Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lífsreynslusaga: Ég hef lært að brosa

Lífsreynslusaga: Ég hef lært að brosa

And­stæðar til­finn­ingar geta verið lif­andi í okkur á sama tíma, báðar í einu. Ein til­finn­ing úti­lokar ekki aðra. Til­finn­inga­lífið er marg­slungið, til dæmis getum við verið afbrýð­isöm út í ein­hvern og sam­glaðst við­kom­andi sam­tímis. Getum hlakkað til og kviðið fyrir á sama tíma, verið fegin og svekkt yfir sama hlutnum.

Minn sárs­auki, van­máttur og tog­streita er raun­veru­leg og það er nauð­syn­legt fyrir mig að við­ur­kenna það sem ég upp­lifi. Það er ríkj­andi til­hneig­ing að afneita sinni upp­lifun því ein­hverjir aðrir hafa það verra. Þetta við­kvæði að mega ekki kvarta því ég hef allt sem ég þarf, eða á að þurfa.

Akkúrat núna er allt í stakasta lagi. Þegar ég anda djúpt nokkrum sinnum og leyfi mér að finna aðeins það sem er raun­veru­legt í þessu augna­bliki finn ég frið og þannig hef ég lært að brosa.

Ég hef lært að brosa í gegnum þján­ing­arnar og ég hef lært að brosa þegar ég hef beðið ósigur. Ég hef lært að brosa á óvissu­tímum og ég hef lært að líta á björtu hlið­arnar. Him­inn­inn er kannski þung­bú­inn á þessu augna­bliki, en fyrr eða síðar mun sólin skína og allir skuggar verða á bak og burt. Lífið hefur ekki alltaf farið um mig mjúkum höndum en ég hef reddað mér. Ég hef stundum náð að upp­lifa algjört ótta­leysi, en það sem hefur skipt mig mestu máli er að ég hef fundið hvernig er að vera ham­ingju­söm, þó svo að allt hafi unnið gegn því.

Ég hef lært að brosa jafn­vel þó svo að ég hafi gert mis­tök. Ég hef lært að brosa þegar ég hélt að ég myndi ekki kom­ast í gegnum hindr­an­irnar á veg­inum. Og ég hef lært að brosa  and­spænis höfnun. Ég hef áttað mig á því, að þegar ég brosi virð­ist allt auð­veld­ara. Brosið hefur breytt mínum heimi, en þó ekki heim­inum sjálfum. Og ég veit að lífið er ein­ungis einu brosi frá því að vera gott.

Ég hef lært að treysta. Ég hef lært að standa á eigin fótum og ég hef lært að ég er sterk­ari en ég hélt. Ég er ekki lengur hrædd við nótt­ina því myrkrið er ekki til, það er aðeins minna ljós. Það sem breytti öllu var þegar ég átt­aði mig á því að lífið verður betra ef ég beini athygl­inni meira að því jákvæða. Þá get ég breytt verstu aðstæð­unum.

Ég brosi, ekki vegna þess að ég sé laus við allt mót­læti, heldur vegna þess að ég hef lært að breyta hug­ar­fari mínu og því hvernig ég skil­greini líf mitt. Það er meira rými fyrir bjart­sýni og raun­sæi. Ég brosi og brosi því það gerir mig yngri og skemmti­legri. Ég brosi, ekki vegna þess að ég vilji fela sárs­auk­ann, heldur vegna þess að ég skil að lífið væri ekki gott ef ég ein­blíndi enda­laust á nei­kvæðu hlið­arnar. Lífið er eins og boga­dreg­inn speg­ill. Ef þú beinir athygl­inni ein­ungis að miðj­unni er myndin skýr, en ef þú horfir bara á brún­irnar á kúlu­laga spegl­inum verður skynj­unin ójöfn.

Bros er ekki bara til­finn­ing, heldur skynjun, raf­seg­ul­svið og lífs­afl.

Ég læri það skref fyrir skref, and­ar­drátt fyrir and­ar­drátt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi