Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Meat Loaf reið á vaðið í Reiðhöllinni: „Ef allir gætu nú skemmt sér eins og þið Íslendingar“

Meat Loaf reið á vaðið í Reiðhöllinni: „Ef allir gætu nú skemmt sér eins og þið Íslendingar“
Myndin er sam­sett

Í októ­ber 1987 hélt goð­sögnin Meat Loaf rokktón­leika í Reið­höll­inni í Víðidal. Troð­fullt var á tón­leik­unum sem þóttu heppn­ast mjög vel.

Meat Loaf sló ræki­lega í gegn árið 1977 þegar plata hans og Jim heit­ins Steinman, Bat Out of Hell kom út. Er hún sú fimmta mest selda plata allra tíma en ár hvert selst um 200.000 þús­und ein­tök af plöt­unni um allan heim. Mikið gekk á hjá Meat Loaf í kjöl­far vin­sæld­anna en hann missti rödd­ina á tíma­bili, reifst við Jim og drakk einnig óheyri­lega mikið á níunda ára­tugnum. Fáir voru þó jafn dug­legir og hann að ferð­ast um heim­inn og syngja fyrir æsta aðdá­endur þó að plöt­urnar sem komu út á þessu tíma­bili voru ekki að selj­ast mikið. Meat Loaf átti svo stærstu end­ur­komu í sögu rokks­ins árið 1993 þegar Jim snéri aftur til gamla vinar síns og gerði með honum aðra Bat plötu, Bat Out of Hell II: Back Into Hell sem varð plat­ínum plata þetta árið.

En aftur að bak­sýn­is­spegl­inum. Allan níunda ára­tug­inn var Meat Loaf á fullu að túra og spila á tón­leikum og má segja að það hafi verið grunn­ur­inn að end­ur­kom­unni 1993. Árni Matth­í­as­son fjall­aði um tón­leik­ana á sínum tíma í Morg­un­blaðin en má sjá á skrif­unum að hann var ekk­ert voða­lega hrif­inn af tón­list Meat Loaf og hafði litla trú á íslenskum aðdá­endum hans sem fjöl­menntu á tón­leik­ana.

„Síðasta laug­ar­dags­kvöld hélt banda­ríski rokksöngv­ar­inn Meat Loaf tón­leika í Reið­höll­inni í
Víðidal sem vel á fimmta þús­und áheyr­endur sóttu. Það mátti sjá þegar við inn­gang­inn að ekki er Reið­höllin vel ætluð til að taka við slíkum fjölda, a.m.k. ekki auð­veld­lega, því í miklu stappi stóð við að koma fólki inn i húsið þrátt fyrir góða frammi­stöðu dyra­varða. Voru margir orðnir illa haldnir af kulda og troðn­ingi þá er þeir loks komust inn. Inn­an­dyra er Reið­höllin ekki svo illa til þess fallin að þar séu haldnir stór­tón­leikar, en þó má færa margt til betri vegar.“

Stuð­kompaní­iið átti að hita upp fyrir kapp­ann en af ein­hverjum sökum gekk það ekki eftir.

„Stuð­kompaníið átti að hefja tón­leik­ana en ekki varð af því af ein­hverjum orsökum. Ekki var þóhægt að merkja að nokkur sýtti það, enda voru allir komnir til aðsjá Meat Loaf. Hann kom síðan á svið stuttu eftir hálf tíu og hóf tón­leik­ana með miklum látum. Reyndar lét hann tvær ítur­vaxnar stúlkur í aðskornum fatn­aði sýna sig fremst á svið­inu til að byrja með, en þær eru víst systur og sungu bak­raddir á tón­leik­unum. Þrátt fyrir þá sýn­ingu voru áhorf­endur ekki vel með á nót­unum framan af og reyndar var sem hljóm­sveitin væri ekki vel með á nót­unum heldur, en allt lag­að­ist og í öðru lagi fékk Meat Loaf áheyr­endur til að taka undir þó lík­leg­ast hafi fæstir þekkt lagið, hvað þá kunnað text­ann. Þegar kom að lag­inu Rock and Roll Mercenarys, sem flestir þekktu, tók þó stein­inn úr og á fjórða þús­und við­staddra tók hressi­lega undir. Ekki var síðri söngur á lag­inu You Took the Words Right Out of My Mouth, sem var á plöt­unni frægu Bat Out of Hell.“

Meat Loaf er frægur fyrir ein­stak­lega líf­lega sviðs­fram­komu en hann hefur sagt að hvert lag sé karakter og seg­ist hann nýta sér leik­hæfi­leika sína til að skapa karakter fyrir hvert lag en Meat hefur leikið í fjöldi kvik­mynda, leik­rita og þátta í gegnum árin. Árni Matth­í­as­son var ekk­ert voða­lega hrif­inn.

„Sviðs­fram­koma Meat Loaf var greini­lega vel til þess fallin að ná til áheyr­enda og það gekk eftir. Þó féllst hún ekki í öðru en að strunsa fram og aftur á svið­inu ogg lenna sig framan  hljóð­færa­leik­ara og áheyr­endur. Einna mesta hrifn­ingu vakti þegar hann hristi sig og skók og var hann í svita­baði áður en langt um leið. Stúlk­urnar tvær sem voru til skrauts gerðu einnig sitt til að auka á sefj­un­ina og mikla hrifn­ingu vakti þegar Meat Loaf gerði sig lík­legan
til að afklæða aðra þeirra, sem lét sér það vel lynda. Hápunktur tón­leik­anna var, eins og við mátti búast, tutt­ugu mín­útna útgafa af Paradise By the Das­h­bo­ard Light. Þar kom sér vel leik­reynsla Meat Loaf, en stór hluti lags­ins fólst í æsi­legum faðm­lögum hans og ann­arrar systr­anna.“

Árni sagði Meat hafa verið lengi í gang hvað söng­inn varð­aði en að áhorf­endum hafi verið sama enda flestir kóf­drukknir.

„Meat Loaf sjálfur var lengi í gang hvað söng­inn varðar, en sýndi þó að hann hefur nokkuð sterka rödd, þó ekki sé hún að sama skapi þýð eða fögur. Áheyr­endum stóð þó nokkurn veg­inn á sama um það hvað fram fór á svið­inu, þeim var nóg að geta greint lögin og litið
Meat Loaf. Gilti þá einu þó lög kappans væru öll fremur keim­lík og erfitt að greina hvað var hvað. Hljómur í Reið­höll­inni var ekki sem bestur, en kannski alveg nógu góður fyrir þá gerð rokktón­listar sem þarna var í boði og víst er að áheyr­endur, sem flestir voru vel við skál,
kærðu sig koll­ótta.“

Daginn eftir tón­leik­ana tók blaða­maður Vikunnar við­tal við Meat Loaf.

„Hvað ertu að segja?“ segir Meat Loaf og er virki­lega hissa. „Ég vissi að platan
hefði gengið vel hérna, en þetta er ofboðs­legt.“ Tilefni þess­ara orða var að und­ir­rit­aður sagði honum frá því hvað platan hans Bat Out of Hell hefði selst í mörgum ein­tökum hér á landi eða um 14 þús­und ein­tök. „Það myndi sam­svara 13 millj­ónum heima í Banda­ríkj­unum, er það ekki? Og mér fannst gott að selja 5 millj­ónir platna þar.“

Meat Loaf var mjög ánægður með tón­leik­ana á Íslandi, hafði vart séð aðra eins stemmn­ingu.

„Ég held að hljóm­leikar hjá okkur séu almennt góðir. Allavega tekst okkur alltaf að vinna
áhorf­endur á okkar band. Að vísu var engin þörf á því hér á Íslandi. Ég hef sjaldan upp­lifað
aðra eins stemmn­ingu og langar til að nota þetta tæki­færi til að þakka öllum sem komu á hljóm­leik­ana kær­lega fyrir mig og hljóm­sveit­ina. Ef allir gætu nú skemmt sér eins og þið Íslend­ingar. Mér finnst alltof mikið um það við­horf hjá sumum hljóm­sveitum að áhorf­endur standi í þakk­ar­skuld við þá. Þeir borga sig inn á hljóm­leik­ana og þeir eiga skilið að við skemmtum þeim, enda held ég að það sé eng­inn svik­inn að því að sjá okkur.“

Söngv­ar­inn skraut­legi þótti greini­lega mikið til Íslands­far­ar­innar koma.

„Það eina sem við sjáum eftir er að hafa ekki komið hingað fyrr. Allir hafa verið dásam­legir,
jafnt áhorf­endur sem aðrir. Nú stefnum við að því að koma hingað sem fyrst aftur.“

Við bíðum þó enn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi