Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Falleg og hlý minningarorð Hrafns Jökulssonar: „Já, hann Mundi vinur minn kunni ekki að gefast upp“

Falleg og hlý minningarorð Hrafns Jökulssonar: „Já, hann Mundi vinur minn kunni ekki að gefast upp“

Rit­höf­und­ur­inn Hrafn Jök­uls­son minn­ist góð­vinar síns með hlýjum og fal­legum minn­ing­ar­orðum í aðsendri grein. Vinur er Guð­mundur M. Þor­steinsso,n eða Mundi á Finn­boga­stöðum eins og hann var gjarnan kall­aður, sem lést 2. des­em­ber á gjör­gæslu­deild sjúkra­húss Akur­eyrar. Mundi var 78 ára að aldri.

Mundi bjó nán­ast alla ævi á Finn­boga­stöðum í Tré­kyllis­vík þar sem hann var fjár­bóndi en síð­asta árið bjó hann á Sauð­ár­króki. Börn hans eru þau Guð­brandur, Linda, Þor­steinn og stjúp­dóttirin Oddný.

Sjá einnig: Mundi á Finn­boga­stöðum lát­inn: „Ef eitt­hvað kemur upp á standa menn hlið við hlið“

Mundi á góðum degi

Mundi var góður karl eins og flestir segja sem þekktu hann, rólegur og góður við fólkið í kringum sig. Þá var hann ein­stak­lega hjálp­samur og greið­vik­inn þegar leitað var til hans. Hann varð fyrir því áfalli að gamli bær­inn hans, Finn­boga­staðir brann til kaldra kola árið 2008 en með sam­taka­mætti sveit­unga hans, náð­ist að safna nægu fé svo hann gæti byggt nýtt hús sem hann bjó í þar til hann flutti á Sauð­ár­krók.

Mannlíf vottar aðstand­endum samúð sína.

Hrafn á ekk­ert nema gott um Munda að segja og við skulum gefa rit­höf­und­inum orðið:

„Skap­ar­inn var í hátíð­ar­skapi þegar kom að því að skapa þann heim sem menn­irnir köll­uðu síðar Árnes­hrepp á Ströndum. Náttúran talar sínu máli sjálf — fátæk­leg orð duga skammt — en varla er til við­hafn­ar­meiri leik­mynd og sönn­un­ar­gagn um örlæti Guðs en Tré­kyllis­vík, drottn­ing Íslands og mið­punktur alheims­ins. Reykja­nes­hyrna og Kross­nes­fjall eru útverðir við ysta haf, mik­il­feng­leg bæði, rétt einsog Örkin sem dregin er mjúkum línum; tví­burarnir Árnes­fjall og Urð­ar­tindur eru fag­ur­lega klapp­aðir frá toppi til táar. Og fyrir miðju Vík­ur­innar er berg­kastal­inn ægifagri — Finn­boga­staða­fjall. 

Undir þessu fjalli fædd­ist minn vinur Mundi og þar bjó hann langa og inni­halds­ríka ævi, sem ein­kennd­ist af þrot­lausu starfi frá morgni til kvölds, alla daga í meiren sjö­tíu ár. Hann vinur minn var ekki bara hver annar dugn­að­ar­forkur, mér fannst hann stundum vera Ísland sjálft holdi klædd, með veðrað and­litið og vinnu­hendur, og jafnan stutt í góða sögu og smit­andi hlátur.

Skapari him­ins og jarðar er húmoristi, það er eitt sem víst er, einsog svokölluð grá­glettni örlag­anna er til marks um. Árnes­hreppur á Ströndum er þannig mið­punktur sögu Íslands allt frá land­námi. Fyrsti land­náms­mað­ur­inn var Eiríkur snara — þraut­reyndur veiði­maður úr liði Geir­mundar helj­ar­skinns, hann valdi sér auð­vitað Tré­kyllis­vík að bústað og þar áttu rætur allir meiri­háttar við­burðir Íslands­sög­unnar næstu þús­und árin. Sturl­unga­öld hófst með drápi Hneitis bónda í Ávík, grjótið sem notað var í Flóa­bar­daga var sótt í Árnesey, galdra­fárið hófst í litlu kirkj­unni á sautj­ándu, draum­órar um stöðuga gullöld og eilíft góð­æri náðu hámarki í Djúpavík á 20. öld með stærstu stein­steyptu bygg­ingu sem landið hafði séð. Þetta eru dæmi af handa­hófi sem sýna að Árnes­hreppur er ekki útnári norðan við hníf og gaffal heldur mið­punktur, upp­haf ævin­týra — og endir.

Grettis saga rekur byggða­sögu Árnes­hrepps — Önundur tré­fótur langafi Grettis var gestur í örlaga­ríku sam­kvæmi í Árnesi — en Finnboga saga ramma segir sögu fræg­asta inn­byggjara sveit­ar­innar. Og það var undir fjalli Finnboga sem minn vinur Mundi fædd­ist og til Finnboga rakti hann ættir sínar. En hin mikla Finn­boga­staða­ætt á að for­móður fátæka konu sem varð úti á Steina­dals­heiði í Móðu­harð­ind­unum á 18. öld — börn hennar tvö urðu bændur í Árnes­hreppi og til þeirra má rekja marga helstu kosti mik­illar ættar: Finn­boga­staða­ætt­ar­innar hans Munda vinar míns. Uppgjöf er ekki til í þeirra orða­bók, þar er hins­vegar dugn­aður og dreng­skapur með gylltu letri, lífs­gleði og óþrjót­andi húmor og sagna­list.

 Já, hann Mundi vinur minn kunni ekki að gef­ast upp, það var aldrei til umræðu, ekki einu sinni þegar hann slapp úr eld­haf­inu 16. júní 2008 með eitt visku­stykki en bær­inn brann til kaldra kola. Um kvöldið sat hann poll­ró­legur — eigna­laus og aldr­aður öreigi í orði kveðnu en kóngur í sínu ríki sem eld­ur­inn aldrei gat grandað — og lagði á ráðin með sínu fólki um nýtt hús og nýtt upp­haf. Samstaða Finn­boga­staða­fólks­ins er rómuð og aðdá­un­ar­verð, og mætti verða öllum til eft­ir­breytni þegar á móti blæs.

 Ég lærði ótal­margt af mínum vini, ekki síst þegar við þögðum saman. En það voru for­rétt­indi að heyra sögur hans, hvortheldur af vega­gerð í Kjör­vogs­hlíð eða hvernig Þórður slapp af bál­kest­inum í Kistu­vogi 20. sept­em­ber 1654. Mundi lýsti fyrir mér — í smá­at­riðum — hvernig Þórður bóndi barg lífi sínu með aðstoð nokk­urra sveit­unga. Þegar ég leyfði mér að efast um að ein­hverjir hefðu þorað að hætta lífi sínu til að bjarga galdra­mann­inum frá Mun­að­ar­nesi, og það í við­ur­vist sjálfs Þormóðs Korts­sonar sýslu­manns var svar Munda hnit­miðað — og þagg­aði niður í mér: ,,Það var hetja á hverjum bæ. Og ekki endi­lega þau sem töl­uðu mest.“

 Um minn vin Munda gæti ég skrifað heila bók, og brunnur minn­ing­anna er ótæm­andi.

 Blessuð sé minn­ing Munda. Guð blessi fjöl­skyldu hans og ást­vini.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi