Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Egill hálsbrotnaði og lamaðist áður en snjóflóðin skullu á: „Man nákvæmlega hvar ég var staddur“

Egill hálsbrotnaði og lamaðist áður en snjóflóðin skullu á: „Man nákvæmlega hvar ég var staddur“

Í jan­úar 1995 urðu snjó­flóð í Súðavík og í Reyk­hóla­sveit sem skilja eftir djúp sár. Egill St. Fjeld­sted, sagn­fræð­ingur frá Pat­reks­firði var að gefa út bók um snjó­flóðin sem heitir Þrek­virki, en hún byggir á við­tölum við 40 manns sem annað hvort voru á heim­ilum sínum þegar flóðin skullu á þeim eða tóku þátt í björg­un­ar­störfum með ein­hverjum hætti.

Þeir sem lentu undir snjó­flóð­inu eða komu að björgun hafa ekki treyst sér til að tala um áfallið hingað til, en harm­leik­ur­inn skildi eftir sig stórt ör í lífi fólks.

Blaða­maður sett­ist niður með Agli á fal­legu heim­ili hans í Hafn­ar­firði og var rætt um lífið, snjó­flóðin og nýj­ustu bók hans; Þrek­virki.

Á þeim tíma sem snjó­flóðin skullu á, var Egill sjálfur að ganga í gegnum erfitt tíma­bil. Hann hafði verið afrek­s­í­þrótta­maður, en slas­að­ist illa í bílslysi við Flóka­lund í júlí árið 1994, aðeins 25 ára gam­all. Vinirnir voru í bíltúr þrír saman, þegar slysið varð. Egill sat í aft­ur­sæt­inu og var ekki í belti. Hann háls­brotn­aði og lam­að­ist frá brjósti og niður.

„Allt frá þeim tíma hef ég verið með­vit­aður um að hræði­legir atburðir áttu sér stað þennan dag sem lítið eða ekk­ert hefur verið fjallað um af skilj­an­legum ástæðum. Nú þegar bráðum eru liðin 27 ár frá því þetta gerð­ist var kannski kom­inn tími til að opna á umræðu um hvað gerð­ist í raun þennan örlaga­ríka morgun og hvernig björg­un­ar­starfið fór fram en að því komu nærri 400 manns með ein­hverjum hætti.“

Mikil eyðilegging blasti við

Sagn­fræð­ing­ur­inn gaf út sína fyrstu bók fyrir jólin 2020 og fjall­aði hún um krapa­flóðin tvö sem skullu á Pat­reks­fjörð þann 22. jan­úar árið 1983.

„Eftir að ég lauk við að skrifa bók­ina um Krapa­flóðin á Pat­reks­firði 1983 fannst mér rök­rétt að halda áfram með sam­bæri­legt efni sem lítið hafði verið skrifað um. Einnig var það mér hvatn­ing að bókin fékk góðar við­tökur og ég mikið þakk­læti fyrir að skrá atburð­inn, sem var að mestu gleymdur öðrum en Pat­reks­firð­ingum. Einnig kom í ljós að ungt fólk frá Pat­reks­firði vissi lítið um atburð­inn.“

Mikil eyði­legg­ing blasti við og um tíma var ótt­ast um að mann­fallið hefði verið mun meira eða allt að 30 manns. Í kjöl­far seinna flóðs­ins var bær­inn rýmdur og gistu í kringum 500 manns á tveimur fjölda­hjálp­ar­stöðvum um nótt­ina sem og í heima­húsum á öruggum stað.

Egill gerir þessum ham­förum skil í fræði­bók sinni en kjöl­far útgáfu bók­ar­innar fékk hann óvænt per­sónu­legt bréf frá Bessa­stöðum. Í bréf­inu óskaði Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, honum til ham­ingju með vel unnið verk.

„Það er vanda­samt að segja frá skelfi­legum við­burðum af þessu tagi, af hrein­skilni en einnig með virð­ingu og nær­gætni að leið­ar­ljósi. Þetta fannst mér takast vel,“ skrifar Guðni.

Hann seg­ist hafa hugsað til bók­ar­innar þegar að aur­skrið­urnar skullu á byggð­ina í Seyð­is­firði fyrir síð­ustu jól. „Bless­un­ar­lega varð ekki mann­skaði þá fyrir liggur að engu mátti muna í þeim efnum.“

Í bréf­inu sagði Guðni að ljóst væri að reynsla lands­manna af nátt­úru­ham­förum knúi stjórn­völd til að sinna betur þeim vörnum sem hægt er að koma upp á hverjum stað.

„Jafn­framt er brýnt að til séu frá­sagnir af þeim ham­förum sem dynja yfir. Þú átt þakkir skildar fyrir þinn þátt á þeim vett­vangi,“ skrifar Guðni.

Blindbylur og svartamyrkur

Árla morg­uns mánu­dag­inn 16. jan­úar 1995 féll snjó­flóð á þorpið í Súðavík á meðan flestir voru í fasta­svefni. Í blind­byl og svarta­myrkri hófu heima­menn leit að sínum nán­ustu, ætt­ingjum og vinum við hrika­legar aðstæður.

„Ég, líkt og trú­lega flestir sem voru komnir til vits og ára þegar snjó­flóðið féll man ég nákvæm­lega hvar ég var staddur þegar Rík­is­út­varpið rauf útsend­ing­una og til­kynnti lands­mönnum að snjó­flóð hefði fallið á byggð­ina í Súðavík.“

Innan skamms varð ljóst að fjölda fólks var saknað og í kjöl­farið var óskað eftir fjöl­mennu utan­að­kom­andi björg­un­ar­liði.

„Fljót­lega eftir að ég byrj­aði á þessu verk­efni barst mér til eyrna að þeir sem lentu í snjó­flóð­inu vildu ekki ræða atburð­inn en þegar á reyndi vildu allir tala við mig, þó sumir þyrftu langan umhugs­un­ar­frest. Fyrir þær sakir er bókin sér­stök og jafn­vel ein­stök því í henni segja íbúar tólf húsa af fimmtán sögu sína, í mörgum til­fellum af mik­illi nákvæmni. Sama gildir um björg­un­ar­að­ila sem komu á vett­vang.“

Mannskætt snjóflóð

„Á meðan ég var að afla heim­ilda rak ég augun í að mann­skætt snjó­flóð sem varð tveimur dögum eftir flóðin í Súðavík, flóð sem trú­lega flestir voru búnir að gleyma og því ekki annað hægt en að fjalla einnig um það. Sér­stak­lega í ljósi þess hversu stutt var á milli þeirra en það féll einnig á Vest­fjörðum.“

Að kvöldi mánu­dags­ins 18. jan­úar þetta sama ár 1995 féll annað mann­skætt snjó­flóð á sveita­bæ­inn Grund í Reyk­hóla­sveit.

„Veð­ur­að­stæður voru þá með þeim hætti að engin leið var að koma utan­að­kom­andi björg­un­ar­liði á stað­inn.

Kom það því í hlut vina og ætt­ingja úr næsta nágrenni að sjá um björg­un­ar­að­gerðir við afar erf­iðar aðstæður. Egill lýsir í bók­inni aðstæð­unum á svæð­inu, ringul­reið­inni og örvænt­ing­unni, en eina leiðin að bæj­unum var sjó­leiðis. Þetta var yfir hávetur og aðkoma í bæinn sér­stak­lega erfið.“

Björgunarstarfið

Egill lýsir björg­un­ar­starf­inu og segir; „í fyrsta lagi var veðrið með þeim hætti að engin leið var að kom­ast til Súða­víkur nema með skipum. Ekki var fært fyrir þyrlur, snjó­sleða eða snjó­bíla. Hjá lög­reglu­stöð­inni á Ísafirði var strax byrjað að  huga að því hvernig hægt væri að koma björg­un­ar­að­ilum til Súða­víkur á sem skemmstum tíma. Um leið veltu menn einnig fyrir sér þeirra erf­iðu spurn­ingu hvort yfir­leitt væri fært til Súða­víkur í slíku ofsa­veðri. Allir stað­kunn­ugir vissu að Súð­ar­vík­ur­hlíð er snar­brött og þekkt fyrir tíð snjó­flóð, enda kom í ljós þegar leiðin var könnuð að fjöl­mörg flóð höfðu fallið þar um nótt­ina.

Sjó­ferðin á milli Ísa­fjarðar og Súða­víkur var í einu orði sagt hrika­leg og töldu margir óvanir sjó­menn um borð í skip­unum þar á milli að þeirra hinsta stund væri runn­inn upp. Sama gilti um varð­skip, tog­ara og flutn­inga­skip sem sigldu í stór­sjó og ísingu til að koma björg­un­ar­mönnum til Súða­víkur.

Eftir að skipin komu að bryggju í Súðavík með björg­un­ar­fólkið varð það að hlaupa í djúpum krapa eftir bryggju­gólf­inu á meðan brim gekk yfir sjó­varn­ar­garð­inn, sem varð til þessa að fáir komust óblautir í Hrað­frysti­húsið Frosta þar sem björg­un­ar­fólkið og þeir sem stjórn­uðu björg­un­ar­að­gerðum höfðu aðsetur. Þangað leit­uðu einnig Súð­vík­ingar eftir flóðið.“

Erfiðar sögur

„Ég tók ákvörðun um að rekja ekki líf fólks eftir að það lenti í snjó­flóð­inu, þar eru erf­iðar sögur um hjóna­skiln­aði og annað. Sama gildir um áfalla­hjálp og áfallastreituröskun sem hefði verið löng og erfið umfjöllun sem ég hef ekki þekk­ingu á til að fjalla um vit­rænt. Hins vegar fjalla ég stutt­lega um hvaða afleið­ingar björg­un­ar­starfið hafði á suma sem fóru til Súða­víkur.“

Hægt er fræð­ast nánar um atburð­ina í bók hans Þrek­virki. Bókin prýðir fjölda mynda og er hægt að nálg­ast hana í helstu bóka­búðum og hjá höf­undi – sjá fés­bók­ar­tengil.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi