Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lúkasar saga – dáinn, horfinn – harmafregn

Lúkasar saga – dáinn, horfinn – harmafregn

Um miðjan júní­mánuð, árið 2007, fór íslenskt sam­fé­lag á hlið­ina, nán­ast bók­staf­lega. Þá kom á Bíla­dögum á Akureyri upp kvittur þess efnis að hópur ungra karl­manna hefði fundið hund sem hafði verið saknað síðan í maí­lok. Þessi kvittur mark­aði upp­haf Lúk­asar­máls­ins svo­kall­aða.

Téður Lúkas hafði horfið frá heim­ili sínu á Akureyri og þrátt fyrir að til hans hefði sést endrum og sinnum hafði ekki lán­ast að hafa hendur í hari hans.  Lúkasar var, eðli máls­ins sam­kvæmt, sárt saknað. Lúkas var enda eng­inn ætt­laus bast­arður heldur hrein­rækt­aður, kín­verskur smá­hundur af teg­und­inni Chinese Crested, hvorki meira né minna.

Nú, aftur að Bíla­dögum. Umrædda helgi dró til tíð­inda en þá flaug fjöllum hærra sú fiski­saga að hópur pilta hefði fundið Lúkas. Í stað þess að hlúa að grey­inu þá, að sögn vitna, settu þeir Lúkas í íþrótta­tösku sem þeir spörk­uðu á milli sín þar til ýlfrið hljóðn­aði.

Allar lýs­ingar voru mjög mynd­rænar og smá­at­riðin skorti ekki, annar eins hrotta­skapur hafði eig­in­lega ekki áður sést í sögu lands og þjóðar. Eigandi Lúkasar, Krist­jana Margrét Svans­dóttir, fór rak­leitt til lög­regl­unnar og lagði fram kæru.

Íslenskur almenn­ingur lét ekki sitt eftir liggja og greip til lykla­borðs­ins; netheimar log­uðu og vand­læt­ing og fyr­ir­litn­ing þeirra sem þar lögðu orð í belg var tak­marka­laus. Meintum ger­endum var hótað öllu illu og var mörgum mikið niðri fyrir. Einn meintra ger­enda (reyndar var ekk­ert „meint“ í huga þeirra sem tjáðu sig), Helgi Rafn Brynjars­son, var úthróp­aður sem höf­uð­paur harð­lyndu pilt­anna og fyrr en varði fékk hann að finna á eigin skinni þunga þeirra hol­skeflu sem hjarð­eðli Íslend­inga getur orsakað.

Sum­ar­sæla Helga Rafns var á enda, og reyndar æði margt annað. Honum var hótað líf­láti, umsát­urs­á­stand var við heim­ili hans og ráð­ist á hann.

Á meðal skila­boða sem Helgi Rafn fékk voru eft­ir­far­andi: „Ég er per­sónu­lega búinn að setja menn á þig … ég veit hvar þú ert og hvert þú ferð“. Helgi Rafn missti vinn­una, þorði vart út úr húsi og þurfti að leita sér aðstoðar.

Harmi sleg­inn pöp­ull­inn sá að fátt var í stöð­unni annað en að kveðja Lúkas með pomp og prakt, reyndar hafði hræ hunds­ins ekki fund­ist þegar þar var komið sögu. Minn­ing­ar­at­höfn var haldin, hvort tveggja í höf­uð­stað Norð­ur­lands og höf­uð­borg lands­ins, og hefði hvaða þjóð­höfð­ingi sem er, nema kannski Kim Jong-un, talið sér mik­ill sómi sýndur með slíkri við­höfn.

Ef Lúkas sjálfur hefði orðið vitni að kertafleyt­ing­unni sem fram fór honum til heið­urs má ætla að tár hefði sést á hvarmi hans, en hvort tveggja norðan og sunnan heiða tók fjöldi fólks þátt í kveðju­at­höfn­inni.

Sem fyrr segir hafði ekk­ert hræ fund­ist og brátt fóru að renna á lög­reglu tvær grímur – að ekki væri allt sem sýnd­ist. Leitað hafði verið í höfn­inni ef vera skyldi að Lúkas hefði orðið fiska­fóður . Efa­semdir lög­reglu fengu byr undir báða vængi þegar orðrómur komst á kreik þess efnis að Lúkas „heit­inn“ hefði sést spóka sig fyrir ofan þorpið við Eyja­fjörð.

Málið var kannað og stað­fest að þar væri ekki á ferð­inni Lúkas aft­ur­geng­inn, heldur sprell­lif­andi, jafn­mann­fæl­inn sem fyrr og helst til illa til reika. Hann var fang­aður og komið til eig­end­anna sem fórn­uðu eflaust höndum til himna af létti.

Eftir stóð mann­orðs­morð sem blogg­arar og virkir í athuga­semdum stóðu fyrir í netheimum, sem reyndar er orðið að eins konar þjóðar­í­þrótt nú um stundir, til­vera ungs manns rústir einar og skaði sem erfitt var, og kannski ómögu­legt, að bæta.

Helgi Rafn Brynjars­son náði að hreins mann­orð sitt og kærði 70 manns fyrir hót­anir og fleira í þeim dúr. Að lokum náð­ust sættir með Helga Rafni og nokkrum þeim sem harð­ast höfðu gengið fram.

Af Lúkasi er það ann­ars að frétta að hann „and­að­ist“ í kjöl­far veik­inda árið 2011. Hvort honum var fylgt til grafar með við­höfn fylgir ekki sög­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi