Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Landsliðskonan Helena Sverrisdóttir: „Tólf ára ætlaði ég að verða best á Íslandi“

Landsliðskonan Helena Sverrisdóttir: „Tólf ára ætlaði ég að verða best á Íslandi“

Þrátt fyrir að vera aðeins þrjá­tíu og þriggja ára hefur Helena Sverr­is­dóttir leikið í meist­ara­flokki í tutt­ugu og eitt ár, eða frá því að hún var tólf ára gömul.

Hún er enn að og á nóg eftir.

Afreks­skrá hennar er svo löng, og titl­arnir svo margir, á Íslandi og í Slóvakíu, að ég læt duga að nefna að hún hefur hlotið tit­il­inn körfuknatt­leiks­kona árs­ins hér á landi tólf sinnum.

Þið verðið bara að fletta hinu upp sjálf.

Helena Sverr­is­dóttir er besta körfuknatt­leiks­kona Íslands fyrr og síðar.

Ég byrja á því að spyrja Helenu aðeins um upp­eldið, æsk­una, fjöl­skyldu, nám og atvinnu.

„Ég er alin upp í Hafn­ar­firði – með mömmu pabba og þremur systk­inum. Þetta er mikil körfu­bolta­fjöl­skylda, þar sem pabbi var for­maður körfuknatt­leiks­deildar Hauka í mörg ár, og mamma var „all in” líka, og við öll systk­inin spil­uðum körfu­bolta,“ segir Helena sem æfði líka fót­bolta framá ung­lingsár og var „algjör íþróttakrakki.

Ég vissi ekk­ert betra en að vera úti í skóla í fót­bolta eða á hlaupa­hjóli um Norð­ur­bæ­inn með vin­kon­unum. En síðan þegar ég varð tólf ára fór ég á kaf í körf­una; ætl­aði að verða best á Íslandi og lífið sner­ist algjör­lega um það.“

Helena setti snemma stefn­una á að kom­ast til Banda­ríkj­anna í skóla „og ég vildi drífa mig að klára stúd­ent­inn til að kom­ast sem fyrst út til Texas, en þangað var stefnan sett þegar ég var sextán ára, eftir að hafa farið í heim­sóknir hjá atvinnu­manna­liðum í Evrópu.

Ég tók þá ákvörðun að fara fyrst í háskóla og síðan í atvinnu­mennsku.“

Helena segir það hafa verið alger­lega ómet­an­legt hvað hún fékk alltaf og fær enn mik­inn stuðn­ing frá fjöl­skyld­unni sinni, en hún er gift körfuknatt­leiks­mann­inum Finni Atla Magn­ús­syni:

„Ég er mjög heppin með fjöl­skyldu, for­eldrar okkar styðja okkur í einu og öllu og við erum ótrú­lega náin. Síðan er ég sjálf búin að gifta mig og við Finnur komin með tvö börn, þannig að lífið er bara æðis­legt,“ segir Helena sem í dag þjálfar og spilar með upp­eld­is­fé­lag­inu Haukum „og hef und­an­farið verið að stunda meist­ara­nám við HÍ til að fá leyf­is­bréf kenn­ara – er búin með allt bók­legt en þarf að klára verk­námið sem frestað­ist aðeins vegna fæð­ing­ar­or­lofs­ins.“

Hvað hafa háskóla­árin gefið þér sem og atvinnu­manna­fer­il­inn í Evrópu?

„Það stærsta sem árin mín úti gáfu mér er þroski og virð­ing fyrir náung­anum. Ég kynnt­ist alveg fullt af fólki með allskyns bak­grunn og það er mjög gaman að halda enn sam­bandi við gamla liðs­fé­laga, héðan og þaðan um heim­inn. Ég var átta ár erlendis og upp­lifði ótrú­lega skemmti­lega og krefj­andi tíma, en var mjög til­búin að koma heim á sínum tíma.“

En hvað skyldi Helenu finn­ast um þróun körfu­bolt­ans á Íslandi frá því að hún byrj­aði að spila með meist­ara­flokki?

„Þróunin hefur helst verið sú að það eru fleiri stelpur að spila núna og gæðin hafa auk­ist. Hins vegar hætta íslenskar stelpur því miður alltof snemma og við missum svo margar alltof fljótt. Ástæðan fyrir því gæti verið að stelpur eru oft byrj­aðar að spila í úrvals­deild­inni mjög ungar, oft um sextán ára ald­ur­inn. Þegar þær eru síðan orðnar tutt­ugu og sex ára þá er þetta bara komið nóg fyrir margar; tíu ár er ansi langur tími, en ég vildi óska þess að sjá stelpur spila lengur,“ segir Helena og bætir við:

„Sama á við um lands­liðið – við erum að mínu mati með hæfi­leik­a­rík­ari leik­menn en áður en þær detta út of snemma; síðan hafa okkar bestu stelpur sem fara í háskóla verið að missa af lands­leikjum út af nýja fyr­ir­komu­lag­inu með þessa glugga; við höfum því ekki náð að tefla fram okkar besta liði í nokkur ár og við megum vart við því að vera án fjög­urra til fimm mjög góðra leik­manna.“

Helena ólst upp hjá Haukum en eftir að atvinnu­manna­ferl­inum erlendis lauk ákvað hún að ganga til liðs við Val árið 2018. Hún segir ákvörð­un­ina hafa í raun snú­ist um tvennt:

„Þegar við komum heim þurfti ég að taka ákvörðun um að fara „heim” í Hauka í þæg­ind­ara­mmann, eða fara á nýjan stað þar sem ég þurfti að sanna mig uppá nýtt og í umhverfi þar sem ég var eins og atvinnu­maður, en bara á Íslandi. Það var hörku áskorun að fara í Val en það spil­aði líka inn í að Gugga (Guðbjörg Sverr­is­dóttir, systir Helenu) væri í Val; mér fannst mjög freist­andi að koma í hungr­aðan klúbb sem var og er með nán­ast með allt uppá tíu utan vallar, og það að spila með systur minni.“

Eftir stór­kost­legan árangur hjá Val þar sem allir titlar sem í boði voru unn­ust er Helena nú aftur komin í raðir Hauka og á nóg eftir.

Hún talar um mik­il­vægi yngri flokka starfs félaga, sem er henni hug­leikið:

„Vinnan sem á sér stað í yngri flokk­unum er síðan það sem skiptir mestu máli; að stækka körfuknatt­leiks­deild­ina og vera með alvöru þjálf­ara hjá krökk­unum sem síðan von­andi skila sér í meist­ara­flokk­ana þegar þar að kemur.“

Helena segir aðspurð að það gangi ágæt­lega að sam­ræma fjöl­skyldu­lífið og körfu­bolt­ann.

„Við erum sem betur fer með ótrú­lega góðar og vilj­ugar ömmur sem aðstoða okkur mikið. Við Finnur fundum að það er nauð­syn­legt fyrir okkur að vera í sama félag­inu til að æfinga­tímar skarist ekki, og dætur okkar eyða ansi miklum tíma í íþrótta­hús­inu. Eldri stelpan okkar elskar að fá að koma með á æfingar og sú yngri hefur nú þegar eytt smá tíma þar.“

Bætir þessu við:

„Þetta tekur alveg á og krefst þess að vera vel skipu­lagður en okkur finnst bara enn þá svo gaman að spila að við látum þetta ganga upp.“

Hver er efni­leg­asti leik­mað­ur­inn eða leik­menn­irnir í dag að mati Helenu?

„Það er erfitt að velja ein­hverja ein­staka og segja að þeir séu efni­leg­astir. Það sem hefur gerst of oft hjá krökk­unum okkar er að þau er ótrú­lega efni­leg og er hampað fyrir en síðan hætta þau að bæta sig, en topp­ur­inn er ekki að vera efni­legur á Íslandi, þannig að ég vona inni­lega að þau setji markið hærra og virki­lega leggi á sig. Við eigum fullt af flottum ungum leik­mönnum og ég hlakka til að sjá hvernig þau tækla ung­lings­árin og von­andi sjáum við fleiri súper­stjörnur á næstu árum.“

Af öllum glæsi­legu sigrunum, Helena, hver er sá sæt­asti?

„Það er þegar ég vann með Haukum árið 2018. Að vinna með upp­eld­is­fé­lag­inu og öllum stelp­unum mínum sem ég hafði þjálfað eða æft með síðan þær voru litlar; það var ótrú­lega skemmti­legur tit­ill. Svo verð ég að nefna sig­ur­inn á Norð­ur­landa­mót­inu með u16 árið 2004 – mjög eft­ir­minni­legt því að kvenna­lið­unum gengur endi­lega ekk­ert alltof vel á Norð­ur­landa­mót­inu. Svo er ekki annað hægt en að minn­ast á titl­ana með Val árið 2019 – þeir fyrstu í sög­unni fyrir félagið og gaman að eiga þátt í því.“

En sárasta tapið?

„Odda­leik­ur­inn í loka­úr­slit­unum árið 2015. Við í Haukunum vorum kana­lausar og fórum í fimm leiki gegn Snæfell og töpum í odda­leiknum. Ég man að ég gjör­sam­lega setti allt mitt í þá seríu, meidd­ist í kálfa, og keppti nán­ast á öðrum fæt­inum síð­ustu leik­ina. Þvílíka stemmn­ingin sem var á Ásvöllum í leik fimm, og ótrú­lega sárt að tapa.“

Hvað held­urðu að þú munir spila lengi?

„Ég hef verið að fá þessa spurn­ingu af og til og líka bara spurt sjálfa mig að þessu. Svarið mitt er ein­fald­lega að á meðan mér finnst enn þá gaman í körfu og á meðan lík­am­inn heldur þá spila ég.

Þegar ég hætti mun ég pott­þétt þjálfa og vera mikið í kringum körfu­bolta, ég segi bara, hví ekki að spila bara eins lengi og maður getur, ég ætla að gera það.“

Er körfu­bolt­inn fullt starf eða ertu að vinna með­fram körf­unni?

„Karfan og þjálfunin er fullt starf hjá mér og hefur verið síðan ég kláraði háskóla. Ég hins vegar er að sækja mér kenn­ara­rétt­indi því ég geri mér grein fyrir því að maður getur ekki spilað að eilífu, og því gott að vera með mögu­leika til­búna þegar að því kemur að fara í „venju­lega” vinnu.“

Svona að lokum, hver eru helstu áhuga­mál þín?

„Helstu áhuga­mál mín fyrir utan körfu eru að ferð­ast. Með tvö börn hefur lífið auð­vitað tekið miklum breyt­ingum, en ég hlakka mikið til þegar við getum ferð­ast aftur, enda vorum við hjónin dug­leg að ferð­ast og skoða nýja staði og ég hlakka til að gera það með dætur okkar með eða jafn­vel helg­ar­ferðir, bara við tvö, ég og Finnur.“

Viðtalið birt­ist fyrst á vef­síð­unni karfan.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi