að sýna ykkur hversu mögnuð sam­staðan getur verið, þó við séum „bara“ 8 ára.“

Bætir þessu við:

„Nú ætla ég að segja ykkur sögu sem ég hef oft sagt dóttur minni í seinni tíð. Sönn saga af 8-9 ára stelpu á Akureyri:

Ég var einu sinni rekin úr skóla­strætó fyrir að vera með kjaft. Ég var ca 8-9 ára þegar atvikið átti sér stað. Ég var í rosa­lega góðum bekk í Gler­ár­skóla og í minn­ing­unni voru við stelp­urnar mjög sam­held­inn hópur, góðar vin­konur. Ég var ekk­ert mikið fyrir að trana mér fram í tímum í skól­anum, ég var yfir­leitt feimin í skóla­stof­unni, það fór ekki mikið fyrir mér. En ef hins vegar ég varð vitni af því að það væri verið að traðka á ein­hverjum í kringum mig, þá hafði ég hátt. Ég svar­aði líka fyrir mig ef full­orðið fólk var dóna­legt við mig – eða sýndi mér eða öðrum lít­ils­virð­ingu.

Þannig hef ég alltaf verið. Frekar róleg stelpa í fram­komu – en með mikla og sterka rétt­læt­is­kennd.“

Saga Krist­bjargar er sterk og sýnir vel fram á hvernig sam­staða getur haft góð áhrif á heild­ina:

„Skóla­sund fór fram í Sundlaug Akur­eyrar og þess vegna þurftum við að taka skóla­strætó í sund. Bekknum var skipt í tvennt, stelpu­hóp og stráka­hóp, annar hóp­ur­inn var í skóla­sundi fyrir ára­mót og hinn eftir ára­mót.

Við vorum með dóna­leg­asta rútu­bíl­stjóra sem ég hef á ævi minni hitt.

Þetta var karl­maður sem fannst hann yfir allt og alla haf­inn, a.m.k. haf­inn yfir konur. Hann tal­aði alltaf niður til okkar þegar við stigum inn í rút­una. Við fengum á okkur skammir sama hvað við gerðum. Þegar við vorum nán­ast hættar að fara í sturtu eftir sundið – en fengum samt skammir fyrir að vera alltof lengi þá fyllt­ist mælir­inn hjá mér.“

Krist­björg var ekk­ert að tvínóna við hlut­ina:

„Ég lét karl­inn heyra það og lýsti því fyrir honum hvað við værum sam­visku­samar og búnar að reyna allt til þess að flýta okkur. Við gætum ekki gert betur. Ég sagði honum líka að við ættum þennan dóna­skap ekki skilið. Ég var 8 eða 9 ára.

Maðurinn rak mig út úr rút­unni, sagði mér að labba heim. Það var dágóður spotti að labba heim, frá Brekkunni og upp í Gler­ár­þorp.

Ég steig út úr rút­unni, rasandi hissa á þessum karli. En ég varð ennþá meira hissa þegar flest allar stelp­urnar í bekknum gengu út á eftir mér. Mig minnir að það hafi verið ca 2-3 stelpur sem sátu eftir í rút­unni með karl­inum.

Magnað! Þvílík sam­staða.

Ps: Myndin er tekin á Ösku­dag­inn þegar ég er ca 8 ára.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi