Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Páll Óskar syrgir látinn „sambýlismann“ sinn: „Mikið var gott að deila lífinu með þér, Gutti“

Páll Óskar syrgir látinn „sambýlismann“ sinn: „Mikið var gott að deila lífinu með þér, Gutti“
Páll Óskar og Gutti Mynd: Facebook

Páll Óskar Hjálmtýrs­son, söngv­ari skrif­aði hjart­næma færslu á Facebook í gær. Kött­ur­inn hans, Gutti sem hann hefur átt síðustur 18 árin er dáinn og minn­ist Páll Óskar hans með langri og fal­legri færslu. Það er nokkuð ljóst af orðum popp­stjörn­unnar að Gutti var stór­merki­legur köttur.

„Sam­býl­is­maður minn og sálu­fé­lagi síð­ustu 18 árin, töffar­inn Gutti, sofn­aði svefn­inum langa föstu­dag­inn 10. des kl. 11.30 fyrir hádegi. Hann mætti óboð­inn í afmælið mitt 16. mars 2004, gaf sjálfan sig í afmæl­is­gjöf og lifði kónga­lífi í Paradís (vest­ur­bænum í Rvk) fram á síð­asta dag,“ skrifar Páll Óskar og á við að kött­ur­inn átti aðra eig­endur til að byrja með en stakk af og flutti til hans.

„Gutti fædd­ist í októ­ber 2002, og stakk af frá fyrri eig­anda í Þing­holt­unum vegna ósætt­an­legs ágrein­ings við annan ógeldan gaur á sama heim­ili. Gutti ákvað að labba af stað og leita sér að íbúð í 101 eða 107 og þar hófst mikið flakk sem stóð lengi yfir. Samkvæmt lög­reglu­skýrslum var Gutti hand­tek­inn tólf sinnum á sex mán­uðum (sjá mugs­hots). Hann var hand­tek­inn á djamm­inu á Prikinu, Sólon, Ramma­gerð­inni, Íslands­banka á Eiðis­torgi, Tóbaks­búð­inni Björk og Happ­drætti DAS. Hann var oft gómaður í miða­sölu Háskóla­bíós og einu sinni var hann böstaður í Sal 1 þar sem hann var að horfa á kvik­mynd Mel Gibsons „The Passion of Christ““

Gutti var ekki lengi að eigna sér heim­ili popp­stjörn­unnar.

„Þegar Gutti var búinn að gera leigu­samn­ing við mig (popp­stjarnan fékk að leigja eitt her­bergi í nýju íbúð­inni hans) var strax tekið til óspilltra mál­anna að eign­ast stærri hlut í hús­inu, garð­inum, bíla­stæð­unum, göt­unni og hverf­inu. Með ein­beittum brota­vilja buff­aði Gutti hvern þann sem veitti honum minnstu sam­keppni. Hann varð góð­kunn­ingi Dagfinns Dýra­læknis eftir ótal blóð­uga bar­daga og ég skil ekki stundum hvernig hann lifði þetta tíma­bil af. Ef ég hefði rakað allt hárið af Gutta hefði hann litið út eins og gam­all box­ari eða útsaum­aður Rambo.“

Þá segir Páll Óskar frá því hvernig hann Gutti laun­aði honum líf­gjöf­ina fyrstu þrjú árin.

„Fyrstu þrjú árin þakk­aði hann mér líf­gjöf­ina með því að veiða allt sem hafði púls. Stundum leit heim­ilið út eins og hjá keðju­sag­ar­morð­ingj­anum í Texas. Einu sinni var keyrt á önd í göt­unni fyrir framan húsið. Gutti var eina vitnið. Hann dró líkið af önd­inni af göt­unni, gegnum inn­keyrsl­una, inn í garð og tróð henni svo gegnum stofu­gluggan. Hann móðg­að­ist þegar ég varð brjál­aður og fannst ég vera van­þakk­látt pakk.“

Gutti var ekki hræddur við neitt að sögn Páls

„Hann var ekki hræddur við neitt. Einu sinni sá ég hann skella sér á „hest­bak“ á hundi sem var mun stærri en hann. Gutti not­aði hunda og jafn­vel bíl­þök til að skutla sér þónokkurn spöl og var bara að fíla útsýnið á meðan.

Gutti var ljón­gáf­aður. Það þýddi ekk­ert að reyna að æsa hann upp eða leika sér við hann með ein­verjum aðkeyptum kisu leik­föngum. Ég keypti lazer til að stríða honum, en hann fatt­aði plottið eftir sirka 2 mín­útur, stóð bara á gólf­inu og horfði í augun á mér eins og ég væri hálf­viti. Óþarfi að kaupa fleiri leik­föng inn á heim­ilð eftir það.“

Páll Óskar segir næst frá því hversu mik­ill smekkköttur Gutti var varð­andi mat.

„Gutti mjálm­aði aldrei nema þegar brýna nauð­syn bar til. „Hleyptu mér út, opn­aðu fyrir mér, gemmér að éta, það vantar mat í skál­ina, ég borða ekki mat sem er keyptur á bens­ín­stöð, ég vil bara líf­rænt ræktað Royal Canine, hvað hef ég gert til að verð­skulda þessa ömur­legu þjón­ustu?“ Hann fór alltaf í göngutúr sjö sinnum á dag, til að tékka á yfir­ráða­svæð­inu, pissa og buffa þá sem komu nálægt. Sjö sinnum á dag – allt til dauða­dags,“ skrif­aði Páll og hélt áfram. „Aðeins 15 mín­útum áður en Dag­finnur Dýra­læknir kom heim til að hjálpa Gutta að sofna svefn­inum langa, fór Gutti í sinn loka labbitúr út í garð, þótt hann gæti varla stigið í lapp­irnar né haldið haus, bara til að tékka á yfir­ráða­svæð­inu. Jafnvel við dauð­ans dyr, þá var hann ennþá á vakt.“

Lokaorð Páls Óskars eru fal­leg og ljúfsár.

„Ég mun aldrei framar kynn­ast ketti eins og Gutta. Ég er svo þakk­látur fyrir að hafa fengið að deila síð­ustu 18 árum undir sama þaki og hann. Það er stór­skrýtið að vera í íbúð­inni núna. Ég þarf stundum að spyrja mig hvaða heim­ili ég sé staddur á. Það er stór­skrýtið að snúa lykl­inum í skrá­argat­inu, opna úti­dyra­hurð­ina og af gömlum vana kallar maður hátt og snjallt „MJÁ“ og maður á von á því að heyra eitt „mjá“ svar til baka. Núna heyr­ist það ekki og það mun taka mig nokkurn tíma að kom­ast yfir það. Það er mikil sorg á heim­il­inu núna.

Blessuð sé minn­ing Gutta, sem náði að lifa í 19 ár (alls 92 mennsk ár) og var hvíld­inni feg­inn þegar nýrun hans luku keppni í síð­ustu viku. Ég er alveg í klessu hérna. Búið að vera mjög erfitt að skrifa þessa minn­ing­ar­grein og skoða allar þessar gömlu myndir. Maður grenjar og tekur svo hlát­ur­sköst inn á milli.Mikið var gott að deila líf­inu með þér, Gutti. Takk fyrir að velja mig sem lífs­föru­naut. Ég hefði ekki getað valið betri kött. REST IN POWERGUTTI (f. 10.10.2002 d. 10.12.2021)“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi