Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Margrét Sif segir frá ofbeldi barnsföður: „Hann bara bilaðist og henti mér þvert yfir herbergið“

Margrét Sif segir frá ofbeldi barnsföður: „Hann bara bilaðist og henti mér þvert yfir herbergið“

Margrét Sif Sig­urð­ar­dóttir ræddi við Eddu Falak í hlað­varps­þætt­inum Eigin Konur. Margrét kynnt­ist barns­föður sínum ung, hann var góður við hana til að byrja með en sýndi loks sína réttu hlið. Fyrst beitti hann Margréti and­legu ofbeldi sem þró­að­ist síðan í bæði lík­am­legt og and­legt ofbeldi.

Margrét reyndi að segja frá ofbeld­inu en eng­inn vildi „blanda sér í þetta.“

„Að sjá mann­eskj­una sem braut þig niður, vera bara fagnað þegar hann labbar inn. Þú átt bara að „vera þarna“ líka. Hvað áttu að gera? Ef eng­inn er að fara að standa með þér og þú ert það brotin að þú getur varla staðið með sjálfri þér,“ segir hún.

Margrét sleit sam­band­inu við barns­föður sinn eftir að sonur hennar fædd­ist og barð­ist fyrir því að halda syni sínum frá ofbeld­inu. Þau end­uðu í sátt­ar­með­ferð hjá sýslu­manni og þar var föð­urnum gefin umgeng­is­réttur.

„Við endum á því að fara í sátt­ar­með­ferð. Þá er ein­hver svona milli­liður. Ég held að fólk átti sig heldur ekki á því hvað þarf mikið til þess að hægt sé að kæra ein­hvern. Og það er bara fárán­legt.“

Margrét segir son sinn hafa verið búinn á því þegar hann kom heim frá föður sínum. „Hann var brjál­aður, hann sat í sóf­anum og glær í aug­unum og var þannig í tvo daga. Eftir að hafa byrjað að fara til hans byrj­aði sonur minn að ráð­ast á mig. Hann var svo reiður: „Þú skildir mig eftir hjá pabba.““

Eitt skiptið réðst barns­faðir Mar­grétar á hana fyrir framan son þeirra, þáver­andi kær­ustu og for­eldra sína. „Það er 50 pró­sent af fólk­inu að fara að trúa þér og þó svo að það trúir þér þá er það aldrei að fara að átta sig á þessu. Hann byrj­aði að kýla sjálfan sig í and­litið og ég spurði: „Fyr­ir­gefðu er þetta að gera eitt­hvað fyrir þig?“ Hann bara bil­að­ist, greip í mig, lyfti mér upp, hristi mig og henti mér þvert yfir her­bergið. Ég lenti á ein­hverju, skíðastaf eða eitt­hvað. Ég var þarna blá og marin með hand­ar­för eftir hann. Hann reif sig úr bolnum, brjál­aður og hljóp út. Þetta var nátt­úru­lega „allt mér að kenna.““

Margrét segir frá við­brögðum við­staddra: „Hvernig þau brugð­ust við, hvernig bregst fólk við þegar það sér svona. Það myndi vera bara: „Hvað er að þér hættu.“ En það var bara þögn. Nema eftir á hlupu þau á eftir honum. Það gerði eng­inn neitt. Ég tók bara barnið mitt, fór út í bíl og keyrði heim til mömmu. Hún sagði mér að fara upp á slysó, sem ég gerði, það voru teknar myndir og áverka­skýrsla og fór upp á lög­reglu­stöð og gaf skýrslu þar. Lög­reglan sagði við mig að þetta væri ekki nóg til að standa í ein­hverju kæru­dæmi.“

Þegar þriðja konan kærði barns­föður hennar var hann loks dæmdur í fang­elsi: „Það er hræði­legt að hlut­irnir hafi þurft að ganga svona langt. Þarna er ég með áverka og vitni en samt ekki nóg til þess að kæra. Síðan fer næsta sem hann beitir ofbeldi, kærir og fær sömu svör. Síðan fer sú þriðja og kærir. Þarna er þetta búið að ganga á í mörg ár og allir vita af þessu, allir hvísla um þetta en eng­inn gerir neitt. Hversu margar á hann að berja til þess að fá dóm?“

Margrét sagði syni sínum frá því að pabbi hans væri kom­inn í fang­elsi: „Þetta var á sumum sam­fé­lags­miðlum, fólk var að tala þegar pabbi hans fór í fang­elsi. Þannig ég end­aði á því að segja honum það, hann sagði: „LOL á hann.“ Hann sagði líka: „Hann er líka vondur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi