Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Falleg minningarorð Margrétar um föður sinn: „Elsku pabbi, ég verð alltaf litla stelpan þín“

Falleg minningarorð Margrétar um föður sinn: „Elsku pabbi, ég verð alltaf litla stelpan þín“

Margrét Ósk Guð­bergs­dòttir ritar fal­legan texta um föður sinn, Guðberg Guðnason, sem oft­ast var kall­aður Bíla-Bergur.

„Elsku, elsku, elsku besti pabb­inn minn kvaddi okkur fyrir rétt rúmum sòl­ar­hring eftir mikla bar­áttu. Ég fékk fal­leg­ustu kveðju­stund sem ég gat óskað mér og hún var töfrum lík­ust; hún hjálp­aði mér að hafa kraft­inn til þess að geta haldið áfram,“ skrifar Margrét og bætir við:

„Við Ásta og Alda fengum að fara inn til hans eftir að hann var tek­inn úr nýrna­vél­inni og af öllum lyfjum og minnkað súr­efnið. Það var ekki vitað hversu langur tími myndi líða þar til hann myndi kveðja. Þannig við ætl­uðum bara aðeins að stoppa stutt.

Alda og Ásta fara svo og ég segi: „Ég kem eftir smá­stund.“

Þá segir lækn­ir­inn að hann haldi að hann sé að fara. Ég ákvað því bara að staldra aðeins við og held í hend­ina à honum og tala við hann. Var alltaf að fylgj­ast líka með öllum töl­unum sem fóru lækk­andi. Ég àkvað svo bara að byrja að syngja fyrir hann „elsku bíll­inn minn blái,“ og viti menn, súr­efnið fer uppí 100 % – sem hafði ekki gerst frà því hann kom sagði lækn­ir­inn.

Ég kippt­ist öll til og þarna hélt ég nú að krafta­verkið væri að fara LOKSINS að ger­ast og að hann myndi bara koma til baka.

En því miður var það ósk­hyggja í mér.

Hann heldur àfram að rokka upp og niður í töl­unum og þetta er í annað skiptið á ævinni sem ég hef fengið að tala meira en hann þannig ég nýtti nú tæki­færið.“

Bætir við:

„Svo hélt ég àfram að syngja nokkur vel valin lög fyrir pabba, og sagði svo loks­ins við hann að hann mætti fara; við myndum spjara okkur og standa öll saman; ég vissi að hann myndi vernda okkur og væri alltaf í hjart­anu okkar. Þarna hèlt ég aftur að núna væri hann að fara og það var mik­ill friður með honum allan tím­ann. Það hreyfð­ist nú eitt­hvað munn­ur­inn og mér var sagt að þetta gæti gerst þò hann væri sof­andi. Ég spurði hann þá hvort hann heyrði í mér og þà kippt­ist hann til þrisvar og èg er viss um að hann hafi verið að reyna að tala.“

Margrét spyr deyj­andi föður sinn:

„Ef þú vilt að ég fari, hækk­aðu þá súr­efnið, en ef þú vilt að ég verði àfram lækk­aðu það þá.“

Þá var hann á milli 40 og 50, og rýkur svo upp í 96. Þannig ég kveð hann end­an­lega og labba fram og sé þá lín­una flata og spurn­ing­ar­merki. Svo kom lækn­ir­inn inn rétt à eftir mér og sagði að hann hefði farið strax à eftir mér. Þessa stund geymi ég að eilífu ásamt öllum hinum.“

Veiktist eftir örvunarskammt

Margrét segir að „Það var nú ekki bara þetta helv…. Covid drasl sem gerði úts­lagið heldur var það sam­verk­andi þáttur ýmissa hluta. Eftir fyrri spraut­urnar, Astra Zenega draslið, lá pabbi með í lung­unum vikum saman. Viku áður en hann lenti á spít­al­anum var hann á þessum „fkn“ örv­un­ar­skammti; ónæm­is­kerfið var bælt – hann fèkk blòð­tappa í lungu og fòt­inn, 40 stiga hita og þrjár teg­undir af sýk­ingum: Líffærin byrj­uðu svo að gef­ast upp hvert à fætur öðru, en pabbi gafst aldrei upp og barð­ist hetju­lega allan tím­ann; hann er og verður alltaf sterkastur og bestur; hann pabbi var engum líkur; hann var besti bíl­stjòri í heimi og til­kynnti það öllum stoltur; átti alltaf flott­ustu og bestu bíl­ana; hann gat allt og hefur örugg­lega lagað eitt­hvað fyrir alla sem hann þekkti.“

Margrét minn­ist föður síns með ein­stakri hlýju og kær­leika:

„Það hafa allir skemmti­legar sögur um hann að segja, því hann var ein­stak­lega skemmti­legur og hress: Hann gat talað ENDALAUST, hann var sà eini sem tal­aði mig í kaf og ef hann var að segja mér frà ein­hverjum Jòni útí bæ og ég lok­aði þà bara eyr­unum, byrj­aði hann að syngja. Hann var stundum alveg òþol­andi kall­inn; hvað hann hlust­aði aldrei à mig og vissi alltaf betur en ég, og mikið er ég þakklàt fyrir að hann hafi stundum ekki hlustað og komið alltaf òum­beð­inn, birst hérna í Sand­gerði og lagt hús­bílnum og komið í heimsòkn hvort sem vel lá á eða ekki. Hann var alltaf svo þakklàtur fyrir allan mat­inn sem ég gerði; lét mér líða eins og eðal­kokki, sama þò það væri eitt­hvað eins ein­falt og ban­ana­hafrapönnsurnar. Þakk­lætið ein­kenndi hann, og svo tòk hann alltaf afgang af mat með sér í boxi; dreif sig svo að þrífa það vel og skila í næstu heimsòkn.“

Það er bæði ástúð og húmor í texta Mar­grétar:

„Í eitt skipti vorum við fjöl­skyldan með bústað à Blönd­uòsi þar sem Númi var að fara að keppa í tor­færunni. Þegar við mætum er ekki bara Sælu­svítan lögð fyrir utan og pabbi búinn að sann­færa hús­vörð­inn um að hleypa sér inn. Ég vissi ekki hvert èg ætl­aði, en er núna mjög þakklàt fyrir allar þessar stundir, því þetta eru svo fal­legar minn­ingar. Við feðgin erum svo lík þò ég hef nú ekki alltaf við­ur­kennt það. EN ég er samt bara svona „mini“ útgàfan af honum, à ekki roð í hann. En við erum bæði lík í útliti og per­sònu­leika og höfum því brallað mjög mikið saman. Farið à enda­lausar úti­hà­tíðir, og þá sér­stak­lega Sjòarann síkáta og Ljòsanòtt og skemmtum okkur alltaf vel.“

Margrét segir að börn hafi hænst mikið að föður sínum:

„Börnin dýrka hann og hann þau, enda týndi hann aldrei barn­inu inní sér, sem er  magnað. Hann sýndi mér Þòrsmörk í fyrsta skipti sem ég man eftir; við ferð­uð­umst saman til Norð­ur­landa, og svo var það í Kanarí ferð­inni, 2017 til 2018, sem við rif­umst í fyrsta skipti útaf ein­hverju til­gangs­lausu. Þarna var ég búin að vera í mik­illi sjálfs­vinnu og farin að setja mörk og gerði ekki allt sem hann vildi, og honum fannst ég bara frek. En sem betur fer kom hann svo og sagði fyr­ir­gefðu, en ég skrif­aði honum bréf fyrst til að útskýra. En þetta styrkti sam­band okkar, og greyið Anna og Alda að vera à milli. En það fòr allt vel og þetta var ein­stak­lega ynd­is­leg ferð og ein enn minn­ingin í minn­inga­bank­ann.

Margrét þakkar föður sínum „fyrir alla tím­ana í sveit­inni og með ömmu og afa; òmet­an­legir, og sam­band okkar pabba var svo­lítið eins og hans og ömmu; fal­legt, ein­stakt, en líka storma­samt à tímum, en það var bara af því að við erum öll svo lík og þrjòsk.

Við stöndum á okkar, sem er oft­ast gott EN ég hef lært að við­ur­kenna það að ef ég hef rangt fyrir mér; held að ég hafi kennt pabba að segja fyr­ir­gefðu og einnig kenndi ég honum aðeins à til­finn­ingar og það að tjá sig; pabba hafði farið mikið fram, við pabbi vorum alltaf saman í liði; það var ég, hann og amma: Við à mòti heim­inum, og við sögðum alltaf:

„Við erum saman í liði; og auð­vitað unnum við allt ef við kepptum í ein­hverju; man eftir því sér­stak­lega à einu ætt­ar­mòti þegar það àtti að keppa í sjò­mann. Margir komu og voru að fara að skrá sig; þà mætir pabbi og allir bakka, og hann fékk medalíu. Ég sagði oft òspart „pabbi minn er sterk­ari en pabbi þinn” – enda var hann það.

Hann var hetjan mín. Og ég verð alltaf litla stelpan hans pabba

Ég hef svo margt að segja en ætla kannski að fara að stoppa þetta hér, veit ekki hvort ein­hver nenni að lesa, en held svo àfram að skrifa allt niður bara í dag­bòk­ina. En bara eitt enn sem er mér svo minnistætt fyrir um það bil einu ári, minnir mig, var ég í mik­illi sjàlfsvinnu og àtti að gera verk­efni hjà fèlags­ràð­gjaf­anum og rifja upp mína æsku; og mömmu og pabba; ömmu og afa. Ég hringi svo í mömmu og hún svarar eitt­hvað „piff hvað er þetta? – for­tíðin á bara að vera í for­tíð­inni, til hvers að vera að rifja það upp.“

Þà hringi ég í pabba og hann var til­bú­inn að tala; aldrei þessu vant – og þetta end­aði í tveggja klukku­stunda sam­tali þar sem hann sagði mér ALLT. Og hann var svo ànægður og honum fannst þetta svo gaman og gott að geta tjàð sig og sagt frà öllu, og fræða mig. Hann tal­aði enda­laust um það; þetta var öðru­vísi sam­tal og ein­stak­lega sér­stakt og mik­il­vægt,“segir Margrét og heldur áfram:

„Hann sagði mér frá ýmsu mögn­uðu eins og til dæmis að hann var làt­inn taka frí í skòl­anum 6 ára gam­all til þess að vinna í frysti­hús­inu svo að fisk­ur­inn myndi ekki skemm­ast, òtrú­lega magnað. Og í síð­asta skipti sem ég sá pabba þà sögðum við einmitt, ég elska þig og við föðm­uð­umst fast. Það var eins og hann vissi að hans tími væri að koma. Ég er ein­stak­lega þakklàt fyrir að við öll fjöl­skyldan nàðum að vera saman við jarð­ar­för­ina hjà ömmu og þar var tekin síð­asta myndin af pabba með dætrum sínum.

Endar þennan fal­lega pistil sinn á þessum orðum:

„Ég er þakk­lát fyrir allar enda­lausu stund­irnar okkar; ég veit það bíða mín enn erf­ið­ari tímar, en ég reyni mitt besta að vera sterk, eins og alltaf.

Já ég verð að bæta við einu sem lýsir pabba svo vel; við bara sitjum og „tjillum“ þegar heyr­ist í pabba, bara var að semja á staðnum: Hugrún Arna, situr þarna, algjör stjarna, feg­urst barna.

Elsku pabbi, ég verð alltaf litla stelpan þín. Ég mun sakna þín enda­laust og allt minnir à þig núna, ég veit þú passar okkur, en núna ertu verkja­laus og frjáls. Hvíldu í friði elsku besti pabbi, við börnin munu ávallt tala vel um þig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi